Bensínverð ekki lægra síðan í desember 2009

Bens­ín­verð hefur heilt yfir lækkað á síð­ustu miss­erum. Bens­ín­vakt Kjarnans sýnir þró­un­ina.

Fylgstu með bens­ín­verð­inu á Bens­ín­vakt Kjarnans
Kannaðu verðið

Bens­ín­lítr­inn kost­aði tæp­lega tveimur krónum minna í júlí en júní, sam­kvæmt Bens­ín­vakt Kjarnans. Við­mið­un­ar­verðið á íslenskum elds­neyt­is­mark­aði var 184,7 krónur á hvern lítra í júlí, miðað við 186,4 krónur í júní.

Bens­ín­lítr­inn var dýrastur á þessu ári í arpíl þegar við­mið­un­ar­verðið var 199,9 krónur á hvern lítra. Heilt yfir hefur bens­ín­verð lækkað nokkuð á und­an­förnum miss­erum og hefur ekki verið lægra síðan í des­em­ber 2009.

Bens­ín­verð er að lækka þrátt fyrir að opin­ber gjöld á elds­neyti hafi hækkað um ára­mótin. Þrír liðir opin­berra gjalda hækk­uðu um ára­mót­in. Það voru almennt bens­ín­gjald sem hækk­aði úr 25,6 krónum á lítr­ann í 26,60 krónur eða um 4,69 pró­sent, sér­stakt bens­ín­gjald sem hækk­aði úr 41,30 krónum á hvern lítra í 43,25 krónur á hvern lítra eða um 4,72 pró­sent og svo kolefn­is­gjaldið sem hækk­aði um 25 aura og er nú 5,50 krónur á hvern lítra. Hlut­falls­leg hækkun kolefn­is­gjalds­ins er 4,76 pró­sent.

Lækkun bens­ín­verðs síðan í apríl má skýra með lægra heims­mark­aðs­verði á olíu. Verð á Brent-hrá­olíu hefur sveifl­ast nokkuð það sem af er ári, eftir að hafa náð stöð­ug­leika í vetur. Lægst hefur fatið kostað 44,82 doll­ara í júní og hæst 56,23 doll­ara í apríl. Verðið hefur hækkað aftur á síð­ustu vikum og stendur nú í 51,62 doll­urum á fatið.

Þum­al­putta­reglan er að verð­sveiflur á heims­mark­aðs­verði á olíu koma ekki strax fram á Íslandi vegna þess að olíu­fé­lögin versla elds­neyti á heims­mark­aði í stórum ein­ingum. Verðið við dæl­una hér á landi ætti því að end­ur­spegla heims­mark­aðs­verðið þegar elds­neytið var flutt hingað til lands.

Bens­ín­verð á Íslandi skipt­ist í þrjá meg­in­liði. Það er algengt inn­­­kaupa­verð, opin­ber gjöld sem ríkið leggur á elds­­neyt­is­verð og hlutur olíu­­­fé­laga. Opin­beru gjöldin breyt­­ast lítið á milli mán­aða; það er raunar aðeins virð­is­auka­skatt­­ur­inn sem getur breyst nema með sér­­­stökum laga­breyt­ingum frá Alþingi. Virð­is­auka­skatt­­ur­inn er hlut­­falls­­legur skattur á elds­­neyt­is­verð en önnur opin­ber gjöld sem leggj­­ast á lítra­verðið eru föst krón­u­tala sem ákvörðuð er í fjár­­lög­­um. Krón­u­­gjöldin á bens­ín­verð eru almenn vöru­­gjöld, sér­­­stök vöru­­gjöld og kolefn­is­­gjald.

Lesa má nánar um sund­ur­liðun bens­ín­verðs­ins á vef bens­ín­vakt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið undanfarið ár