„Við skulum þvo okkur um hendurnar, nudda, nudda, nudda, nudda þeim saman“

Tón­list­ar­mynd­band frá Víetnam um mik­il­vægi hand­þvottar á tímum kór­ónu­veirunnar hefur slegið í gegn.

Quang Đăng dansar ásamt vini sínum handþvottardansinn fræga.
Quang Đăng dansar ásamt vini sínum hand­þvott­ar­dans­inn fræga. Mynd: Skjáskot Instagram

Þegar kemur að mik­il­vægi góðs hand­þvottar á tímum kór­ónu­veirunnar beita yfir­völd ýmsum ráðum til að koma skila­boð­unum til sem flestra. Heil­brigð­is­yf­ir­völd í Víetnam ákváðu að fá vin­sæla lista­menn til að breiða út boð­skap­inn með kímni og hress­leika að vopni.

Mynd­bandið sem lista­menn­irnir vin­sælu Min og Erik gerðu hefur hlotið lof og kallað fram bros á vörum margra. Í því er mik­il­vægri fræðslu um útbreiðslu veirunnar skæðu komið á fram­færi í teikni­mynd og gríp­andi lag félag­anna leikið undir. Einnig er farið yfir mik­il­vægar for­varn­ar­að­gerðir og þar er hand­þvottur efst á blaði.

[adspot]

Viðlagið hljómar nokkurn veg­inn svona á íslensku:

„Við skulum þvo okkur um hend­urnar, nudda, nudda, nudda, nudda þeim saman / ekki snerta augu, nef og munn með hönd­unum / forðastu fjöl­menni til að berj­ast gegn kór­ónu­veirunni!“

Mynd­bandið hefur fengið mjög mikið áhorf á YouTube frá því að það var gefið út 23. febr­úar.

En þar með er ekki öll sagan sögð.

Stuttu eftir að lagið var gefið út tók þekktur víetnamskur dans­ari, Quang Đăng, sig til og samdi dans við það. Hann birti svo mynd­band af dans­inum á Instagram og við­brögðin hafa ekki látið á sér standa.

Í dans­inum eru tekin sex spor í takti við for­varn­irnar sem yfir­völd hvetja fólk til að nýta til að verj­ast veirunni og aðstoða þannig við að hefta útbreiðslu hennar. Quang Đăng lætur ekki þar við sitja heldur hvetur til áskor­unar undir myllu­merk­inu: #GhenCovyChallenge

Biður hann fólk að læra dans­inn, taka upp mynd­band af sér að dansa og deila á sam­fé­lags­miðlum. Þannig von­ast hann til þess að hinar ein­földu for­varn­ar­ráð kom­ist til skila til sem flestra.

Víetnman virt­ist um tíma hafa náð góðum tíma á útbreiðslu veirunnar. Eftir að fyrstu til­fellin greindust, sem öll voru rakin til Kína, fannst ekk­ert nýtt til­felli í þrjár vikur. Um helg­ina bætt­ust þó fjögur við og eru þau talin tengj­ast ferða­fólki frá Suður-Kóreu. Aðeins tuttutu til­felli hafa þó greinst í Víetnam frá upp­hafi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár