Hagnaður HB Granda jókst um 30 prósent

Hagnaður HB Granda var 4,4 millj­arðar króna á árinu 2018. For­stjóri HB Granda, Guð­mundur Krist­jáns­son, segir að hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins hafi minnkað á síð­ustu árum vegna styrk­ingar krón­unnar og hærri veiði­gjalda.

HB Grandi hagn­að­ist um 32,2 millj­ónir evra, jafn­virði 4,4 millj­arða króna á árinu 2018 og jókst hagn­að­ur­inn um 30 pró­sent frá árinu 2017 er hann nam 24,8 millj­ónum evra. Þetta kemur fram í árs­reikn­ing fyr­ir­tæks­ins sem birtur var í gær. Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda segir að hagn­aður fyr­ir­tæks­ins hafi minnkað á síð­ustu árum vegna styrk­ingu krón­unnar og hærri veiði­gjalda. HB Grandi seldi lax­eld­is­fé­lag í Síle á síð­asta ári, og nam sölu­hagn­að­ur­inn 14,9 millj­ónum evra, og segir for­stjór­inn það skýra að hluta góða afkomu fyr­ir­tæk­is­ins á síð­asta árs­fjórð­ungi 2018.

Ekki ásættanleg rekstrarafkoma

Hagnaður HB Granda fyrir skatta, afskriftir og fjár­magnsliði, EBITDA, nam 36,8 millj­ónum evra árið 2018 en nam 35,7 millj­ónum evra árið áður. Rekstr­ar­tekjur árs­ins 2018 námu 210,7 millj­ónum evra en þær voru 217,3 millj­ónir árið 2017. Áhrif hlut­deild­ar­fé­laga voru jákvæð um 17 millj­ónir evra en þar af nam sölu­hagn­aður vegna sölu á lax­eld­is­fé­lag­inu Salmones Friousur S.A. í Síle 14,9 millj­ónum evra.

Heild­ar­eignir HB Granda í árs­lok 2018 námu 667,1 milljón evra, eða um 90,5 millj­örðum króna. Eigið fé nam 279,5 millj­ónum evra og var eig­in­fjár­hlut­fall 42 pró­sent og lækkar um 10 pró­sent frá því í árs­lok 2017. Heild­ar­skuldir námu 387,6 millj­ónum evra í árs­lok 2018.

Sé litið til fjórða árs­fjórð­ungs nam hagn­aður félags­ins 21 milljón evra, eða um 2,8 millj­örðum króna sam­an­borið við 7,5 millj­ónir evra árið áður. EBTIDA HB Granda á fjórða árs­fjórð­ungi nam 12,7 millj­ónum evra en var 3,4 millj­ónir á sama tíma­bili árið 2017.

„Rekstr­ar­af­koma HB Granda var ekki ásætt­an­leg á árinu 2018. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið að minnka á síð­ustu árum vegna styrk­ingar íslenskrar krónu og hærri veiði­gjalda. Á seinni hluta árs­ins 2018 veikt­ist íslenska krónan og það styrkir útflutn­ings­fyr­ir­tæki. Árið 1992 fjár­festi HB Grandi í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í Síle. Þetta fyr­ir­tæki seldi lax­eld­is­fyr­ir­tæki sitt á síð­asta ári og fékk HB Grandi tölu­verðan hagnað af þeirri sölu og skýrir það að hluta góða afkomu á síð­asta árs­fjórð­ungi 2018.“ segir Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda.

Fyrirtækið keypti Ögurvík í fyrra

[links]Í sept­em­ber í fyrra gerði HB Grandi hf. samn­ing um kaup á öllu hlutafé útgerð­ar­fé­lag­inu Ögur­vík ehf. Selj­andi hluta­fjár­ins var Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur, áður Brims, sem jafn­framt er stærsti eig­andi HB Granda með 35 pró­sent hlut. Þar er Guð­mundur Krist­jáns­son stærsti eig­andi, en hann er jafn­framt for­stjóri HB Granda. Kaup­verðið á Ögur­vík var 12,3 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár