Hvað gerir framsókn?

Það gæti komið í ljós nú í kvöld hvort haldið verður flokks­þing hjá Fram­sókn­ar­flokknum fyrir kosn­ingar eða ekki. Á flokks­þingi yrði kosið um for­ystu flokks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður þess þyrfti því að end­ur­nýja umboð sitt.

Ef auka­kjör­dæm­is­þing fram­sókn­ar­manna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sem haldið er í kvöld, ákveður að það vilji boða til flokks­þings verður það gert. Það er vegna þess að nú þegar hafa tvö kjör­dæm­is­þing ályktað að þau vilji boða til flokks­þings og sam­kvæmt reglum flokks­ins þurfa þrjú af fimm kjör­dæm­is­þingum að gera svo.

Um síð­ustu helgi fóru fram kjör­dæm­is­þing í Norð­vestur- Norð­austur- og Suð­ur­kjör­dæmi. Bæði í Suður- og Norð­vest­ur­kjör­dæmi var sam­þykkt að flokks­þingi skyldi flýtt og það haldið fyrir kosn­ingar í vetur. Í kjör­dæmi for­manns­ins Sig­mundar Davíðs, Norð­aust­ur­kjör­dæmi, var til­laga um að halda flokks­þing fyrir kosn­ingar naum­lega felld. Greiða þurfti atkvæði tvisvar um til­lög­una og mun Sig­mundur Davíð hafa barist hart gegn til­lög­unni.

Jafnvel þótt kjör­dæm­is­þingið í kvöld álykti gegn því að flýta flokks­þingi mun fara fram tvö­falt flokks­þing í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum á laug­ar­dag. Þá verður til­laga um að flýta flokks­þingi borin undir fund­ar­menn þar.

Fram kom í Frétta­blað­inu á þriðju­dag að búist sé við um 200 manns á fund­inn í kvöld. Allir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjör­dæm­inu, þau Eygló Harð­ar­dóttir, Willum Þór Þórsson og Þor­steinn Sæmunds­son vilja flýta flokks­þingi. Eygló hefur ekki úti­lokað að hún myndi bjóða sig fram til for­manns, en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sagst ætla að bjóða sig fram áfram.

Fundur fram­sókn­ar­manna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi hefst klukkan sjö í kvöld í Kópavogi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár