69 prósent myndu kjósa Guðna Th. – 14 pósent vilja Davíð

Alls segj­ast 69 pró­sent þeirra sem taka afstöðu til þess hver eigi að vera næsti for­seti lands­ins að þeir vilji Guðna Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ing í emb­ættið. Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, mælist með 13,7 pró­sent fylgi og rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason með 10,7 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri könnun Frétta­blaðs­ins sem fram­kvæmd var á mánu­dags­kvöld, og er þar með fyrsta könn­unin sem gerð er eftir að Davíð til­kynnti fram­boð sitt á sunnu­dag.

Aðrir fram­bjóð­endur mæl­ast með mun minna fylgi. Ólafur Ragnar Grímsson, sitj­andi for­seti, mælist með 3,2 pró­sent fylgi í könn­un­inni en hann til­kynnti á mánu­dag að hann væru hættur við að bjóða sig fram á ný, eftir að hafa hætt við að hætta við þann 18. apríl síð­ast­lið­inn. Halla Tóm­as­dóttir, sem mælst hefur með nokk­urt fylgi í könn­unum til þessa, mælist nú ein­ungis með eitt pró­sent fylgi. Aðrir voru með minna.

Í Frétta­blað­inu kemur fram að stuðn­ingur við efstu þrjá fram­bjóð­end­urna sé ólíkur eftir kyni og aldri. Guðni Th. nýtur meiri stuðn­ings á meðal kvenna en karla þótt ekki muni miklu. Það á einnig við um Andra Snæ en Davíð nýtur hins vegar mun meiri stuðn­ings meðal karla en kvenna, 18,8 pró­sent karla styðja hann en 8,6 pró­sent kvenna.

Fylgi Guðna er nokkuð jafnt meðal ald­urs­hópa en Andri Snær sækir umtals­vert meira af sínu fylgi til fólks undir fimm­tugu en til þeirra sem eldri eru. Davíð er á hinn bóg­inn mun vin­sælli hjá eldra fólk­inu en því yngra.

Aðferð­ar­fræði könn­un­ar­innar var þannig að hringt var í 1.019 manns þar til náð­ist í 799 manns. Svar­hlut­fallið var 78,4 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir með slembi­úr­taki úr þjóð­skrá. Svar­endur skipt­ust jafnt eftir kyni, og hlut­falls­lega eftir búsetu og aldri. Alls tóku 73,9 pró­sent þeirra sem náð­ist í afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár