Vildi láta rannsaka söluna á Bakkavör

Fulltrúi Banka­sýslu rík­is­ins vildi láta rann­saka söl­una á Bakkavör en meiri­hluti stjórn­ar­innar lagð­ist gegn því.

Fulltrúi Banka­sýslu rík­is­ins í Arion banka krafð­ist þess í des­em­ber í fyrra að innri end­ur­skoð­anda Arion banka yrði falið að gera form­lega athugun á sölu bank­ans á hlut sínum í breska mat­væla­fram­leið­and­anum Bakkavör þar sem stærstu eig­endur eru Ágúst og Lýður Guð­munds­synir.

Meiri­hluti stjórnar bank­ans hafn­aði hins vegar til­lögu Kirstínar Þ. Flygenring, þáver­andi full­trúa Banka­sýsl­unnar í stjórn bank­ans, þess efnis á fundi sínum í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti og efna­hags­mál, í dag. Er meðal ann­ars vitnað til minn­is­blaðs um þessi mál, sem blaðið fékk afhent frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á grund­velli upp­lýs­inga­laga.

Er það mat Banka­sýslu rík­is­ins að rík­is­sjóður hafi tapað 2,6 millj­örðum króna vegna þess hvernig staðin var að söl­unni, í gegnum óbeinan eign­ar­hlut sinn í Arion banka. Er tekið fram í minn­is­blað­inu að þetta sé svipuð fjár­hæð og talið sé að rík­is­sjóður hafi orðið af vegna sölu Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í Borgun, en ennþá er deilt um þau við­skipti fyrir dóm­stólum.

Banka­sýslan skrif­aði Bjarna Bene­dikts­syni minn­is­blað vegna þessa og var það sent 15. jan­úar síð­ast­lið­inn.

„Í minn­is­blað­inu, sem Mark­að­ur­inn fékk afhent frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á grund­velli upp­lýs­inga­laga, er jafn­framt upp­lýst um að Guðrún Johnsen, þáver­andi vara­for­maður stjórnar Arion banka, hafi á stjórn­ar­fundi bank­ans í nóvem ber 2015 greitt atkvæði gegn söl­unni í Bakkavör. Hún lagði síðan til á fundi stjórnar þann 14. nóv­em­ber í fyrra að gerð yrði könnun á sölu­ferli eign­ar­hlut­ar­ins. Sú til­laga var felld og degi síðar var Guðrúnu tjáð að „breyt­ingar væru fyr­ir­hug­aðar á stjórn bank­ans og [hennar] aðkomu væri ekki óskað“, eins og það er orðað í minn­is­blað­inu,“ segir meðal ann­ars í umfjöllun Mark­að­ar­ins.

Gengið var frá sölu eign­ar­halds­fé­lags­ins BG12 á 45,9 pró­senta hlut í Bakkavör í jan­úar árið 2016 en Arion banki fór með 62 pró­senta hlut í eign­ar­halds­fé­lag­inu. Aðrir eig­endur BG12 voru aðal­lega líf­eyr­is­sjóðir, eins og til dæmis Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna sem átti 14,3 pró­senta hlut og Gildi með 11,6 pró­senta hlut. Kaup­endur að hlutnum voru bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, stofn­endur Bakka­varar, en þeir áttu fyrir um 38 pró­sent í mat­væla­fram­leið­and­anum, og banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Baupost. Var kaup­verðið ríf­lega 147 millj­ónir punda.

Ítarlega hefur verið fjallað um þessi við­skipti á vef Kjarnans, en Bakka­var­ar­bræður, Ágúst og Lýður, er nú metnir á um 100 millj­arða og voru settir númer 197 yfir rík­asta fólk Bret­lands, á nýlegum lista The Sunday Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár