Bakkavararbræður í 197 sæti yfir ríkustu menn Bretlands – Metnir á rúmlega 100 milljarða

Eignir Ágústar og Lýðs Guð­munds­sona juk­ust um tæp­lega 80 millj­arða króna á árinu 2017, eftir að Bakkavör var skráð á markað. Þeir keyptu stóra hluti í félag­inu af íslenskum líf­eyr­is­sjóðum og öðrum fjár­festum á mun lægra verði.

Eignir bræðr­anna Ágústar og Lýðs Guð­munds­sona, stærstu eig­enda Bakka­varar, voru metnar á 700 millj­ónir punda, rúm­lega 100 millj­arða króna, um síð­ustu ára­mót. Þeir voru á þeim tíma í 197. sæti yfir rík­ustu íbúa Bret­lands, sam­kvæmt lista The Sunday Times.

Eignir þeirra juk­ust um 550 millj­ónir punda, tæp­lega 80 millj­arða króna, á milli ára.

Á lista dag­blaðs­ins yfir rík­ustu menn Bret­lands á árinu 2016 kom nefni­lega fram að bræð­urnir væru metnir á um 150 millj­ónir punda í lok þess árs. Þá sátu þeir í 885 sæti list­ans og stukku því upp um 688 sæti á einu ári.

Í umfjöllun The Sunday Times um bræð­urna segir að Bakkavör sé einn af stærstu fram­leið­endur örbylgju­mál­tíða og ann­arra til­búna rétta sem seldar eru til stærstu mat­vöru­versl­ana­keðja Bret­lands, á borð við Tesco, Marks & Spencer, Waitrose og Sains­bury. Ágúst og Lýður stofn­uðu fyr­ir­tækið á Suð­ur­nesj­unum árið 1986. Þeir hófu náið sam­starf við Kaupþing á tíunda ára­tug síð­ustu aldar og voru orðnir mjög umsvifa­miklir fjár­festar á árunum fyrir banka­hrun í gegnum fjár­fest­inga­fé­lag þeirra Exista. Þeir voru m.a. stærstu eig­endur Kaup­þings, Bakka­varar Group, trygg­inga­fé­lags­ins VÍS, eigna­leigu­fé­lags­ins Lýsingar, Við­skipta­blaðs­ins og Símans.

Bræð­urnir lentu í miklum vand­ræðum eftir banka­hrunið og misstu meðal ann­ars tökin á Bakkavör. Þeir náðu þó yfir­ráðum yfir því að nýju með sam­komu­lagi við banda­ríska vog­un­ar­sjóð­inn Baupost Group, að hluta í eigu bræðr­anna sjálfra, árið 2016. Í dag eiga bræð­urnir, sem eru 50 og 53 ára gamlir, eiga í dag 50,15 pró­sent hlut í Bakkavör, sem var skráð á markað í Bret­landi í fyrra.

Nauðasamningur og endurskipulagning

Bakkavör þurfti á nauða­samn­ingum að halda eftir banka­hrunið. Hann var gerður í upp­hafi árs 2010. Í honum fólst að kröfu­hafar, að mestu leyti Arion banki og skulda­bréfa­eig­endur á borð við líf­eyr­is­sjóð­ina, tóku yfir félagið en bræðr­unum var gefið tæki­færi til að greiða kröfu­höf­unum til baka fyrir mitt ár 2014. Gengi það eftir myndu bræð­urnir fá 25 pró­senta eign­ar­hlut í Bakkavör.

Í upp­hafi árs 2012 var orðið aug­ljóst að for­sendur nauða­samn­ing­anna myndu ekki halda og ákveðið var að breyta kröfum í nýtt hlutafé. Til að fá bræð­urna til að sam­þykkja þá aðgerð, sem ella hefðu getað haldið Bakkavör í her­kví fram á sum­arið 2014, var fall­ist á að leyfa þeim að kaupa fjórð­ungs­hlut í félag­inu.

Fjórð­ungs­hlut­inn fengu bræð­urnir að kaupa á fjóra millj­arða króna. Innra virði Bakka­varar miðað við eig­in­fjár­stöðu sam­stæð­unnar var um 20 millj­arðar króna og því ljóst að bræð­urnir voru að greiða minna en eina krónu fyrir hverja nafn­virð­is­krónu.

Komu heim með mikið fé

Í kjöl­farið fóru bræð­urnir á fullt í að kaupa hlutafé ann­arra hlut­hafa. Og þeir buð­ust til að greiða þeim í reiðufé. Tilboðið á þeim tíma var um 70 aurar á hverja nafn­virð­is­krónu. Þeir sem að mál­inu komu á sínum tíma full­yrða að féð sem bræð­urnir buðu hafi ekki verið lánsfé frá fjár­mála­stofn­unum. Mikið var því rætt um hvaðan þeir hefðu fengið slíka fjár­muni, enda virt­ust þeir til­búnir með marga millj­arða króna í hand­rað­anum.

Það hefði ekki átt að koma neinum á óvart að Lýður og Ágúst væru með mikið fé á milli hand­anna. Hol­lenska félagið sem þeir áttu, Bakka­bra­edur Holdings B.V., sem hélt á eign­ar­hlutum þeirra í Existu og Bakkavör, hafði greitt þeim miklar arð­greiðslur á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kom fram að það félag hefði verið á meðal þeirra aðila sem þáðu hæstar arð­greiðslur allra félaga í eigu Íslend­inga á þessum tíma. Alls fékk félagið tæpa níu millj­arða króna í arð­greiðslur á árunum 2005 til 2007.

Bræð­urnir komu með mikla pen­inga heim til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Virði evr­anna sem þeir áttu í erlendum félögum hafði þegar auk­ist um 50 pró­sent í krónum talið vegna geng­is­falls íslensku krón­unnar og fjár­fest­ing­ar­leiðin bauð upp á um 20 pró­senta við­bót­ar­virð­is­aukn­ingu.

Bræðurnir eignast Bakkavör að nýju

Haustið 2012 höfðu bræð­urnir tryggt sér rúm­lega 30 pró­sent hlut í Bakkavör, meðal ann­ars með því að kaupa hluti af íslenskum líf­eyr­is­sjóðum. Í jan­úar 2016 var send til­kynn­ing til fjöl­miðla um að BG12 ehf., félag í eigu Arion banka, Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, Gildi líf­eyr­is­sjóðs, fleiri minni líf­eyr­is­sjóða og fag­fjár­festa hefði selt 46 pró­sent hlut sinn í breska félag­inu Bakkavör til félags sem er í eigu bræðr­anna Ágústar og Lýðs og banda­rískra fjár­fest­inga­sjóða í stýr­ingu hjá The BaupostGroup L.L.C. Kaup­verðið nam 147 millj­ónum punda, eða 27,3 millj­örðum króna á gengi þess tíma.

Sam­ein­aði líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og dótt­ur­fé­lag Klakka seldu jafn­framt sinn fimm pró­sent hlut í Bakkavör og má ætla að kaup­verðið hafi verið um þrír millj­arðar króna. Kaup­endur skuld­bundu sig til að leggja fram kauptil­boð í alla aðra útistand­andi hluti í félag­inu, rétt um ell­efu pró­sent, á sömu kjörum.

Bræð­urnir og með­fjár­festar þeirra hafa því eign­ast 89 pró­sent í Bakkavör og skuld­bundið sig til að kaupa þau ell­efu pró­sent sem upp á vantar. Kaup­verðið á þeim hluta var um 6,5 millj­arðar króna.

Ágúst og Lýður, ásamt með­fjar­festum sínum, voru því að kaupa 62 pró­sent hlut í Bakkavör á 36,8 millj­arða króna. Áður höfðu þeir eign­ast 38 pró­sent fyrir átta millj­arða króna.

Metið á yfir milljarð punda

Í fyrra var Bakkavör Group svo skráð á markað í Bret­landi. Virði félags­ins þá var 1,14 millj­arðar punda, um 169 millj­arðar króna, eða fjórum sinnum meira en sú upp­hæð sem bræð­urnir höfðu greitt fyrir hann. Þeir hafa selt hluta af eign sinni og eiga, líkt og áður sagði, 50,15 pró­sent hlut í dag. Ágúst er for­stjóri Bakka­varar og Lýður situr í stjórn félags­ins. Hann var stjórn­ar­for­maður þess þangað til í fyrra. Baupost á síðan rétt undir 25 pró­sent hlut.

Það þýðir að ein­ungis um fjórð­ungs­hlutur í Bakkavör er í frjálsum við­skiptum á mark­aði, þar sem hvorki bræð­urnir né Baupost hafa sýnt vilja til að selja sína hluti. Virði Bakka­varar hefur dreg­ist saman síðan að skrán­ingin átti sér stað. Skrán­ing­ar­gengið var 1,8 pund á hlut en gengið í dag er 1,72 pund á hlut.

Í grein eftir Miles Costello, fjár­fest­inga­rit­stjóra The Times, sem birt­ist í lok síð­ustu viku, sagði hann að Bakkavör stæði frammi fyrir áskor­unum, meðal ann­ars vegna hækk­andi verðs á hrá­efnum á borð við mjólk, smjör, hveiti og eggja sem nauð­syn­leg eru í fram­leiðslu á rétt­unum sem félagið fram­leiðir.

Costello sagði að margt ynni líka með Bakkavör, sér­stak­lega þar sem félagið væri ráð­andi aðili í sölu á þeim vöru­línum sem það leggur mesta áherslu á. Þar er um að ræða salöt, eft­ir­rétti, sam­lokur, pizzur og brauð­meti sem seld eru í mat­vöru­versl­unum í Bret­landi. Auk þess séu tæki­færi fyrir hendi til að auka hlut­deild félags­ins í Kína og Banda­ríkj­unum, en sem stendur eru um 90 pró­sent af við­skiptum þess innan Bret­lands.

Hluta­bréf Bakka­varar eru hins vegar von­brigði að mati Costello´s. Hann mælir með því að fjár­festar forð­ist að fjár­festa í þeim, meðal ann­ars vegna þess að mark­að­ur­inn sem Bakkavör starfar á sé óstöð­ugur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár