Viðvaningarnir sem klekktu á vogunarsjóðunum

Áhuga­fjár­festum er kennt um stærstu dýfu þriggja mán­aða í hluta­bréfa­verði vest­an­hafs vegna umfangs­mik­illa kaupa í leikja- og afþrey­ing­ar­fyr­ir­tæki. Hvernig gerð­ist þetta?

Spjall­borðið Wall Street Bets á Reddit er nú undir smá­sjá banda­ríska fjár­mála­eft­ir­lits­ins vegna áhlaups sem olli gríð­ar­legri hluta­bréfa­verð­hækkun í völdum fyr­ir­tækjum á nokkrum dögum og sumir miðl­arar hafa meinað einka­fjár­festum að kaupa í hluta­fé­lög vegna „grun­sam­legs athæfis“ . Vog­un­ar­sjóðir hafa tapað risa­stórum fjár­hæðum á upp­á­tæk­inu, en einnig er talið að það hafi leitt til mestu lækk­unar á Wall Street í þrjá mán­uði. Hvað gerð­ist?

20-földun hlutabréfaverðs

Í byrjun árs­ins kost­aði einn hlutur í tölvu­leikja­sal­anum GameStop um 18 Banda­ríkja­dali. Í byrjun þess­arar viku var verðið búið að fjór­fald­ast og stóð þá í 76 Banda­ríkja­dölum. Í gær var verðið svo komið upp í 400 Banda­ríkja­dali, rúm­lega 20 sinnum meira en fyrir þremur vikum síðan, en fór svo niður í 200 dali í lok dags.

Sömu sögu má segja um hluta­bréfa­verð í öðrum félögum, líkt og afþrey­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu AMC sem þre­fald­að­ist í vik­unni en lækk­aði svo hratt í gær. Einnig hafði hluta­bréfa­verð far­síma­fram­leið­end­anna BlackBerry og Nokia og fata­fram­leið­and­ans NA-KD farið sömu leið.

Aukinn áhugi fjár­festa þessum félögum var alls ekki í sam­ræmi við rekstur þeirra. Bæði GameStop og AMC skil­uðu tapi á rekstri sínum í síð­ustu árs­fjórð­ungs­upp­gjörum sínum, auk þess sem engar nýjar rekstr­ar­upp­lýs­ingar sem myndu rétt­læta við­líka hækkun félag­anna hafa komið fram á síð­ustu dögum.

Kveikjan virð­ist öllu heldur koma frá spjall­borð­inu r/WallStreetBets, sem er umræðu­vett­vangur áhuga­fjár­festa á heima­síð­unni Reddit. Fyrir tíu dögum síðan opn­aði þar spjall­þráður sem bar heitið „The Wreckoning,“ sem mætti íslenska sem „Dóms­dagur,” þar sem með­limir spjall­borðs­ins hvöttu hvern annan til að kaupa í GameStop.

Ástæðan fyrir þessum mikla áhuga á fyr­ir­tæk­inu virð­ist hafa kviknað vegna þess að stórir vog­un­ar­sjóðir á Wall Street voru búnir að veðja á að verð í félag­inu myndi lækka á næstu dögum. Einn af þessum sjóðum, Citron Research, spáði skar­pri lækkun hluta­bréfa­verðs­ins í GameStop og kall­aði félagið „mis­heppn­aðan versl­un­ar­kjarna­smá­sala“ í grein­ingu sem birt­ist í síð­ustu viku.

Þessir sjóðir tóku svo­kall­aða skort­stöðu í leikja­sal­anum, sem þýðir að þeir hafa fengið hluti í félag­inu að láni sem þeir áfram­selja og skuld­binda sig svo til að kaupa þá aftur innan ákveð­ins tíma. Skort­staða skilar hagn­aði þegar hluta­bréfa­verðið í fyr­ir­tæk­inu lækkar, þar sem þeir fjár­festar sem taka slíka stöðu myndu kaupa aftur hlut­ina á lægra verði en þeir seldu þá.

Eins og myndin sýnir er verðhækkunin í hlutabréfum GameStop gjörsamlega úr takti við fyrri þróun.
Eins og myndin sýnir er verð­hækk­unin í hluta­bréfum GameStop gjör­sam­lega úr takti við fyrri þróun.

Með auknum áhuga með­lima spjall­borðs­ins á Gamestop hækk­aði hins vegar hluta­bréfa­verð félags­ins, þvert á vonir Citron og hinna vog­un­ar­sjóð­anna. Hluta­bréfin héldu svo áfram að hækka í verði, þar sem sjóð­irnir voru búnir að skuld­binda sig til að kaupa bréfin aftur, sam­kvæmt skort­stöðu­samn­ingnum sínum. Þessi staða er kölluð skort­sala­þvingun (e. Short Squeeze) og skap­aði sjálfnær­andi hringrás sem leiddi til for­dæma­lausrar hækk­unar á verði hluta­bréfa leikja­sal­ans á örfáum dögum, líkt og sjá má á mynd hér að ofan. Svipað hefur svo átt sér stað í öðrum félögum.

Gamestonk

Brjál­æðið í kringum hluta­bréfa­kaup í GameStop náði svo hámarki á þriðju­dag­inn þegar Elon Musk, fram­kvæmda­stjóri Tesla, vakti athygli á spjall­borð­inu með Twitter-færslu þar sem hann hlekkj­aði á vef­svæðið og skrif­aði „Gamestonk!!“ við hlekk­inn. Hugtakið „stonk,“ sem er afbökun á enska orð­inu fyrir hluta­bréf (e. stock) er víða notað á net­inu sem orð fyrir fjár­fest­ingar þeirra sem hafa ekk­ert vit á hluta­bréfa­mark­aðnum.

Stonks eru þekktar sem fjárfestingar þeirra sem ekkert kunna á markaðinn
Stonks eru þekktar sem fjár­fest­ingar þeirra sem ekk­ert kunna á mark­að­inn

Í umfjöllun New York Times um málið segir að millj­arða­mær­ing­ur­inn og fjár­festir­inn Chamath Pali­hapitiya hafi einnig hvatt til kaupa á hlutum í Gamestop á þriðju­dag­inn. Sama dag rúm­lega tvö­fald­að­ist hluta­bréfa­verðið í leikja­sal­anum.

Hækkunin hefur leitt til gríð­ar­legs hagn­aðar hjá stærstu fjár­fest­unum í fyr­ir­tæk­inu. Ryan Cohen, stærsti ein­staki eig­andi GameStop með 13 pró­senta eign­ar­hlut, sá virði hluta­bréfa sinna aukast úr 82 millj­ónum Banda­ríkja­dala í 3,4 millj­arða dala. Það er hækkun um 3,3 millj­arða dala, eða um 426 millj­arða íslenskra króna.

Mesta lækkun í þrjá mánuði

Á sama tíma og ýmsir Reddit-fjár­festar högn­uð­ust leiddi mis­heppnuð skort­sala vog­un­ar­sjóð­anna í GameStop til gríð­ar­legs taps hjá þeim. Samkvæmt frétt CNBC var sam­an­lagt tap sjóð­anna vegna leikja­sal­ans metið á yfir fimm millj­arða Banda­ríkja­dala, eða 646 millj­arða íslenskra króna, það sem af er ári.

New York Times telur að þetta tap hafi breitt úr sér, þar sem sjóð­irnir hafi þurft að fjár­magna tapið sitt með því að selja hluti sína í ýmsum öðrum félögum á hluta­bréfa­mark­aðnum Vest­an­hafs. Mið­ill­inn segir viða­mikla sölu sjóð­anna til að fjár­magna skort­sala­þving­un­ina geta tengst því að hluta­bréfa­vísi­tölur S&P, Nasdaq og Dow Jones féllu allar um rúm­lega tvö pró­sent á mið­viku­dag­inn, en það er mesta lækkun á Wall Street hluta­bréfa­mark­aðnum í nokkra mán­uði.

Fjármálaeftirlitið fylgist með og miðlarar búnir að loka

Jen Psaki, upp­lýs­inga­full­trúi Hvíta húss­ins gaf frá sér til­kynn­ingu á mið­viku­dag­inn þar sem hún sagði banda­rísk stjórn­völd vera að fylgj­ast náið með óvenju­legri hækkun hluta­bréfa­verðs hjá GameStop og öðrum félögum. Fjár­mála­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna sagð­ist einnig stunda „virkt eft­ir­lit“ með breyti­leik­anum á afleiðu­mark­aðnum.

Vogunarsjóðir töldu tölvuleikjasalann ekki vera álitlegan fjárfestingarkost í byrjun mánaðarins
Vog­un­ar­sjóðir töldu tölvu­leikja­sal­ann ekki vera álit­legan fjár­fest­ing­ar­kost í byrjun mán­að­ar­ins

Í gær lok­aði svo net­miðl­ar­inn Robinhood, sem leyfir einka­fjár­festum að kaupa hluta­bréf fyrir lít­inn kostnað, fyrir kaup í GameStop, AMC, BlackBerry, auk ann­arra félaga. Miðl­ar­inn gaf ekki miklar skýr­ingar á lok­un­inni, en sagð­ist vilja leggja áherslu á að upp­fræða fjár­festa á tímum mik­illa mark­aðs­sveiflna í nýlegri blogg­færslu á síð­unni sinni.

Miðl­ar­inn TD Ameritrade sagð­ist einnig hafa lokað fyrir ákveðna fjár­mála­gern­inga tengdum leikja­sal­anum, þar sem verð­þró­unin væri úr takti við grunn­lög­mál mark­að­ar­ins.

Skiptar skoðanir um athæfið

Stríð Reddit-fjár­fest­anna gegn vog­un­ar­sjóð­unum hefur fengið bæði hrós og gagn­rýni úr óvæntum áttum. Fjár­festir­inn Michael Burry, sem er frægur fyrir að hafa grætt á fjár­mála­hrun­inu árið 2008 með umfangs­miklum skort­sölumog var umfjöll­un­ar­efni Hollywoodmyndarinnar The Big Short, gagn­rýndi hluta­bréfa­kaupin í GameStop í færslu sem hann deildi á Twitter á mið­viku­dag­inn, en eyddi svo mín­útum seinna. Í færsl­unni sagði hann kaupin vera „ónátt­úru­leg, sturluð og hættu­leg“ og hvatti hann yfir­völd til að sker­ast í leik­inn.

Alex­andria Ocasio-Cortez, þing­kona demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum, sagði það hins vegar vera kald­hæðn­is­legt að sjá hluta­bréfa­brask­ara sem væru vanir að veðja á efna­hags­lífið kvarta undan spjall­borðum þar sem veðjað væri á hluta­bréfa­mark­aðnum, í Twitter-færslu sem hún birti á mið­viku­dag­inn. Í gær for­dæmdi hún einnig ákvörðun Robinhood um að loka á allar fjár­fest­ingar í GameStop og krafð­ist skýr­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár