Evrópu allri stefnt í hættu með árás á kjarnorkuver

Rúss­neskar her­sveitir hafa náð Zaporizhzhia-kjarn­orku­ver­inu, stærsta kjarn­orku­veri Úkraínu sem og allrar Evrópu, á sitt vald. Eldur kvikn­aði í kjarn­orku­ver­inu í árásinni í nótt og hafa Rússar verið sak­aðir um kjarn­orku­hryðju­verk.

Rússneskar hersveitir eru sagðar hafa vísvitandi látið stórskotahríð dynja á Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í nótt.
Rúss­neskar her­sveitir eru sagðar hafa vís­vit­andi látið stór­skota­hríð dynja á Zaporizhzhia-kjarn­orku­ver­inu í nótt. Mynd: EPA

Rúss­neskar her­sveitir eru sagðar hafa vís­vit­andi látið stór­skota­hríð dynja á Zaporizhzhia-kjarn­orku­ver­inu í Úkraínu í nótt. Eldur kvikn­aði í rann­sókn­ar­stofu sem og bygg­ingu við kjarn­orku­verið sem notuð er til þjálf­unar starfs­fólks, og log­aði hann klukku­stundum saman áður en tókst að slökkva hann.

Þó tek­ist hafi að ráða nið­ur­lögum elds­ins og að kjarna­ofnar vers­ins séu ekki taldir í hættu er málið litið mjög alvar­legum augum. Um að ræða fyrsta atvikið þar sem ráð­ist hefur verið á kjarn­orku­ver í stríði með þessum hætti sam­kvæmt Volodímír Zel­en­skí, for­seta Úkraínu, sem sakar Rússa um kjarn­orku­hryðju­verk.

Starfs­fólk kjarn­orku­vers­ins er enn að störfum og gætir öryggis þess. Aukin geisla­virkni hefur ekki mælst í nágrenni vers­ins enn sem komið er, en búið er að skrúfa niður í starf­semi kjarnakljúfa vers­ins og getur það leitt til þess að tals­verð geisla­virkni leki út í umhverfið, að því er fram kemur í umfjöllun Guardian. Sé ekki vel að gætt gæti orðið kjarn­orku­slys á stærð við það sem gerð­ist í Tsjernóbil, ef ekki stærra.

Fram­kvæmda­stjóri Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, Jens Stol­ten­berg, hefur for­dæmt kæru­leysi Rússa í árásinni og krefst þess að þeir leggi niður vopn.

Þá hefur Boris Johnsson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, kallað eftir neyð­ar­fundi í Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna máls­ins, en í til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­sæt­is­ráð­herr­ans sakar hann Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta um að stofna allri Evrópu í hættu með árásinni á kjarn­orku­verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár