Fyrrverandi ráðherra VG „krefst þess“ að jökulsárnar í Skagafirði verði áfram í vernd

Jón Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra Vinstri grænna, segir flokk­inn hafa verið stofn­aðan um verndun jök­ulsánna í Skaga­firði og ann­arra dýr­mætra nátt­úru­verð­mæta. Það komi því „sorg­lega á óvart“ að sjá kúvend­ingu í mál­inu.

Jökuslá Austari er á vatnasviði Héraðsvatna. Í henni er áformaður virkjunarkostur sem meirihlutinn vill færa úr vernd í biðflokk.
Jökuslá Austari er á vatna­sviði Hér­aðs­vatna. Í henni er áform­aður virkj­un­ar­kostur sem meiri­hlut­inn vill færa úr vernd í bið­flokk. Mynd: Landvernd

„Í raun hafa Hér­aðs­vötnin verið eitt sterkasta flagg Vinstri-grænna og ann­arra nátt­úru­vernd­ar­sinna í nátt­úru­vernd­ar­málum,“ segir Jón Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs. „Vernd jök­ulsánna í Skaga­firði og ann­arra dýr­mætra nátt­úru­vætta lands­ins var eitt af þeim mála¬sviðum sem Vg var stofnað um í upp­hafi.“

Í með­förum verk­efn­is­stjórnar þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar var vernd­ar­gildi vatna­svæða Hér­aðs­vatna metið eitt það mesta á land­inu og lagði hún til að virkj­ana­kostir sem þar voru fyr­ir­hug­aðir færu í vernd­ar­flokk áætl­un­ar­innar. Í þeim flokki eru þeir í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem lögð hefur ítrekað verið fram á Alþingi frá árinu 2016 en eru færðir í bið­flokk sam­kvæmt breyt­inga­til­lögum meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar sem skil­aði áliti sínu í síð­ustu viku. Greidd verða atkvæði um málið á Alþingi í dag, á síð­asta degi þings­ins.

Í grein sem Jón ritar í Morg­un­blaðið í dag, „með djúpri hryggð í hjarta“ í „nafni bar­átt­unnar fyrir friðun Jök­ulsánna“ eins og hann orðar það, rifjar hann upp að það hafi verið öfl­ugur þing­manna­hópur, m.a. með núver­andi for­sæt­is­ráð­herra inn­an­borðs, sem flutti ítrekað til­lögur um friðun Jök­ulsánna í Skaga­firði. „Það kemur því sorg­lega á óvart að nú skuli rík­is­stjórn undir for­ystu VG hafa kúvent í nátt­úru­vernd­ar­málum og sett friðun Jök­ulsánna í Skaga­firði í upp­nám. Faðmlög og dýrar yfir­lýs­ingar áttu sér ekki mikla inni­stæðu. Tillagan sem nú er verið að keyra í gegnum alþingi þessa dag­ana um svo­kall­aða ramma­á­ætlun er döpur.“

Tillaga meiri­hlut­ans um að fella Hér­aðs­vötnin úr vernd­ar­flokki og flytja í bið­flokk „til frek­ari virkj­un­arund­ir­bún­ings“ gangi þvert á grund­vall­ar­stefnu VG og „digrar yfir­lýs­ingar“ og ára­tuga bar­áttu. „Fleiri dýrar nátt­úruperlur eru undir í land­inu sem héldu sig vera hólpnar.

Verndunin margítrekuð í samþykktum VG

Jón rifjar enn­fremur upp að verndun Jök­ulsánna hafi verið marg­ít­rekuð í lands­sam­þykktum VG og stað­fest m.a. með þings­á­lyktun um frið­lýs­ingu sem lögð var fram á Alþingi af þá stórum hópi þing­manna flokks­ins árið 2008. Katrín Jak­obs­dóttir, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var meðal þeirra.

Í til­lög­unni sagði m.a.: „Augu æ fleiri eru að opn­ast fyrir verð­mæti ósnort­innar nátt­úru og ábyrgð okkar gagn­vart kom­andi kyn­slóðum. Náttúran á sinn eigin sjálf­stæða rétt. Við höfum hana að láni frá kom­andi kyn­slóðum.“ Einnig: „Jök­ulsárnar í Skaga­firði eru mik­il­vægar fyrir líf­kerfi hér­aðs­ins frá jöklum til sjávar. Vötnin hafa ekki aðeins mótað skag­firska nátt­úru heldur einnig skag­firska menn­ingu og dag­legt líf. Þau eru lífæð Skaga­fjarðar.“

Því fag­lega mati verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar að setja ætti virkj­ana­kosti í Hér­aðs­vötnum í vernd­ar­flokk sé alþingi nú „að hnekkja með póli­tískum hrossa­kaupum“.

Í nið­ur­lagi greinar sinnar skrifar Jón: „Við unn­endur Jök­ulsánna í Skaga­firði krefj­umst þess að vatna­svið Hér­aðs­vatna, Jök­ulsárnar í Skaga­firði, verði áfram í vernd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár