Einsleitnin

Í búð­ar­glugga við Læder­stræde, einni elstu götu Kaup­manna­hafnar, fast við Strikið, standa þrjár ber­strípaðar gínur. Pappír hefur verið límdur innan á rúður ann­arra glugga versl­un­ar­innar. LOKAÐ, stendur á dyr­unum. Kauptu mig, stendur á þarnæsta húsi.

Það er ,,ríf­andi gangur“ í Kaup­manna­höfn. Bygg­inga­kran­arnir sveifl­ast ótt og títt, nýbygg­ingar spretta upp eins og gorkúlur, atvinnu­leysi er vart mæl­an­legt og ferða­mönnum fjölgar ört . Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana verður tíð­rætt um hve vel gangi ,,der sand­elig gang i den“ segir ráð­herr­ann þegar rætt er við hann í fjöl­miðlum. Í nýlegu blaða­við­tali sagð­ist Lars Løkke sjá stöðugan straum ferða­manna í nágrenni heim­ilis síns þar sem hann býr, rétt við Nýhöfn­ina, og alls staðar væri mikið að gera. Ekki er þó allt sem sýn­ist.

Lang­flestir ferða­menn sem heim­sækja Kaup­manna­höfn leggja leið sína í Nýhöfn­ina. Daglega rölta tug­þús­undir fólks um þennan gamla hafn­ar­kant þar sem úir og grúir af veit­inga­stöðum og börum. En þannig hefur það ekki alltaf verið. Langt fram eftir síð­ustu öld voru far­menn mest áber­andi á bör­unum í Nýhöfn­inni og stundum róstu­samt þegar sló í brýnu. Sum þess­ara gömlu verts­húsa eru enn til staðar en nú eru það ferða­menn sem þar klingja glösum og lítið um pústra. En Nýhöfnin var líka þekkt fyrir annað, það voru húð­flúr­stof­urnar, sem voru fjöl­margar.

Meðal sjó­manna var vin­sælt að láta tattó­vera sig, eins og það er kallað, og margan sæfar­ann prýddi akk­eri eða björg­un­ar­hringur á upp­hand­legg þegar heim var komið. Margir not­uðu tæki­færið og létu líka tattó­vera, t.d undir akk­erið, nafn kærust­unnar. Ólíkt tattú­inu end­ast kærustu­sam­bönd ekki alltaf ævina út og margur mað­ur­inn hefur því borið nafn Gunnu á hand­leggnum þótt hann hafi svo kvænst henni Siggu. Tattúið er, eins og alkunna er, mjög vin­sælt og lík­lega aldrei verið vin­sælla en nú um stundir og í borgum og bæjum má yfir­leitt finna margar tattú­stofur. Þannig er það líka í Kaup­manna­höfn. En þær eru ekki lengur í Nýhöfn­inni, þar er í dag ein­ungis ein húð­flúr­stofa, Tattoo Ole.

Sú elsta á Norðurlöndum

Tattoo Ole, sem var opnuð árið 1884 er elsta starf­andi húð­flúr­stofa á Norð­ur­löndum og kannski í heim­inum öllum. Hún er til húsa í Nýhöfn númer 17, og þar er hvorki hátt til lofts né vítt til veggja, 30 fer­metra kjall­ara­her­bergi. Þekkt­asti við­skipta­vinur stof­unnar, að minnsta kosti í augum Dana, er Friðrik IX kon­ungur Dan­merkur, faðir Mar­grétar Þór­hildar. Banda­ríski rit­höf­und­ur­inn John Irving fékk hug­mynd­ina að bók­inni ,,Until I find you“ eftir að hafa séð tattú­stof­una. Þótt stofan sé gömul og rót­gróin á þessum stað eru nú blikur á lofti varð­andi rekst­ur­inn. Eigandi húss­ins númer hefur sagt upp leigu­samn­ingum við Tattoo Ole. Ástæðan er sú að eig­and­inn, sem rekur stað­inn Brass­erie Nyhavn 17 telur sig þurfa að stækka eld­húsið og annað pláss í hús­inu er þegar lagt undir veit­inga­stað­inn. Majbritt Petersen eig­andi Tattoo Ole (kallar sig Lille-Ole) segir það dap­ur­legt að lítil fyr­ir­tæki, eins og sitt, hrökk­list burt úr miðbæ Kaup­manna­hafnar og í stað­inn komi enn einn veit­inga­stað­ur­inn, eða verslun sem sé hluti alþjóð­legrar keðju sem finn­ist í öllum heims­ins borgum og bæjum. Og spyr ,,eru kín­verskir ferð­mann að koma til Kaup­manna­hafnar til að borða á McDonalds eða fara í H&M ?“ Og svarar sjálf ,,held ekki.“

Leiguverðið hrekur þá litlu á brott

Sagan af Tattoo Ole húð­flúr­stof­unni er dæmi um það sem er að ger­ast og ekki bundin við Kaup­manna­höfn þótt í þessum pistli sé sjónum beint þangað. Dag­blaðið Berl­ingske fjall­aði nýlega um það sem blaðið kall­aði ,,Búða­dauð­ann í Kaup­manna­höfn“ og fyrir þá sem vilja halda í fjöl­breytni á þessu sviði er það ekki upp­lífg­andi lesn­ing. Þrátt fyrir að vel gangi í Kaup­manna­höfn og þangað streymi ferða­menn sem aldrei fyrr leggja æ fleiri smá­versl­anir upp laupana og sama gildir um veit­inga­staði. Smá­fugl­arnir (eins og Berl­ingske orð­aði það) ráða ekki við síhækk­andi leigu­verð og færa sig fjær mið­borg­inni eða leggja hrein­lega upp laupana. Tómu og lok­uðu búð­irnar í Læder­stræde sem áður var nefnt eru dæmi um ástandið.

Í umfjöllun Berl­ingske kom fram að um síð­ustu mán­aða­mót var fimm pró­sent versl­un­ar­hús­næðis í mið­borg Kaup­manna­hafnar autt. Lokað og læst. Fyrir utan kaffi- og veit­inga­húsin þar sem skellt hefur verið í lás. Ástæð­urnar eru áður­nefndar hækk­anir á leigu­verði og enn­fremur að fjár­sterkir eigna­menn og fyr­ir­tæki hafa keypt upp heilu húsa­lengj­urnar í því skyni að rífa það gamla og byggja nýtt sem svo verður selt, eða leigt út. Þekkt erlend versl­un­ar­fyr­ir­tæki hafa líka sóst mjög eftir hús­næði til kaups og bjóða hátt verð.

Breytingarnar á Strikinu

Fyrir nokkru var hér í Kjarn­anum fjallað um þær breyt­ingar sem orðið hafa á Strikinu, göngu­göt­unni í mið­borg Kaup­manna­hafnar. Þar hefur litlum sér­versl­unum fækkað mjög á síð­ustu árum og eru nú nán­ast horfnar. Í stað­inn eru komnar svo­kall­aðar alþjóð­legar versl­anir , Prada, Louis Vutton og fleiri af því tagi. Nákvæm­lega sömu versl­an­irnar og finna má í öllum stór­borgum heims. Sömu sögu er að segja af veit­inga­stöð­unum. Í fyrra var skellt í lás á veit­inga­staðnum Parnas í mið­borg­inni, sá staður var opn­aður á fjórða ára­tug síð­ustu aldar. Cafe a Porta sem var opn­aður árið 1792 var lokað árið 2012 og þar, fast við Magasin du Nord, er kom­inn McDonalds ham­borg­ara­staður. Jazzhouse, vin­sæll tón­list­ar­staður, sem stað­settur var í mið­borg­inni flutti um síð­ast­liðin ára­mót upp á Norð­ur­brú, fram­kvæmda­stjór­inn sagði að húsa­leigan hefði hækkað svo mikið að engin leið hefði verið að halda rekstr­inum áfram og því var brugðið á það ráð að flytja. Og fyrir hálfum mán­uði eða svo var skellt í lás á Skind­buk­sen, Brókinni, næst elsta verts­húsi Kaup­manna­hafnar. Enginn veit hvað verður um þann stað, þótt nýr eig­andi hafi lýst því yfir ,, að Brókin verði að sjálf­sögðu til áfram.“

Netverslun eykst stöðugt

Fyrir til­tölu­lega fáum árum var net­verslun til­tölu­lega óþekkt fyr­ir­bæri. Þannig er það ekki lengur. Verslun á net­inu eykst ört og það hefur haft geysi­mikil áhrif sem ekki sér fyrir end­ann á. Þessir breyttu versl­un­ar­hættir bitna ekki síður á stórum og þekktum versl­unum en þeim minni. Í umfjöllun dag­blaðs­ins Politi­ken um þessi mál, fyrir skömmu, full­yrtu danskir sér­fræð­ingar á sviði versl­unar og við­skipta að þótt net­versl­unin væri þegar orðin mikil væri það bara byrj­unin. Hún myndi halda áfram að aukast og ætti eftir að hafa gríð­ar­leg áhrif. Margar stór­versl­anir merkja að færri við­skipta­vinir koma til að versla, veltan minnkar og þess­ari þróun verður ekki snúið við. Þessar spár bjarga hins­vegar ekki litlu versl­un­unum sem eiga í vök að verj­ast. Eitt voru allir við­mæl­endur Politi­ken sam­mála um: Eins­leitnin hvað varðar versl­anir og veit­inga­staði hefur auk­ist og fátt bendir til ann­ars en sú (öfug) þróun haldi áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár