Rauðar tölur lækkunar í kauphöllinni

Tugir millj­arða guf­uðu upp úr í kaup­höll­inni í gær, á miklum lækk­un­ar­degi í við­skiptum.

Úrvals­vísi­tala íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins lækk­aði um 3,05 pró­sent í gær, sem telst vera mikil lækkun á einum degi, í sögu­legum sam­an­burði. Mest var lækk­unin á bréfum í Icelandair Group, um 4,89 pró­set í við­skiptum upp á ríf­lega 1,3 millj­arða króna. Eins og Kjarninn greindi frá í gær­morgun

http://kjarninn.is/skyring/2016-09-29-gengisstyrking-og-haekkun-oliu-getur-skapad-okyrrd-i-lofti/

þá hefur mark­aðsvirði Icelandair hrapað niður að und­an­förnu, en um 70 millj­arðar hafa gufað upp af verð­mæti félags­ins frá því í apríl á þessu ári. Félagið er nú tæp­lega 120 millj­arða virði en í apríl var það um 190 millj­arða virði.

Katrín Olga Jóhann­es­dóttir, stjórn­ar­maður félags­ins og for­maður Við­skipta­ráðs, var ein þeirra sem seldi bréf í félag­inu í dag, á geng­inu 24. Samtals seldi hún 400 þús­und hluti, að virði um 9,6 millj­óna króna.

Önnur félög lækka líka

Næst mesta lækk­unin var á Marel, rúm­lega fjögur pró­sent. Önnur félög lækkuð skarpt, á bil­inu 1,5 til þrjú pró­sent flest.

En hvað veldur? Það er ekki gott að segja, enda geta ýmsir þættir haft áhrif á verð­bréfa­mark­aði. En greini­legt er að meiri nei­kvæðni er hjá fjár­festum nú en á fyrri hluta árs­ins. Styrking krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum er einn þáttur sem við­mæl­endur Kjarnans hafa nefnt, en ýmsir hafa áhyggjur af því að hún sé þegar farin að þrengja að útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins og muni einnig með tím­anum hafa heft­andi áhrif á ferð­þjón­ust­una.

Tvöföldun verðbólgunnar

Til við­bótar kemur svo hin óvenju­lega tvö­földun á verð­bólg­unni, vegna mis­taka Hagstofu Íslands. Í gær hækk­aði verð­bólga úr 0,9 pró­sent í 1,8 pró­sent, með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á vaxta­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði og aug­ljós­lega einnig á verð­bólgu­vænt­ingar.

Áður en mis­tök Hag­stof­unnar komu fram, bjugg­ust fjár­festar jafn­vel við því að Seðla­bank­inn myndi lækka vexti á nýjan leik, en meg­in­vextir hans voru lækk­aði rúr 5,75 pró­sent í 5,25 pró­sent á síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­degi. Telja verður ólík­legt að Seðla­bank­inn lækki vexti næst, og frekar spurn­ing hvort þeir verði hækk­aðir á nýjan leik, þrátt fyrir að verð­bólgan sé enn nokkuð undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði.

Velta í hluta­bréfa­við­skiptum var tölu­vert mikil, og greini­lega að margir fjár­festar seldu bréf í dag. Næst mesta veltan var með bréf í Eimskip, sem lækk­aði um 1,64 pró­sent í 500 millj­óna króna við­skiptum.

Á sama tíma og hluta­bréf haf fallið í verði þá hefur gengi íslensku krón­unnar haldið áfram að styrkj­ast gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Banda­ríkja­dalur kostar nú 114 krónur, evran 128 krónur og pundið 148 krónur. Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur svo hækkað skarpt, á síð­ustu tveimur dögum, eða um tæp­lega tíu pró­sent. Ástæðan er óform­legt sam­komu­lag OPEC ríkja um að draga úr fram­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár