Gengisstyrking og hækkun olíu geta valdið vandræðum

Mark­aðsvirði Icelandair Group hefur fallið hratt upp á síðkastið, en líf­eyr­is­sjóðir almenn­ings eru stærstu eig­endur félags­ins.

Hinn 16. apríl á þessu ári var Icelandair Group 189 millj­arða króna virði, en gengi bréfa félags­ins var þá tæp­lega 38. Nú, rúm­lega fimm mán­uðum síðar, hefur mark­aðsvirðið minnkað um 67 millj­arða króna en gengi bréfa félags­ins stóð í 24,5 við lok mark­aða í gær, eftir að hafa lækkað, annan dag­inn í röð, um 3,16 pró­sent. Mark­aðsvirði félags­ins er í dag ríf­lega 122 millj­arðar króna.

Rauðar tölur

Rauðar tölur lækk­ana hafa sést á hluta­bréfar­mark­aðnum að und­an­förnu, en Icelandair hefur lækkað meira en flest önnur félög.

Þetta stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum, sam­hliða miklum vexti og upp­gangi í ferða­þjón­ust­unni á und­an­förnum fimm ár. Eigið fé félags­ins í lok árs í fyrra nam 456 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 53 millj­örðum króna. Rekstr­ar­tekjur félags­ins námu 1,3 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða um 150 millj­örðum króna. Handbært fé frá rekstri í lok árs í fyrra nam 245 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 30 millj­örðum króna. Fjár­hagur þess er því sterkur.

Í lok ann­ars árs­fjórð­ungs þessar árs, sendi félagið frá sér til­kynn­ingu til kaup­hallar þar sem haft er eftir Björgólfi Jóhanns­syni, for­stjóra, að þrátt fyrir góða afkomu í rekstri þá sé nokkur óvissa á mörk­uðum, sem hafi meðal ann­ars leitt til lægra með­al­verðs flug­far­gjalda. Var afkomu­spáin fyrir árið í ár meðal ann­ars færð niður sökum þessa. „Við færum nú niður afkomu­spá okkar fyrir árið, vegna þeirrar óvissu sem er á mörk­uðum. Hryðju­verk í Evrópu og nið­ur­staða atkvæða­greiðslu um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu hafa valdið lækkun með­al­far­gjalda og skapað óvissu sem gerir rekstr­ar­skil­yrði flug­fé­laga erf­ið­ari. Fjár­hags­staða félags­ins er sterk og sveigj­an­leiki félags­ins er mik­ill þrátt fyrir mik­inn vöxt á und­an­förnum árum. Félagið er því vel í stakk búið til þess að bregð­ast við þeim áskor­unum sem tíma­bundin ókyrrð á mörk­uðum veldur og jafn­framt til þess að grípa þau tæki­færi sem munu skap­ast til lengri tíma,“ sagði Björgólfur í til­kynn­ingu.

Icelandair gerir upp í Banda­ríkja­dal og hefur langstærstan hluta tekna sinna erlendis frá. Sveiflur á gengi krón­unnar geta haft nokkur áhrif á afkomu félags­ins, þó félagið verji sig fyrir sveiflum með geng­is­vörnum á fjár­mála­mark­aði. Styrking krón­unnar á und­an­förnum miss­erum hefur valdið nokkrum áhyggjum hjá fyr­ir­tækjum í útflutn­ingi og ferða­þjón­ustu, og eru grein­endur á mark­aði, sem Kjarninn ræddi við, sam­mála um að mikil styrk­ing krón­unnar hafi haft nei­kvæð áhrif á gengi Icelandair á mark­aði.

Auk þess hefur sam­keppni í flugi til og frá Íslandi harðnað nokkuð, með jákvæðum áhrifum fyrir neyt­endur, hvað varðar verð og val­mögu­lega, en fyrir rekstur ein­staka flug­fé­laga getur það þýtt minni fram­legð, í það minnsta á meðan sam­keppnin er hvað virk­ust.

Styrking krón­unnar er þó fyrst og fremst áhættu­þáttur fyrir útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins í heild, einkum ef gengi hennar styrk­ist mikið meira gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Mest hefur styrk­ingin verið gagn­vart pund­inu, eða 24,5 pró­sent, en það hefur hríð­fallið í verði eftir Brexit-kosn­ing­una í sumar.

Olíuáhætta

Flug­fé­lög eru sér­stak­lega næm fyrir olíu­verði, en það hefur afar hag­felld þróun á olíu­mörk­uðum fyrir flug­fé­lög á und­an­förnum miss­erum, þar sem olíu­verð hefur lækkað mikð. Árið 2014 fór olíu­verð hæst í 110 Banda­ríkja­dali á tunnu af hrá­olíu, en í febr­úar á þessu ári fór það í 26 Banda­ríkja­dali á tunn­una. Lækkunin hefur því verið bæði hröð og mikil.

Mörg olíu­fram­leiðslu­ríki hafa þurft að glíma við efna­hags­legar þreng­ingar vegna þess­arar þró­unar, og má nefna sér­stak­lega Noreg, Rússland, Brasilíu, Venes­ú­ela og Nígeríu því til stað­fest­ingar.

Eins og greint var frá í gær þá komust OPEC-ríkin fjórtán, með Sádi-Arabíu sem stærsta ein­staka olíu­fram­leiðslu­ríkið í broddi fylk­ingar, að óform­legu sam­komu­lagi um að draga úr olíu­fram­leiðslu til að stuðla að meira jafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar á mark­aði. Þetta leiddi strax til skarprar hækk­unar á olíu, og hefur hún hækkað um tæp­lega sjö pró­sent, sé mið tekið af verði á tunn­unni af hrá­olíu í Banda­ríkj­unum. Hún kostar nú tæp­lega 48 Banda­ríkja­dali.

Lyk­ilá­kvöðun OPEC ríkja, á form­legum vett­vangi sam­tak­anna, verður tekin í nóv­em­ber, og má gera ráð fyrir að sú ákvörðun hafi dýpri áhrif á mark­að­inn heldur en fréttir af óform­legu sam­komu­lagi þeirra fyrir tveimur dögum. Ástæðan er meðal annar sú, að fund­ur­inn hefur meira vægi og hafa ákvarð­anir sem næst sam­staða um, haft víð­tæk áhrif á mark­aði til fram­tíðar litið. Náist sam­komu­lag um að draga veru­lega úr fram­leiðslu, gæti það haft þau áhrif að olíu­verð muni hækka jafnt og þétt og verða nær því sem oft hefur verið, í kringum 60 til 80 Banda­ríkja­dali á tunn­una. Í Noregi hefur verið rætt um að olí­iðn­að­ur­inn í land­inu þurfi að búa við olíu­verð sem er að minnsta kosti 65 Banda­ríkja­dalir á tunn­una, svo að rekst­ur­inn gangi vel eða sé stöðugt jákvæður.

Eitraður kokteill

Ljóst má vera að frek­ari styrk­ing á gengi krón­unnar og mögu­leg hækkun á heims­mark­aðs­verði olí­unnar, getur haft slæm áhrif á mark­aðsvirði Icelandair, vegna versn­andi rekstr­ar­af­komu. Vandi er þó um þessi mál að spá, eins og sagan sýnir. Gengi krón­unnar sveifl­ast mikið, fram og til baka, og það sama má segja um heims­mark­aðs­verð á olíu. Þetta eru áhrifa­miklir þættir þegar kemur að verð­bólgu­horfum á Íslandi og rekstri fyr­ir­tækja almennt.

Horfur fyrir íslenska ferða­þjón­ustu eru að mati flestra góðar, og pant­anir fyrir næsta sumar benda til þess að vöxt­ur­inn verði mik­ill, frá metár­inu sem nú er langt liðið á. Talið er að 2,2 millj­ónir erlendra ferða­manna muni sækja landið heim á næsta ári, en á þessu ári fari fjöld­inn yfir 1,7 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár