Formaður bæjarráðs á Nesinu víkur sæti vegna sölu á elliheimili

Sel­tjarn­ar­nes­bær ætlar að selja hús sem er nýtt til að veita eldri borg­urum þjón­ustu. Salan á hús­inu er ekki óum­deild og telur bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar að ríkið ætti að kaupa það í stað þess að selja það til einka­að­ila.

Víkur sæti vegna Stefnis
Víkur sæti vegna Stefnis Formaður bæj­ar­ráðs, Magnús Örn Guð­munds­son, hefur vikið sæti hjá Sel­tjarn­ar­nesbæ vegna sölu á húsi sem hýsir eldri borg­ara en þar er dag­vistun og hjúkrarun­heim­ili. Ástæðan er sú að Stefnir, þar sem hann vinnur, gæti tengst mögu­legu kauptil­boði, Mynd: Heimildin Tómas

Formaður bæj­ar­ráðs á Sel­tjarn­ar­nesi, Magnús Örn Guð­munds­son, vék sæti þegar ákveðið var á fundi að hefja sölu­ferli á fast­eign sem hýsir dag­vistun bæj­ar­ins fyrir eldri borg­ara og hjúkr­un­ar­heim­ilið Seltjörn í lok síð­asta mán­aðar. Ástæðan er sú að hann er starfs­maður Stefnis, sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Arion banka, sem er meðal hlut­hafa í fast­eigna­fé­lögum sem skráð eru á mark­aði hér á landi. 

Magnús lagði fram sér­staka bókun um þetta á fund­inum: „Vegna starfa minna hjá Stefni hf., sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Arion banka, lýsi ég þegar mig van­hæfan til að fjalla um og ákvarða um sölu á fast­eign­inni Safna­tröð 1, sem hýsir hjúkr­un­ar­heim­ilið Seltjörn. Ég gegni starfi for­stöðu­manns skráðra verð­bréfa hjá Stefni en sjóðir í stýr­ingu hjá félag­inu gætu á hverjum tíma átt í þeim fjórum fast­eigna­fé­lögum sem skráð eru á hluta­bréfa­mark­aði. Þessi félög gætu verið meðal bjóð­enda í fast­eign­ina.“ Stefnir rekur sjóði sem fjár­festa í fast­eigna­fé­lögum eins og Eik og Reitum. 

Magnús …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Óvenjulegt hér á Fróni.
    Eru virkilega til heiðarlegir stjórnmálamenn?!?!?!
    Þú munt maður með meyrum, minn ágæti!?!?!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár