Úkraína gæti endað í tveimur hlutum líkt og Kórea

Talið er að Rússland gæti haft hug á því að skipta Úkraínu í tvennt í ljósi þess að her­takan gengur ekki eins vel og von­ast var til. Hvorki virð­ist ganga né reka í árásum Rússa á höf­uð­borg­ina Kænugarð, sem staðið hafa yfir í rúm­lega mánuð.

Budanov segir hætta á að sköpuð verði eins konar Kórea í Úkraínu, þar sem landinu verði skipt á milli hernumdra og óhernumdra svæða.
Budanov segir hætta á að sköpuð verði eins konar Kórea í Úkraínu, þar sem land­inu verði skipt á milli hernumdra og óhernumdra svæða. Mynd: EPA

Yfir­maður leyni­þjón­ustu úkra­ínska hers­ins hefur varað við því að Rússar gætu haft áætl­anir uppi um að skipta Úkraínu í tvennt í ljósi þess að verr gangi að her­nema landið allt en von­ast var til. Þannig virð­ist rúss­neskar her­sveitir nú ein­beita sér að svæðum í austur- og suð­ur­hluta Úkraínu og hörfa frá þar sem verr gengur, svo sem í höf­uð­borg­inni Kænu­garði.

Kyrylo Budanov segir því hættu á að sköpuð verði eins konar Kórea í Úkraínu, þar sem land­inu verði skipt á milli hernumdra og óhernumdra svæða. Úkraína ætlar þó ekki að láta þar við sitja, og er haft eftir Budanov að fljót­lega eigi að hefja skæru­liða­hernað á þeim svæðum sem Rússar hafa þegar náð á sitt vald.

Rúmlega mán­uður er síðan inn­rás Rúss­lands í Úkraínu hófst, en er hún talin ganga mun hægar og erf­iðar fyrir sig en ráða­menn í Kreml höfðu vonað. Sér­fræð­ingar telja að um sé að kenna meðal ann­ars bágum und­ir­bún­ingi her­manna og lélegum tækja­bún­aði, og er þol­in­mæði Vla­dimírs Pútín Rúss­lands­for­seta sögð á þrotum, en hann er til að mynda sagður hafa rekið fjöl­marga her­for­ingja og kennt þeim um hæga­gang­inn.

Nú eru hins vegar teikn á lofti um að hann sé hættu að eygja von um algjöra yfir­töku og ætli þess í stað að ein­beita sér að svæðum í austur- og suð­ur­hluta Úkraínu sem þegar eru að miklu leyti komin undir stjórn Rússa.

Fregnir hafa til að mynda borist af því að her­sveitir Rússa sem staddar voru norðan við höf­uð­borg­ina Kænugarð séu að horfa í gegnum Chernobyl, sem Rússar náðu á sitt vald snemma í inn­rásinni, og til Hvíta-Rúss­lands. Þó er ekki úti­lokað að um sé að ræða ein­hvers konar end­ur­skipu­lagn­ingu og að her­sveit­irnar snúi tví­efldar til baka til að halda áfram árás­unum á Kænugarð, sem hingað til hafa borið tak­mark­aðan árangur. Í öllu falli er ljóst að tals­verðra áherslu­breyt­inga er þörf ef halda á áfram áætl­unum um að her­taka Úkraínu í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár