Mikill áhugi á Íslandi frá Rússlandi og Asíu

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur lagt áherslu á að vekja athygli á norð­ur­slóða­málum. Hann segir flestar þjóðir heims vera að líta til svæð­is­ins.

„Ég finn fyrir mjög miklum áhuga og ég er auð­vitað búinn að eiga fjölda tví­hliða funda frá því að ég tók við sem ráð­herra, sem er mik­il­vægt til þess að fá að heyra frá fyrstu hendi hvaða áherslur þjóð­ríki hafa og stefnur og straumar.“

Þetta sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut þegar þeir ræddu um mál­efni norð­ur­slóða. Guð­laugur Þór sagði að áhugi Kínverja og Rússa á mála­flokknum væri þekktur en auk þess væri mik­ill áhugi í Asíu í heild. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Guð­laugur Þór segir í þætt­inum að hann hafi hafa lagt áherslu á að vekja athygli á norð­ur­slóð­ar­málum víðar, bæði gagn­vart Evrópu og stærstu ríkjum Norður-Ameríku, Banda­ríkj­unum og Kanada. Hann segir flestar þjóðir heims vera að líta til svæð­is­ins og fylgj­ast með þeirri þróun sem á sér stað á því. Þar af leið­andi sé litið til Íslands vegna stað­setn­ingar lands­ins.

[adspot]Eft­ir­minni­leg­asti fundur sem hann hafi átt um mál­efnið hafi verið við ráð­herra frá Singapúr.„Þeirra stefna gagn­vart þessu er tvenns konar: ann­ars vegar að hækka allt landið sitt um einn og hálfan metra og hins vegar vilja þeir njóta góðs af þessum sigl­inga­leiðum sem eru að opn­ast. Það var þeirra stefna í hnot­skurn.“

Utan­rík­is­ráð­herra segir að þegar ný sigl­inga­leið opn­ist, líkt og sé að ger­ast í gegnum norð­ur­skautið, þá þýði það óhjá­kvæmi­lega aukin tæki­færi til við­skipta.

[links]Til þeirra tæki­færa sé litið um allan heim. „Flestir, ef ekki allir von­andi, nálg­ast þetta með þeim hætti að vilja sjá þarna sjálf­bærni og vilja ekki sjá þarna þætti eins og umhverf­isslys eða meng­un­ar­slys eða neitt slíkt, sem er ein ógnun gagn­vart okkur og við verðum að líta sér­stak­lega til. Til þess að svo megi verða þá verður að vera sam­staða á milli ríkja að það séu alþjóða­lög sem þarna gilda og að þetta sé svæði sem við sjáum ekki neina slíka hluti ger­ast sem við viljum ekki sjá.“

Í þætt­inum ræddi Guð­laugur Þór einnig samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES), þriðja orku­pakk­ann og Brexit, svo fátt eitt sé nefnt.

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár