Þriðjungur kjósenda Framsóknar og Sjálfstæðisflokks telur of marga fá hæli

Innan við einn af hverjum tíu kjós­endum Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks telur að of fáir hæl­is­leit­endur fái hér alþjóð­lega vernd og yfir þriðj­ungur þeirra telur of marga fá vernd. Mikill munur er á við­horfi eftir flokkum, menntun og aldri.

Nærri helm­ingur Íslend­inga, eða 45 pró­sent, telur að hæfi­legum fjölda flótta­manna sé veitt hæli hér á landi eins og staðan er í dag, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR. 30,9 pró­sent svar­enda tölu að ekki nógu margir fái hæli hér á landi en 24,1 pró­sent töldu of mik­inn fjölda flótta­manna fá hæli hér á landi.

Hærra hlut­fall karla er þeirrar skoð­unar að of margir fái hér hæli, en 28 pró­sent karla eru þeirrar skoð­unar en 20 pró­sent kvenna. Karlar eru einnig lík­legri til að þykja of fáir fái hér hæli, en 32 pró­sent karla eru þeirrar skoð­unar, en 30 pró­sent kvenna. Konur voru tölu­vert lík­legri en karlar til að telja að hæfi­lega margir flótta­menn fái hér hæl, 50 pró­sent á móti 40 pró­sent.

Það er einnig munur á skoð­unum fólks eftir aldri, menntun og stjórn­mála­skoð­unum. Þannig var yngra fólk lík­legra en eldra til að telja of fáa flótta­menn fá hæli hér á landi, en fólk á aldr­inum 50 til 67 ára var lík­leg­ast til að telja of marga flótta­menn fá hæli hér á landi, eða 35 pró­sent. 68 ára og eldri voru lík­leg­ust til þess að telja fjölda flótta­manna sem fá hæli hæfi­legan.

Helm­ingur þeirra sem höfðu háskóla­próf töldu að of fáir flótta­menn fái hér hæli, sam­an­borið við 26 pró­sent þeirra sem hafa fram­halds­skóla­próf og 15 pró­sent þeirra sem hafa grunn­skóla­menntun. 38 pró­sent þeirra sem hafa grunn­skóla­próf töldu að of margir flótta­menn fái hér hæli, en 27 pró­sent þeirra sem hafa fram­halds­skóla­próf og 9 pró­sent þeirra sem eru með háskóla­menntun.

Stuðn­ings­menn Pírata eru lík­leg­astir til að telja að of fáir flótta­menn fái hæli, 57 pró­sent. Aðeins sjö pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins og átta pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru þeirrar skoð­unar, en stuðn­ings­menn þess­ara flokka voru lík­leg­astir til þess að telja að of mörgum flótta­mönnum sé veitt hér hæli, 36 og 34 pró­sent. Jafn­framt voru stuðn­ings­menn þess­ara flokka lík­leg­astir til að telja fjölda flótta­manna hér­lendis hæfi­legan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár