Losun hafta besta mál ríkisstjórnar, Leiðréttingin það versta

Við­skipta­ráð hefur gert úttekt á efna­hags­legum áhrifum þeirra frum­varpa sem frá­far­andi rík­is­stjórn lagði fram. Bestu málin að þeirra mati eru losun hafta og afnám gjalda. Þau verstu eru kostn­að­ar­söm inn­grip á hús­næð­is­markað, t.d. Leið­rétt­ingin.

Leiðréttingin snérist að mestu um að 80,4 milljarðar króna voru færðir úr ríkissjóði til hluta þeirra Íslendinga sem voru með verðtryggð húsnæðislán á árunumu 2008 og 2009.
Leið­rétt­ingin snérist að mestu um að 80,4 millj­arðar króna voru færðir úr rík­is­sjóði til hluta þeirra Íslend­inga sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunumu 2008 og 2009. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Við­skipta­ráð Íslands telur að stór skref í átt að losun hafta, Grettistaki sem lyft var í neyslu­sköttum, lög um opin­ber fjár­mál, laga­breyt­ingar um bætt umhverfi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja og fækkun stofn­ana eða breyt­ingar á umhverfi þerra séu fimm bestu mál þeirrar rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks sem nú er að hverfa frá völdum. Þrjú verstu málin sem rík­is­stjórnin réðst í eru hins vegar kostn­að­ar­söm afskipti á hús­næð­is­mark­aði, nýir búvöru­samn­ingar og frum­vörp sem auka flækju­stig á reglu­verki. Þetta kemur fram íúttekt Við­skipta­ráðs á efna­hags­legum áhrifum allra laga­breyt­inga sem frá­far­andi rík­is­stjórn réðst í á kjör­tíma­bil­inu.

Við­skipta­ráð fór yfir öll frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar sem urðu að lögum og höfðu veru­leg efna­hags­leg áhrif. Um var að ræða 72 frum­vörp og ráðið gaf þeim ein­kunn á bil­inu -10 til +10.

Munar mest um haftalosun

Nið­ur­staðan var sú að 43 laga­frum­vörð höfðu jákvæð efna­hags­leg áhrif. Í grein sem Við­skipta­ráð hefur birt um nið­ur­stöð­una segir að þau fimm mál sem upp úr standi séu:

  1. Stór skref stigin í losun hafta með þeim fjórum frum­vörpum sem sam­þykkt voru í hafta­málum á kjör­tíma­bil­inu. Þar stendur upp úr að gerðir voru nauða­samn­ingar við kröfu­hafa, aflandskrónu­eign var girt af eða losuð, líf­eyr­is­sjóðum var hleypt út og loks voru höft losuð lít­il­lega í nú í haust og verða enn frekar losuð um kom­andi ára­mót.

  2. Grettistaki lyft í neyslu­sköttum þegar almenn vöru­gjöld voru afnumin á 630 vöru­flokkum, tollar afnumdir á allar vörur nema land­bún­að­ar­vörur og breyt­ingar gerðar á virð­is­auka­skatts­kerf­inu.

  3. Ný lög um opin­ber fjár­mál taka á þeim skorti á aga, áætl­ana­gerð, heild­stæðri hugsun og fram­tíð­ar­sýn í opin­berum fjár­málum sem ríkt hefur hér­lendis.

  4. Lög sem hækk­uðu end­ur­greiðslur vegna rann­sókna- og þró­unar, lög­festi skatta­lega hvata fyrir erlenda sér­fræð­inga sem hingað koma til að vinna og bætti rekstr­ar­um­hverfi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja með ýmsum öðrum hætti eru talin hafa bætt sam­keppn­is­hæfni Íslands í alþjóð­legri starf­semi.

  5. Fækkun sýslu­manns- og lög­reglu­emb­ætta, til­koma milli­dóms­stigs, aðskiln­aður sam­keppnis- og ein­ok­un­ar­rekst­urs Orku­veitu Reykja­víkur og sam­ein­ing tveggja stofn­anna í Mennta­stofnun er mikið fram­fara­skref að mati Við­skipta­ráðs.

Leiðréttingin og önnur kostnaðarsöm afskipti

Við­skipta­ráð gagn­rýnir líka nokkrar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar frá­far­andi og segir þrjú mál standa upp úr sem þau verstu.

Þar beri fyrst að nefna kostn­að­ar­söm afskipti á hús­næð­is­mark­aði sem ráðið telur vera þess eðlis að þau feli í sér aft­ur­för. Þau mál sem þar er átt við eru Leið­rétt­ingin, þegar 80,4 millj­örðum króna var dreift úr rík­is­sjóði til hluta Íslend­inga sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009, hækkun húsa­leigu­bóta, bygg­ing leigu­í­búða af hálfu hins opin­bera og nýtt stuðn­ings­kerfi vegna kaupa á fyrstu fast­eign, sem kynnt var á loka­metr­unum á starfs­tíma rík­is­stjórn­ar­innar. Í úttekt Við­skipta­ráðs segir: „Við lögð­umst gegn öllum þessum frum­vörpum sem fela í sér stór­aukin útgjöld hins opin­bera á hús­næð­is­markað fyrir lít­inn ávinn­ing vegna áhrifa til auk­innar skatt­heimtu og hækk­unar íbúða­verðs.“

Næst versta málið að þeirra mati var sam­þykkt nýrra búvöru­samn­inga sem festi land­bún­að­ar­kerfið í fjötra, skerði lífs­kjör almenn­ings og við­haldi lágri fram­leiðni í land­bún­aði.

Í þriðja lagi tekur Við­skipta­ráð að rík­is­stjórnin hafi flækt reglu­verk á kjör­tíma­bilin þrátt fyrir stefnu­yf­ir­lýs­ingu um hið gagn­stæða. Alls hafi 19 laga­frum­vörp verið sam­þykkt sem juku byrði vegna reglu­verks en tólf sem drógu úr henni. „Heilt yfir juku þessi laga­frum­vörp reglu­byrði íslensks atvinnu­lífs. Þetta er óheppi­legt í ljósi þess að íþyngj­andi reglu­verk bitnar fyrst og fremst á litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum, sem eru nauð­syn­leg fyrir áfram­hald­andi vöxt atvinnu­lífs­ins.“

Bjarni stóð sig best, Eygló verst

Við­skipta­ráð mat líka frammi­stöðu ein­stakra ráð­herra út frá þeim frum­vörpum sem þeir lögðu fram. Það kemur kannski lítið á óvart að sá ráð­herra sem lagði fram öll hafta­los­un­ar­frum­vörpin og þau sem snéru að afnámi vöru­gjalla og tolla, skorar lang­hæst: Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Að mati Við­skipta­ráðs voru jákvæð áhrif af frum­vörp­unum sem hann lagði fram jöfn heild­ar­á­hrifum allrar rík­is­stjórn­ar­innar.

Nei­kvæð­ustu áhrifin voru hins vegar af frum­vörpum Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár