44% íslenskra heimila með áskrift að Netflix

Tæpur helm­ingur íslenskra heim­ila er með áskrift að efn­isveit­unni Netflix, sam­kvæmt nýrri könnun Gallup. Félag rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði fer fram á að stjórn­völd jafni aðstöðu íslenskra efn­isveita.

44 pró­sent íslenskra heim­ila eru með áskrift að efn­isveit­unni Netflix sam­kvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir FRÍSK, félag rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði. Þrjú til fjögur pró­sent heim­ila eru einnig með áskrift að öðrum erlendum veitum, eins og Google Play og Amazon Prime Video.

Í frétta­til­kynn­ingu frá FRÍSK kemur fram að rétt um mán­uði áður en Netflix opn­aði form­lega á Íslandi, í des­em­ber 2015, hafi könnun sýnt að 22 pró­sent heim­ila væru með Netflix.

„Erlendar efn­isveitur á borð við Google Play og Netflix, sem hafa opnað fyrir þjón­ustu sína á Íslandi, sem og raf­rænar tón­list­ar­veitur á borð við Spotify og Google Music, greiða engan virð­is­auka­skatt eða önnur opin­ber gjöld hér á landi. Íslenski sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­að­ur­inn greiðir sam­an­lagt um 12 millj­arða króna árlega til hins opin­bera og skapar að lág­marki 1.300 árs­verk í land­inu (2.000 óbein árs­verk). Erlendar efn­isveitur borga ekk­ert og skapa engin árs­verk,“ segir í til­kynn­ingu frá FRÍSK.

Hall­grímur Krist­ins­son, stjórn­ar­for­maður FRÍSK, segir að félags­menn kvíði ekki sam­kepppni við erlendar efn­isveitur, en að slík sam­keppni þurfi að fara fram á jafn­rétt­is­grund­velli. „Álögur og kvaðir á inn­lenda aðila verða að lækka ellegar verður minna inn­lent efni í boði og við sitjum uppi með erlendar efn­isveitur og erlent efni. Rann­sóknir sýna að tæp 88% lands­manna telja mik­il­vægt að sýnt sé inn­lent sjón­varps- og kvik­mynda­efni. Það er því með öllu ótækt að erlendar efn­isveitur borgi hér engan virð­is­auka­skatt, skattur á tón­list og bókum sé 11% en myndefn­isveitur og kvik­mynda­hús borgi 24%“

Samkvæmt könnun Gallup og útreikn­ingum hafi inn­lendir aðilar og rétt­hafar orðið af tæpum 1,7 millj­arði króna í við­skiptum árlega vegna sam­keppni við Netflix og aðrar þjón­ustur.

Samtökin vilja að Alþingi taki umsvifa­laust skref í þá átt að jafna sam­keppn­isum­hverfið gagn­vart þeim erlendu efn­isveitum, og dragi úr álögum á íslenska iðn­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár