Tíu staðreyndir um strákana okkar

Strák­arnir okkar hafa vakið mikla athygli á heims­meist­ara­mót­inu í Rúss­landi, hvort sem er fyrir glæsi­lega frammi­stöðu, miðað við og án höfða­tölu, útlit Rúriks eða skemmti­lega aðdá­endur. Kjarninn tók saman tíu tölu­legar stað­reyndir um strák­ana okkar.

1.

Íslenska karla­lands­liðið keppir nú á HM í knatt­spyrnu í Rúss­landi í fyrsta sinn í sög­unni. Ísland er fámenn­asta þjóð sem nokkru sinni hefur leikið á heims­meist­ara­móti í knatt­spyrnu með okkar 350.710 lands­menn. Næst fámenn­asta ríkið sem keppt hefur á HM er Trinidad og Tobago sem hélt á met­inu áður en Ísland tryggði sér þát­töku­rétt, en þar búa 1,3 millj­ónir manna. Norður-Írland kemur þar á eftir með sína 1,4 milljón íbúa.

2.

Næst fjöl­menn­asta þjóðin sem nú keppir á HM er Úrúgvæ með tíu sinnum fleiri íbúa en á Íslandi eða tæp­lega 3,5 millj­ónir. Í Níger­íu, sem er með Íslandi í riðli, búa um 186 millj­ónir manns, að minnsta kosti. Það þýðir að til eru 530 Níger­íu­búar fyrir hvern Íslend­ing.

3.

Ísland er í 22. sæti á styrk­leika­lista FIFA, alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins en þar trónir á toppnum Þýska­land, Í öðru sæti er Brasilía og Belgar verma þriðja sætið. Af okkar mótherjum er Argent­ína er í fimmta sæti list­ans, Nígería í 47. sæti og Króatía því átj­ánda á styrk­leika­list­anum. Ísland hefur efst farið í 18. sæti á styrk­leika­list­anum, en það var í febr­úar á þessu ári.

4.

Gylfi Sig­urðs­son miðju­maður hjá íslenska lands­lið­inu og leik­maður Everton er dýr­asti knatt­spyrnu­maður Íslands­sög­unnar eftir að liðið keypti hann á meira en 44 millj­ónir punda frá velska félag­inu Swansea City. Gylfi er lang launa­hæsti leik­maður lands­liðs­ins, með um 660 millj­ónir króna í árs­laun í fyrra, miðað við laun fyrir skatta sam­kvæmt úttekt Við­skipta­blaðs­ins. Af leik­mönnum lands­liðs­ins er Jóhann Berg Guð­munds­son, leik­maður Burnley, næst launa­hæstur með 180 millj­ónir króna og bæði Birkir Bjarna­son og Emil Hall­freðs­son með í kringum 170 millj­ónir króna á ári.

5.

Eiður Smári Guðjohn­sen var áður dýr­asti knatt­spyrnu­maður Íslands, þegar hann var keyptir til Barcelona á Spáni frá Chelsea árið 2006 fyrir tæpar 11 millj­ónir punda, og sló hann þá eigið met frá því sex árum áður þegar Chelsea keypti hann frá Bolton á tæpar 7 millj­ónir punda.

6.

Kári Árnason, varn­ar­jaxl, sem nýverið gerði samn­ing við íslenska Pepsi-deild­ar­liðið Víking í Fossvogi, sem er einnig upp­eld­is­fé­lag Kára, er ásamt Hannesi Þór Hall­dórs­syni mark­manni og leik­manni Randers í Danmörku, launa­lægstur byrj­un­ar­liðs­manna íslenska lands­liðs­ins. Kári mun vera með um 40 millj­ónir króna í árs­laun, en hann þar til í maí á mála hjá skoska lið­inu Aberdeen. Hannes Þór mun vera með um 30 millj­ónir króna í árs­laun. Miðað við frammi­stöðu beggja leik­manna í leiknum á móti Argent­ínu er alls ekki ólík­legt að ein­hver lið séu til­búin að bjóða betur.

7.

Flestir leik­manna íslenska 22 manna hóps­ins, eða sex, spila í deildum í Bret­landi. Þrír eru í Danmörku og jafn­margir spila fyrir liðið Rostov í Rúss­landi. Þá eru einnig þrír leik­menn á mála hjá íslensku lið­unum, Val, Fylki og Víkingi. Tveir leik­manna íslenska liðs­ins spila í Þýska­landi en aðrir leik­menn eru einir í löndum liða sinna. Einn leik­maður spilar í Noregi, einn í Búlgaríu, einn í Belgíu, einn á Ítalíu og að lokum einn í Hollandi.

8.

Íslenska liðið spilar í bún­ingum frá ítalska íþrótta­merk­inu Errea. Fyrstu bún­ingar íslenska lands­liðs­ins voru fram­leiddir af breska íþrótta­vöru­merk­inu Umbro. Ári síðar skipti liðið yfir í bún­inga frá hinu vin­sæla þýska íþrótta­merki Adidas sem sá lið­inu fyrir fatn­aði fram til árs­ins 1991. Þá tók við fjög­urra ára tíma­bil þar sem liðið lék í bún­ingum frá ítölskum fram­leið­anda, ABM og síðar í fimm ár í bún­ingum frá Reusch. Ísland gerði samn­ing árið 2002 við Errea og hefur haldið tryggð við merkið allar götur síðan.

9.

Í leik íslenska lands­liðs­ins gegn Argent­ínu síð­ast­liðna helgi átti Lionel Messi, leik­maður Barcelona, ell­efu skot á mark íslenska liðs­ins. Eins og kunn­ugt er rataði ekk­ert þeirra í netið en leik­maður hefur ekki reynt svo oft að skjóta á mark and­stæð­ing­anna í leik á heims­meist­ara­mót­inu frá árinu 1970 án árang­urs. Þá var það ítalski lands­liðs­mað­ur­inn Luigi Riva sem reyndi 13 sinnum að skjóta á mark and­stæð­inga sinna, bæði í leikjum gegn Svíþjóð og Ísrael, einnig án árang­urs.

10.

Eitt af þessum skotum frá Messi varði Hannes frá víta­punkt­inum. Hannes Þór Hall­dórs­son mark­maður íslenska liðs­ins er nefni­lega svo­kall­aður víta­bani. Víta­skyttur hafa klikkað á 15 af síð­ustu 24 víta­spyrnum á móti Hannesi. Hannes hefur varið tíu af þessum víta­spyrnum en fimm hafa farið fram­hjá, í stöng, fram­hjá eða yfir markið. Aðeins níu vít­anna hafa því endað í mark­inu. Víta­skyttur hafa þannig aðeins nýtt 37,5 pró­sent af síð­ustu 24 vítum sínum á móti Hannesi. Tölfræði Hannesar er enn betri á stór­mótum en þar hafa víta­skyttur aðeins nýtt 1 af 3 vítum sínum. Þar er pró­sentu­talan því komin niður í 33 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár