Gamla brýnið má ekki fá að stjórna

37 ára gam­all leik­stjórn­andi Ungverja er einn mik­il­væg­asti hlekk­ur­inn í leik liðs­ins.

Zoltán Gera er kannski ekki fræg­asti eða virt­asti leik­maður í Evrópu, en hann er mik­il­vægur hlekkur í leik Ungverja, sem Íslend­inga mæta í dag. Hann er áhuga­mönnum um enska bolt­ann af góðu kunnur, en hann lék í tíu ár í ensku úrvals­deild­inni, við ágætan orðstír, með West Bromwich Albion, 2004 til 2008 og aftur 2011 til 2014, og með Fulham lék hann á árunum 2008 til 2011.

Klókur miðjumaður

Gera þykir klókur leik­maður, tækni­lega afbragðs­góður og næmur fyrir veik­leikum á vörn and­stæð­ing­ana. Hann spil­aði sinn fyrsta leik fyrir WBA haustið 2004, en er nú kom­inn aftur í heima­landið, þar sem hann leikur með Ferencváros. Það er sterkasta lið lands­ins.

[adspot]

Í leiknum gegn Aust­ur­ríki í fyrstu umferð­inni, þar sem Ung­verjar unnu nokkuð óvænt 2-0, þá lék Gera sem varn­ar­tengiliður á miðj­unni. Í und­ankeppn­inni var hann lyk­il­maður, og var ýmist aft­ar­lega á miðj­unni eða fremsti miðju­maður. Útsjón­ar­semi hans nýt­ist vel á báðum stöðum, en eftir því sem reynslu­bank­inn hefur orðið stærri, þá hefur hann færst aftar á völl­inn, eins og oft vill verða. Hann hefur reynst Íslend­ingum erf­iður, í gegnum tíð­ina, og skor­aði meðal ann­ars glæsi­legt skalla­mark í leik Íslands og Ung­verja­lands árið 2008, en Ung­verjar hafa sigrað í sjö af tíu viður­eignum þjóð­anna.

Má ekki fá að stjórna

Spræk kyn­slóð leik­manna, sem nú er að bera lið Ungverja uppi, hefur notið góðs af reynsl­unni hjá Gera, en knatt­spyrnu­stjór­inn, Bernd Stock, hefur sagt að Gera færi lið­inu ró og geti stjórnað leiknum þegar á þarf að halda. Hann leikur með núm­erið 10 á bak­inu og er oft í hlut­verki leik­stjórn­anda. Ung­verja­land hefur líkt og Ísland verið að klifra upp styrk­leika­lista FIFA með góðum úrslitum, og er stefnan sett á að kom­ast upp úr riðl­inum á EM.

Íslenska liðið þarf að passa að Gera fái ekki að verða með þræð­ina hjá sér og stjórna leiknum. Ef það er hægt að draga út eitt­hvað atriði, sem var ekki nógu gott í leiknum gegn Portúgal, þá var það hversu illa gekk hjá íslenska lið­inu að halda bolt­anum innan liðs­ins og byggja upp sóknir. Þó það gangi upp þegar Ísland liggur til baka í stífri vörn, og beitir skynd­i­sóknum, þá þarf Ísland líka að geta tekið frum­kvæðið og stjórnað leikjum, einkum gegn liðum eins og Ung­verja­landi, þar sem knýja þarf fram sigur.

Gylfi Sig­urðs­son og Aron Einar Gunn­ars­son ráða vel við það verk­efni, á góðum degi, að leyfa Gera ekki að stjórna hrað­anum, en það má samt ekki van­meta leik­menn eins og Gera, þó hann sé orð­inn gam­all og spili ekki lengur í deild þeirra bestu. Hann varð 37 ára gam­all 22. apríl síð­ast­lið­inn en er enn í góðu formi, og einn besti leik­mað­ur­inn í Ung­verja­landi.

Hann lék einna best tíma­bilið 2009 til 2010, en hann var þá kjör­inn leik­maður árs­ins hjá Fulham. Hann hefur leikið 90 lands­leiki og er leik­reyndastur úti­leik­manna Ung­verja­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár