„Ég vaknaði á morgnana og mín fyrsta hugsun var að heimurinn væri að farast“

Eg­ill Helgason hef­ur háð sína glímu við kvíða og þung­lyndi, og upp­lifði sinn versta tíma þeg­ar Trump var kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

Verkir
Verkir Egill segir að hann hefði aldrei trúað því hvað hægt sé að verða lík­am­lega veikur af því að vera þung­lyndur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Egill Helgason hefur háð glímu við kvíða og þung­lyndi, og finnst mik­il­vægt að ræða geð­rænan vanda jafn opin­skátt og ann­ars konar þrautir. „Ég hef tekið dýfur. Síðustu tvö, þrjú árin hef ég reyndar verið mjög góður. En á tím­anum fyrir Covid tók ég slíka dýfu að ég var eig­in­lega ekki mönnum sinn­andi. Ég vakn­aði á morgn­ana og mín fyrsta hugsun var að heim­ur­inn væri að far­ast. Mér fannst ég vakna í ein­hverri klemmu, í ein­hverju skrúf­stykki. Það er mjög and­styggi­leg til­finn­ing. Ég hef notað lyf gegn þessu. Stundum er verið að segja að maður eigi ekki að nota þessi lyf en þau hafa hjálpað mér. Kvíði, þung­lyndi, eft­ir­sjá. Þetta losar mig pínu­lítið undan þeirri áþján.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í for­síðu­við­tali Heim­ild­ar­innar við Egil. 

Hans alversta tíma­bil var í kring um 2016–2017. En hvað gerð­ist þá?  „Trump var kos­inn. Þetta byrj­aði um það leyti sem Trump var kos­inn. Ég veit ekki hvort það trig­ger­aði það en ég var sjálf­sagt ekki í góðu formi þegar það gerð­ist. Þá fór ég að hafa svo miklar áhyggjur af sjálfum mér og fjöl­skyld­unni minni. Ég hafði pen­inga­á­hyggjur, heilsu­fars­á­hyggjur, og þetta varð að ein­hvers konar þrá­hyggju. Í raun­inni var ég ekki að hafa áhyggjur af neinu sér­stöku, þetta varð ein­hvern veg­inn einn stór vönd­ull sem maður heldur áfram að vefja upp á sig. Það er síðan mjög merki­legt hvernig þetta fer að hafa áhrif á lík­amann, hvað maður getur orðið lík­am­lega veikur af því að vera þung­lyndur. Ég hefði aldrei trúað því.“

Hjá Agli lýsti þetta sér í verkjum. „Ég var allur í verkjum. Líkaminn verður svo strekktur, hugs­unin er svo sterk að hún getur búið til verki. Þessi per­íóða, 2016–17, var langerf­ið­asti kafl­inn sem ég hef nokkurn tím­ann upp­lifað. Ég vona að ég eigi aldrei eftir að sökkva svo djúpt aftur. Ég var eig­in­lega ófær til allra hluta um tíma.“

Eins og hjá svo mörgum þá er þessi vandi þekktur í fjöl­skyldu hans. „Ég er ekki einn. Þetta er alveg þekkt fen­ómen. Þetta liggur dálítið í fjöl­skyld­unni, ein­hver við­kvæmni. Það hefur eng­inn farist úr þessu en við höfum sum átt í erf­ið­leikum með svona.“ Hann seg­ist hafa leitað sér sál­fræði­að­stoðar en fannst það ekki hjálpa sér mikið, að tala. „Fjöl­skyldan mín er það sem hefur reynst mér best, ástúð þeirra. Og svo göngut­úrar, góðir göngut­úrar. Ég geng með sjónum, úti á Gróttu, úti á Nesi. Það er heil­næm­ast.“

Áskrif­endur geta lesið við­talið við Egil í heild sinni hér. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Sjá meira

Viðtal

„Ég vona að ég eigi aldrei eftir að sökkva svo djúpt aftur“

Egill Helgason er á tíma­mótum. Hann er hættur með Silfrið sem lengi var kennt við hann sjálfan, helsta póli­tíska umræðu­þátt lands­ins. Hann seg­ist í upp­hafi hafa skolfið eins og lauf í vindi þegar hann var í sjón­varpi en elski nú að vera í beinni. Egill kynnt­ist eig­in­konu sinni á nekt­ar­stað og þau eign­uð­ust son ári síðar. Hann rifjar upp þegar ölv­aður þing­maður mætti til hans í settið og þegar hann fleygði vatns­könnu út í sal í reiði­kasti. Egill hefur háð sína glímu við kvíða og þung­lyndi, og upp­lifði sinn versta tíma þegar Trump var kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

16 mín. lestur

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár