Ríkið ætlar að auka fjárfestingar um tugi milljarða á næstu fimm árum

Fimm ára áætlun rík­is­stjórn­ar­innar gerir ráð fyrir umtals­verðri aukn­ingu í fjár­fest­ingu hins opin­bera. Á annað hund­rað millj­arðar króna verður beint í ný þjóð­þrifa­verk­efni og árlegar upp­hæðir hækk­aðar umtals­vert. Það stytt­ist í kosn­ingar.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er fjármála- og efnahagsráðherra. Hann lagði fram fjármálaáætlunina í lok apríl síðastliðins.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann lagði fram fjár­mála­á­ætl­un­ina í lok apríl síð­ast­lið­ins. Mynd: Birgir Þór

Íslenska ríkið mun auka fjár­fest­ingu sína til muna á næstu fimm árum. Alls verður fjár­fest fyrir nálægt 170 millj­örðum króna á tíma­bil­inu og árleg upp­hæð sem notuð verður í fjár­fest­ingar mun hækka umtals­vert strax á næsta ári. Á tíma­bil­inu nemur aukin fjár­fest­ing, miðað við núver­andi umfang fjár­fest­inga, tugum millj­arða króna. Pen­ing­anna á meðal ann­ars að nota í nýtt sjúkra­hús, hjúkr­un­ar­heim­ili, Vest­manna­eyja­ferju, ný jarð­göng og ýmis konar nýjar stjórn­sýslu­bygg­ingar. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar Alþingis um fjár­mála­á­ætlun áranna 2017-2021.

Alls óljóst er reyndar hvort að stuðst verði við þær áherslur sem settar eru fram í áætl­un­inni. Kosn­ingar hafa verið boð­aðar 29. októ­ber næst­kom­andi og til­kynnt hefur verið að fjár­laga­frum­varp næsta árs verði ekki lagt fram fyrr en að þeim loknum. Komist nýir flokkar, með aðrar áherslur, til valda munu án efa verðar gerðar umtals­verðar breyt­ingar á ráð­stöfun fjár­muna. Það gerð­ist eftir síð­ustu kosn­ingar þegar fjár­fest­inga­á­ætlun rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttir fyrir árin 2013-2015, sem lögð hafi verið fram nokkrum mán­uðum fyrir kosn­ingar, var ýtt með öllu til hliðar þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar tók við stjórn­ar­taumunum.

Mörg hundruð milljarðar í fjárfestingu

Samkvæmt fimm ára áætl­un­inni sem nú er unnið með á að ráð­ast í víð­fermar fjár­fest­ingar á vegum hins opin­berra á tíma­bil­inu. Hún gerir ráð fyrir því að 1,3 pró­sent af lands­fram­leiðslu fari í slíkar á næsta ári en að það hlut­verk verði hækkað í 1,5 pró­sent á árunum 2019-2021.

Til að setja þessar tölur í sam­hengi þá er áætluð verg lands­fram­leiðsla í ár 2.158 millj­arðar króna. Á næsta ári er áætlað hún verði 2.233 millj­arðar króna. Það hlut­fall af henni sem áætlað að fari í opin­berar fjár­fest­ingar er því 29 millj­arðar króna. Árið 2019 ætti sú upp­hæð að hækka upp í 34,4 millj­arða króna og í lok áætl­un­ar­innar, á árinu 2021, ætti hún að vera 37,4 millj­arðar króna ef miðað er við þjóð­hag­spá Hagstofu Íslands um breyt­ingar á lands­fram­leiðslu næstu árin. Samtals nemur fjár­fest­ing rík­is­sjóðs á þessu fimm ára tíma­bili, sam­kvæmt áætl­un­inni, á bil­inu 165-170 millj­örðum króna.

Um er að ræða umtals­verða hækkun á fyrri áætl­unum, sem gerðu ráð fyrir að fjár­fest­inga­stig rík­is­ins myndi hald­ast í þeim 1,2 pró­sentum af lands­fram­leiðslu sem það er í nú.

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að mark­miðið með því að hækka fjár­fest­ing­ar­stig rík­is­ins feli í sér „að hægt verður að ráð­ast í marg­vís­legar fram­kvæmdir sem sumar hafa verið í bið­stöðu frá banka­hrun­inu. Þar má nefna bygg­inga­fram­kvæmdir við nýjan Land­spít­ala, smíði nýrrar Vesta­manna­eyja­ferju, fram­kvæmdir við Dýra­fjarð­ar­göng, bygg­ingu þriggja nýrra hjúkr­un­ar­heim­ila, bygg­ingu Húss íslenskra fræða og bygg­ingu skrif­stofu­hús­næðis bæði fyrir Alþingi og Stjórn­ar­ráðið.

Fjölmörg önnur verk­efni sem dregið var úr eftir hrun kom­ast á áætlun núna. Nefna má viða­mik­inn hús­næð­is­stuðn­ing með stofn­fram­lögum til upp­bygg­ingar á leigu­í­búðum og nýju hús­næð­is­bóta­kerfi. Auk þess er ætl­unin að fjár­hæðir og frí­tekju­mörk vaxta­bóta verði hækkuð árlega í sam­ræmi við auknar tekjur heim­ila. Þá er til skoð­unar sér­stakur stuðn­ingur við þá sem kaupa íbúð í fyrsta sinn.“

Vilja einfalda skattkerfið

Í álit­inu er einnig hugað að ýmsu öðru en fjár­fest­ingum hins opin­bera. Þar er meðal ann­ars fjallað um sér­tæka skatta sem lagðir eru á tvo atvinnu­vegi á Íslandi: sjáv­ar­út­veg og fjár­mála­fyr­ir­tæki. Sjáv­ar­út­vegnum hefur um nokk­urt skeið verið gert að greiða veiði­gjöld fyrir afnot sín að fisk­veiði­auð­lind­inni. Þau gjöld hafa lækkað mjög á und­an­förnum árum. Á næsta fisk­veiði­ári er til að mynda áætlað að þau verði 4,8 millj­arðar króna, eða átta millj­örðum króna minna en þau voru fisk­veiði­árið 2012/2013. Á sama tíma hefur sjáv­ar­út­vegur upp­lifað sitt mesta góð­ærð­is­tíma­bil. Eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja jókst um 265 millj­arða króna frá lokum 2008 og út árið 2014. Hagnaður þeirra var 242 millj­arðar króna á tíma­bil­inu og arð­greiðslur til eig­enda tæp­lega 50 millj­arðar króna.

Fjár­mála­fyr­ir­tæki hafa þurft að greiða ýmis­konar við­bót­ar­skatta á und­an­förnum árum. Við­skipta­bankar þurfa að greiða banka­skatt og sér­stakan fjár­sýslu­skatt. Efna­hags­svið Sam­taka atvinnu­lifs­ins áætl­aði að greiðsla þeirra hafi verið ígildi um 15 pró­sent af þeim vaxta­mun sem bank­arnir inn­heimtu árið 2014. Þessum við­bót­ar­kostn­aði er velt út á útlán bank­anna. Með öðrum orðum er almenn­ingur að borga banka­skatt­inn með verri vaxta­kjörum.

Þessu er nefndin sam­mála og segir að álögur á banka­stofn­anir muni „ til lengri tíma litið koma fram í auknum vaxta­mun sem við­skipta­vin­irnir bera og minni sam­keppn­is­hæfni miðað við erlenda keppi­nauta. Meiri hlut­inn telur efni standa til að árétta ein­kenni góðra skatt­kerfa sem leið­ar­ljóss fyrir stjórn­völd við útfærslu á fjár­mála­á­ætlun og fjár­mála­stefnu.“

Vilja einkavæða Keflavíkurflugvöll

Meiri­hlut­inn víkur að mik­il­vægi þess að for­gangs­raða upp á nýtt í fjár­fest­ingum rík­is­ins vegna vaxtar ferða­þjón­ust­unnar, sem er nú orðin 34 pró­sent af útflutn­ings­tekjum þjóð­ar­bús­ins, en það hlut­fall hefur hækkað úr 18 pró­sentum árið 2010. Nú má rekja eitt af hverjum þremur störfum sem skap­ast hafa í hag­kerf­inu frá því ári beint til ferða­þjón­ustu og eru þá ótalin öll afleidd störf, svo sem í afþr­ey­ingu, smá­sölu og annarri þjón­ustu. Um þessar mundir er áætlað að einn af hverjum tíu starf­andi ein­stak­lingum vinni í ferða­þjón­ustu eða tengdum greinum.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill því auka fjár­magn til sam­göngu­mála og inn­viða­upp­bygg­ingar, en hægja á bygg­ingu á skrif­stofu­hús­næði fyrir Stjórn­ar­ráð Íslands og stofn­anir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á móti.

Á meðal þeirra fjár­fest­inga í innviðum ferða­þjón­ustu sem fjallað er sér­stak­lega um í nefnd­ar­á­lit­inu er upp­bygg­ing flug­vall­ar­mann­virkja í Keflavík. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar telur að huga eigi að því að fá einka­að­ila til að taka þátt í fjár­mögnun hennar.

Á næstu árum er gert ráð fyrir að fram­kvæmdir við Kefla­vík­ur­flug­völl muni kosta á bil­inu 70 til 90 millj­arða króna og að flug­völl­ur­inn geti tekið við um 14 millj­ónum far­þega eftir þær ef álag dreif­ist á sama hátt og það ger­ist nú. Meiri­hlut­inn telur það „umhugs­un­ar­efni að á síð­ustu sex árum hefur þeim flug­völlum í Evr­ópu sem eru í bland­aðri eigu ríkis og einka­að­ila eða alfarið í eigu eink­að­ila fjölgað hlut­falls­lega úr 23% í 55%. Nú fara 80% flug­far­þega til og frá Evr­ópu og innan Evr­ópu um slíka flug­velli. Á sama tíma ætlar íslenska ríkið að fjár­magna og taka áhætt­una alfarið af þessum stóru fram­kvæmd­um. Meiri hlut­inn telur að huga beri að nýjum fjár­mögn­un­ar­leiðum við fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu flug­vall­ar­mann­virkja í Kefla­vík­.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár