Getur Ísland orðið leiðandi afl á norðurslóðum?

Rík­is­stjórnin vinnur um þessar mundir að hags­muna­mati Íslands á norð­ur­slóðum. Þær eru grund­vall­ar­þáttur í utan­rík­is­stefnu Íslands og í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar segir að unnið verði að því að Ísland verði þar leið­andi afl. Slík yfir­lýs­ing hljómar væg­ast sagt mjög óraunsæ, í besta falli djörf. Baldur Þór­halls­son pró­fessor í stjórn­mála­fræði gengur svo langt að kalla hana barna­lega. Hvernig má það líka vera að Ísland eigi ein­hverja mögu­leika gagn­vart stór­veldum eins og Banda­ríkj­unum og Rúss­landi, þegar kemur að því að vera leið­andi afl, er það ekki tómt mál að tala um?

Eða hvað?


Hafa ber í huga að bæði Banda­ríkja­menn og Rússar hafa sýnt í verki að þeir vilji halda stjórnun á norð­ur­slóðum hjá form­legum stofn­unum: stuðla að efl­ingu Norð­ur­skauts­ráðs­ins og leysa deilu­mál á vett­vangi Haf­rétt­ar­sátt­mál­ans. Má í því sam­hengi benda á frið­sam­legt norð­ur­slóða­sam­starf á und­an­förnum árar­tugum, meðal ann­ars á sviði björg­un­ar­mála og umhverf­is­vís­inda. Þetta sam­starf ríkj­anna virð­ist ekki raskast að ráði þrátt fyrir spennu vegna atburða á Krím­skaga og jafn­vel á dögum kalda stríðs­ins gekk sam­starfið vel. Reynslan sýnir að þarna geti legið tals­verð tæki­færi fyrir Íslend­inga til áhrifa og það styðja kenn­ingar í alþjóða­sam­skiptum.

[quote font="0" align="right"]Ef Ísland á að verða leið­andi ríki á norð­ur­slóðum þá gæti leiðin til þess verið að fram­fylgja vel ígrund­aðri og fag­legri stefnu sem gengi lengra en stefna ann­arra ríkja.[/quote]

Til að útskýra þetta betur þá má segja að á norð­ur­slóðum hafi valda­stjórn­mál (e. power politics) vikið fyrir náinni sam­vinnu ríkja. Það sé því eft­ir­spurn eftir fag­legri þekk­ingu þegar kemur að til dæmis umhverf­is­málum og borg­ara­legu öryggi. Ef Ísland á að verða leið­andi ríki á norð­ur­slóðum þá gæti leiðin til þess verið að fram­fylgja vel ígrund­aðri og fag­legri stefnu sem gengi lengra en stefna ann­arra ríkja. Þannig legði Ísland lín­una hvað varðar kröfur um umgengni um nátt­úru og auð­lindir á svæð­inu.

Íslend­ingar hafa stigið skref í þessa átt en Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra hitti John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í Washington fyrr í vik­unni. Þar voru sam­skipti Íslands og Banda­ríkj­anna til umræðu—meðal ann­ars mál­efni norð­ur­slóða en Banda­ríkin tóku nýverið við for­sæti í Norð­ur­skauts­ráð­inu. Utan­rík­is­ráð­herra til­kynnti þar að Ísland bjóði fram krafta sína til að taka þátt í að leiða vinnu ráðs­ins um mál­efni hafs­ins á næstu miss­erum.

[caption id="attachment_29406" align="align­right" width="748"] Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, ræddi sam­skipti Íslands og Banda­ríkj­anna á fundi með John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna á dög­unum. Mynd: EPA[/caption]

Fer þetta saman við öfluga atvinnuuppbyggingu og nýtingu auðlinda?


En hvað þá með olí­una, umskip­un­ar­hafn­irnar, skemmti­ferða­skipin og ferða­menn­ina, þarf þá ekki að tak­marka nýt­ingu þess­ara auð­linda, þrengja að þessum þáttum? – Hvað með atvinnu­tæki­færin á lands­byggð­inni og hag­vöxt­inn? – Þetta eru meðal ann­ars þær póli­tísku spurn­ingar sem vakna þegar teflt er saman kröf­unni um að hjól atvinnu­lífs­ins þurfi að snú­ast og að gæta þurfi að sjálf­bærni og umhverf­is­vernd.

Þetta tvennt getur farið saman og Ísland hefur margt fram að færa vegna breyt­inga á norð­ur­slóðum. Til að mynda eru mögu­leikar á að starf­rækja mið­stöð þjón­ustu fyrir svæðið og þá sér­stak­lega fyrir Grænland vegna mik­illar upp­bygg­ingar þar. Ísland er mjög vel tengt hvað varðar flug­sam­göngur, getur boðið upp á stöðuga vist­væna orku, vinnu­afl og trausta inn­viði á borð við heil­brigð­is­þjón­ustu. Allt þetta er hægt að efla án þess að ganga í ber­högg við ábyrga og stranga umhverf­is­stefnu.

[quote font="0" align="right"]Ætli Ísland að verða hið umrædda leið­andi afl er hins vegar áríð­andi að vanda til verka.[/quote]

Ætli Ísland að verða hið umrædda leið­andi afl er hins vegar áríð­andi að vanda til verka. Mögulega þyrfti að fórna tíma­bund­inni hag­vaxt­ar­aukn­ingu eða við­skipta­tæki­færum vegna þess að með strang­ari umhverf­is­lög­gjöf verður fjár­fest­ing hugs­an­lega ekki eins fýsi­leg. Það þyrfti jafn­vel að vísa á dyr ríkjum eða fyr­ir­tækjum sem hér bönk­uðu uppá með freist­andi til­boð um verk­smiðjur eða olíu­bor­anir.

Þetta kann að vera óhugs­andi í huga margra og auð­vitað þarf ekki að úti­loka auð­linda­nýt­ingu eins og mögu­legar olíu­bor­anir. En þarna er mik­il­vægt að vega og meta kost­ina í stóru sam­hengi með lang­tíma­hags­muni heild­ar­innar að leið­ar­ljósi.

Það má gera því skóna að slík stefna sem hér er rædd myndi hafa jákvæðar afleið­ingar til lengri tíma litið, einnig efna­hags­legar. Íslend­ingar myndu ekki ein­ungis öðl­ast meiri trú­verð­ug­leika þegar kemur að form­legu aþjóða­sam­starfi um norð­ur­slóðir – og í umhverf­is­málum þar með – heldur mætti búast við því að ímynd lands­ins sem braut­ryðj­enda á þessum sviðum myndi styrkj­ast. Það gæti síðan haft jákvæð áhrif á útflutn­ings­greinar og ferða­manna­iðnað.

Norðurskautsráðið – mikilvægi trúverðugleika


Íslend­ingar ásamt Finnum og Svíum standa utan fimm ríkja-hóps­ins svo­kall­aða, en hann skipa Banda­ríkin, Danmörk (Grænland), Kanada, Noregur og Rússland. Ríkin fimm eru skil­greind sem strand­ríki að norð­ur­skauts­svæð­inu og eiga þar beinna hags­muna að gæta hvað varðar nátt­úru­auð­lindir.

Um leið og íslensk stjórn­völd hafa mót­mælt þessu fimm-ríkja sam­starfi harð­lega hafa ýmsir bent á mögu­lega aðild að hópnum. Norð­ur­slóða­stefna Íslands kveður á um að tryggja skuli stöðu Íslands sem strand­ríkis innan norð­ur­skauts­svæð­is­ins – Ísland eigi með réttu kröfu til bæði land- og haf­svæða norðan heim­skauts­baugs, sem m.a. bygg­ist á þeirri stað­reynd að efna­hags­lög­saga Íslands er innan norð­ur­skauts­svæð­is­ins og nær til Græn­lands­hafs við Norður-Íshafið.

Á það ber að líta að Banda­ríkja­menn hafa, þrátt fyrir að vera þar inn­an­borðs, varað harð­lega við því að fimm-ríkja hóp­ur­inn verði of fyr­ir­ferð­ar­mik­ill í norð­ur­slóða­sam­starf­inu því það gæti einmitt skaðað Norð­ur­skauts­ráðið. Þarna er því mik­il­vægt fyrir Íslend­inga að fara með gát. Því sæk­ist Íslend­ingar eftir að kom­ast í þennan fimm ríkja hóp gæti það grafið undan trú­verð­ug­leika gagn­vart Norð­ur­skauts­ráð­inu og þar með mögu­leikum Íslands til að verða hið leið­andi afl sem stefnt er að.

Mikilvægt að skoða langtímahagsmuni


Þegar til lengri tíma er litið gætu hags­munir Íslands því best verið tryggðir með ábyrgri stefnu í umhverf­is­málum og öfl­ugu fram­lagi til norð­ur­slóða­sam­starfs. Mik­il­vægt er að kvika ekki frá því að gæta íslenskra hags­muna, en hafa þá ábyrga umhverf­is­stefnu í for­grunni. Má nefna hval­veiðar Íslend­inga í því sam­hengi. Það er vissu­lega óum­deildur réttur full­valda ríkis að nýta auð­lindir í sinni lög­sögu en mik­il­vægt er að meta kosti og galli í stærra sam­hengi. Banda­ríkja­menn hafa gagn­rýnt Íslend­inga harð­lega fyrir stefn­una í hval­veiði­málum, en Obama for­seti hefur gefið út til­mæli til emb­ætt­is­manna um að lág­marka form­leg sam­skipti ríkj­anna vegna hval­veið­anna.

[caption id="attachment_25620" align="align­right" width="774"] Barack Obama for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA[/caption]

Fyrir smá­ríki er trú­verð­ug­leiki senni­lega mik­il­væg­asti þátt­ur­inn í sam­skiptum við önnur ríki. Þess vegna er nauð­syn­legt að spyrja alltaf þeirrar spurn­ingar, hvaða áhrif stefna og gjörðir muni hafa á hann. Það er til lít­ils fyrir Íslend­inga að bjóða Banda­ríkja­mönnum að verða leið­andi í starfi um mál­efni hafs­ins – á sama tíma og þrjóskast er við hval­veiðar vegna þjóð­arstolts, sem skilar tak­mörk­uðum ágóða og snið­gengur um leið þau við­mið sem ríki heims vilja setja um hval­veiðar og nátt­úru­vernd.

Nið­ur­staðan er því sú að Ísland gæti orðið leið­andi afl á norð­ur­slóðum. En þá er líka mik­il­vægt að haga sér sem slíkt afl og vera leið­andi, ekki far­þegi á frí­miða og und­an­þágum eins og hefur gjarnan verið hjá Íslend­ingum í gegnum tíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár