Birgitta, Jón Þór og Ásta leiða lista Pírata

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, varð í fyrsta sæti í próf­kjöri Pírata á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Jón Þór Ólafsson, fyrr­ver­andi þing­maður, lenti í öðru sæti og Ásta Guðrún Helga­dóttir þing­maður í því þriðja. Næstu sæti skipa Björn Leví Gunn­ars­son, Gunnar Hrafn Jónsson, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, Viktor Orri Val­garðs­son, Halldóra Mogensen, Andri Þór Sturlu­son og í tíunda sæti varð Sara E. Þórð­ar­dóttir Oskars­son. Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­innar, lenti í 11. sæti.

Fá að velja sér kjördæmi

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Sigríði Bylgju Sig­ur­jóns­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Pírata, fær sig­ur­veg­ar­inn í próf­kjör­inu fyrstur að velja sér sæti að eigin vali á einum af þremur list­unum. Svo fær sú eða sá sem lenti í öðru sæti að velja sér sæti og svo koll af kolli þar til annað hvort öllum fram­bjóð­endum hefur verið úthlutað sæti á lista eða allir list­arnir eru orðnir full­mann­aðir með sam­tals 70 ein­stak­lingum.

105 voru í fram­boði Pírata á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og greiddu 1034 flokks­menn atkvæði. Próf­kjörið stóð yfir frá 2. ágúst til klukkan 18 í dag, 12. ágúst. Til stóð að birta nið­ur­stöður um leið og kosn­ingu lauk, en taln­ing atkvæða frestað­ist. Kosn­ingin var sam­eig­in­leg fyrir þrjú kjör­dæmi, Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og norður og suð­vest­ur­kjör­dæmið. Dreift verður niður á þrjá fram­boðs­lista.

Smári leiðir í suðurkjördæmi

Smári McCarthy leiðir lista Pírata í suð­ur­kjör­dæmi, en próf­kjör­inu lauk á mið­nætti í gær­kvöldi. Smári hefur verið virkur í starfi Pírata frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður og leiddi lista flokks­ins í kjör­dæm­inu í þing­kosn­ing­unum 2013, en náði ekki kjöri. Í öðru sæti á lista Pírata í kjör­dæm­inu verður Oktavía Hrund Jóns­dótt­ir, í þriðja sæti verður Þórólfur Júl­ían Dags­son og í því fjórða Álf­heiður Eymars­dótt­ir. 113 manns kusu í próf­kjör­inu og voru 25 í fram­boði.

Einar leiðir í norðaustur

Fram­boðs­listi Pírata í norð­aust­ur­kjör­dæmi varð ljós í lok júní. Einar Aðal­steinn Brynj­ólfs­son, fram­halds­skóla­kenn­ari á Akur­eyri, leiðir list­ann. Guð­rún Ágústa Þór­dís­ar­dóttir rekstr­ar­fræð­ingur er í öðru sæti og Hans Jóns­son í því þriðja. 78 flokks­menn kusu í próf­kjör­inu og voru 14 í fram­boði. Prófkjör Pírata í norð­vest­ur­kjör­dæmi stendur yfir og lýkur á mánu­dag, 15. ágúst. Þar eru 17 í fram­boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár