Hremmingarnar halda áfram hjá Boeing

Boeing, stærsta útflutn­ings­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna, á í miklum vand­ræðum þessi miss­erin, og reynir nú að styrkja fjár­hags­stöðu sína með lánum frá banda­rískum bönkum og end­ur­skipu­lagn­ingu í rekstri.

Samkvæmt umfjöllun Simple Flying þá er fyr­ir­tækið að reyna að útvega 10 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 1.250 millj­örðum króna, til að takast á við auk­inn kostnað vegna kyrr­setn­ingar og fram­leiðslu­stoppi á 737 Max vélum félags­ins.

Búið að hækka bótafjárhæðina

Boeing hafði gefið það út, að félagið væri búið að taka til hliðar sam­tals 4,9 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 600 millj­örðum króna, til að mæta kostn­aði við­skipta­vina félags­ins, þar á meðal flug­fé­laga og birgja sem fram­leiða ýmsa auka­hluti, en nú er sú upp­hæð komin í 6,1 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Boeing hefur þegar samið við nokkur flug­fé­lög um bætur, þar á meðal við eitt stærsta flug­fé­lag heims, Turkish Airlines.

Margir lausar endar eru þó eftir ennþá, og ekki ljóst í mörgum til­vikum hvernig gengið verður frá samn­ingum um bætur, enda hafa vanda­málin hjá Boeing verið að hrann­ast upp að und­an­förnu, meðal ann­ars vegna upp­lýs­inga sem Banda­ríkja­þing hefur dregið fram í dags­ljósið við rann­sókn sína á sam­bandi banda­rískra flug­mála­yf­ir­valda (FAA) og Boeing.

Mikil áhrif á Íslandi

Kyrr­setn­ing á Max vél­unum hefur mikil áhrif á Íslandi, og eru efna­hags­leg áhrif á landið - sem birt­ast í minna sæta­fram­boði til lands­ins og minni umsvifum í ferða­þjón­ustu - veru­lega mikil.

Icelandair reiknar ekki með Max vél­unum á háanna­tím­anum í ferða­þjón­ustu næsta sumar, en telur að áhrifin af því verði óveru­leg. Til­kynn­ingin kom fram um þetta skömmu eftir mið­nætti, en Boeing til­kynnti um það í gær að ólík­legt væri að Max vél­arnar færu í loftið fyrr en í fyrsta lagi í júní eða júlí.

Alþjóð­leg kyrr­setn­ing á Max vél­unum hefur verið í gildi frá því í lok mars, en flug­mála­yf­ir­völd um allan heim gripu til hennar eftir að Max vél hrap­aði í Eþíópíu, 13. mars, með þeim afleið­ingum að allir um borð lét­ust. Skömmu áður, 29. októ­ber, hrap­aði Max vél í Indónesíu og allir um borð lét­ust þar líka, sam­tals 346 í slys­unum tveimur.

Þegar er horft er til baka, til árs­ins 2019, þá er óhætt að segja að mars­mán­uður hafi verið afdrifa­ríkur og dram­tískur, fyrir íslenskt atvinnu­líf.

Með falli WOW air og kyrr­setn­ing­unni á Max vél­unum, með nokk­urra vikna milli­bili, þá kúvent­ist staðan í íslensku efna­hags­lífi og einu kröft­ug­asta hag­vaxt­ar­skeiði í hag­sögu þjóð­ar­innar, á árunum 2011 til 2018, lauk. Hag­vöxtur var á bil­inu 3,5 til 6 pró­sent á ári á fyrr­nefndu tíma­bili, en spár gera nú ráð fyrir að hann verði á bil­inu 0 til 2 pró­sent á næstu miss­erum. Hæga­gangur er tek­inn við.

Sökin liggur hjá Boeing

Rann­sókn­ar­nefndir í Indónesíu og Eþíópíu hafa kom­ist að því, sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum, að sökin á slys­unum liggi hjá Boeing, vegna galla í vél­unum. Þar bein­ast spjótin meðal ann­ars að MCAS-kerfi í vél­unum, sem á að sporna gegn ofrisi.

Boeing er kerf­is­lægt mik­il­vægt fyr­ir­tæki fyrir heims­byggð­ina, þar sem það hefur ára­tugum saman verið stærsti fram­leið­andi flug­véla í heim­inum. Eftir erf­ið­leikaár félags­ins í fyrra, þá komst Airbus fram úr Boeing sem stærsti fram­leið­andi flug­véla í heim­inum.

Heild­ar­tekjur Boeing árið 2018 námu 101,1 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 12.600 millj­örðum króna. Mark­aðsvirði félags­ins hefur farið lækk­andi und­an­farin miss­eri og er nú 176 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 22 þús­und millj­örðum króna. Einn stærsti við­skipta­vinur félags­ins hefur í gegnum tíð­ina verið banda­ríska ríkið, í gegnum fjöl­mörg verk­efni sem Boeing hefur unnið fyrir Banda­ríkja­her.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár