Stjórnmálaheimspeki Hannesar ekki kennd næsta vetur

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor við Stjórn­mála­fræði­deild, mun ekki kenna áfang­ann Stjórn­mála­heim­speki á kom­andi haust­miss­eri, þar sem hann verður í rann­sókn­ar­leyfi.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor við Stjórn­mála­fræði­deild, mun ekki kenna áfang­ann Stjórn­mála­heim­speki á kom­andi haust­miss­eri, þar sem hann verður í rann­sókn­ar­leyfi. Þetta kemur fram í frétt á síð­unni Student.is.

Í des­em­ber sendu 65 nem­endur kröfur til deild­ar­innar þess efnis að Hannes yrði form­lega ávíttur, bók hans Saga Stjórn­mála­kenn­inga yrði aflögð sem kennslu­gagn og að nem­endum yrði ekki lengur skylt að sitja áfang­ann. Á fundi Stjórn­mála­fræði­deildar dag­inn eftir, þegar stað­festa átti kennslu­skrá háskóla­árs­ins 2018-2019, las Baldur Þór­halls­son, for­seti deild­ar­innar, upp erindið.

Í fund­ar­gerð­inni, sem Student.is hefur undir höndum, kemur einnig fram að full­trúi nem­enda hafi komið á fram­færi kvört­unum nem­enda en þær snúi að kennslu­bók nám­skeiðs­ins og kennslu­háttum Hannesar sem að þeirra mati inni­haldi kyn­þátta­for­dóma, kven­fyr­ir­litn­ingu, fitu­for­dóma og virð­ing­ar­leysi við fólk með fatl­anir. Lagði nem­enda­full­trú­inn til að annar kenn­ari væri feng­inn til að kenna nám­skeiðið eða að nem­endur fengju að velja sam­bæri­legan áfanga í Heim­speki­deild.

Í kjöl­farið var kennslu­skrá BA-náms­ins sam­þykkt, fyrir utan nám­skeiðið Stjórn­mála­heim­speki, þar sem mál­efni þess væru til skoð­unar.

Málið var síðan sett í hendur for­seta félags­vís­inda­sviðs, Daða Más Krist­ó­fers­sonar, þar sem það fór í hefð­bundið ferli. Hann segir svið­inu skylt að rann­saka jafn alvar­legar ásak­anir og þær sem nem­endur komu fram með. Það hafi verið gert og nið­ur­staðan liggi fyrir en verði ekki gerð opin­ber. Daði Már vildi ekki svara fleiri spurn­ingum þar sem honum væri óheim­ilt að tjá sig um mál­efni ein­staka starfs­manna.

Til stóð að Hannes færi í rann­sókn­ar­leyfi á vor­önn 2019 en nú liggur fyrir að leyfið verður tekið á haustönn á þessu ári. Hannes segir breyt­ing­una ekk­ert hafa með kvart­anir nem­anda að gera. Þetta kemur fram í skrif­legu svari hans til Student.is en Hannes birtir sam­skipti sín við blaða­mann á blogg­síðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár