Guðmundur Ingi segir neyslu vera hjarta loftlagsvandans

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra segir að stans­laus neysla fólks eigi sér ekki stað í tómi heldur hafi bein áhrif á lofts­lagið. Hann segir að hægt sé að breyta þró­un­inni til betri vegar en til þess þurfi rík­is­stjórnir, fyr­ir­tæki og ein­stak­linga.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir heim­inn standa frammi fyrir geig­væn­legum breyt­ingum á lofts­lag­inu og að hjarta vand­ans sé neysla af ýmsum toga. Í grein á vef Vinstri grænna fjallar hann um loft­lags­vand­ann og neyslu­hyggj­una. Hann segir að það sé sann­ar­lega hægt að bregð­ast við og breyta þró­un­inni til betri vegar. Aftur á móti sé ekki hægt að hengja allar lausnir á ein­stak­linga heldur þurfi fyr­ir­tæki, rík­is­stjórnir og sveita­stjórnir um heim allan að taka til í sínum ranni.

Við erum öll saman í liði í þessu stóra verkefni

Guð­mundur Ingi fjallar um í grein­inni hvernig menn­irnir hafi á fáum ára­tugum tek­ist að koma af stað ferlum sem ógni öllum öðrum teg­undum á plánet­unni. Hann minnir á að átta millj­arðar manna deili jörð­inni með öllum þeim sem eiga eftir að fæð­ast. „Við stöndum frammi fyrir geig­væn­legum breyt­ingum á lofts­lag­inu og hjarta vand­ans er neysla af ýmsum toga – stans­laus og ósjálf­bær neysla.“

[links]Hann segir að vit­an­lega þurfi allir marg­vís­lega hluti í dag­legu lífi, líkt og mat og fatnað. Aftur á móti segir hann það galið að einn þriðji hluti matar í heim­inum endi í rusl­inu án þess að nokkur hafi neytt hans. „Á ein­hverjum tíma­punkti hætti fólk að gera við og laga hluti og keypti í stað­inn nýja. Jafn sjálf­sagt varð hjá mörgum að fara með flug­vél til útlanda yfir helgi og áður var að skjót­ast í sum­ar­bú­stað inn­an­lands. Öll þessi neysla á sér ekki stað í tómi heldur hefur umhverf­is­á­hrif og bein áhrif á lofts­lagið,“ segir Guð­mundur Ingi.

Áskoranirnar eru fjölmargar en lausnirnar eru það líka

Í grein­inni nefnir hann að í gær hafi haf­ist á RÚV íslensk þátta­röð sem fjalli um áskor­anir mann­kyns í loft­lags­málum. Þáttur gær­kvölds­ins fjall­aði meðal ann­ars um neyslu­hyggju. Hann segir að mik­il­vægt sé að fjalla um áhrif vand­ans en um leið leita að lausnum. „Um leið og við horf­umst í augu við vand­ann verðum við að gæta þess að ein­beita okkur að því að leysa málin og vinna þannig á lofts­lagskvíð­anum sem við finnum svo mörg fyrir.“

Guð­mundur Ingi segir að í sam­ein­ingu sé sann­ar­lega hægt að bregð­ast við og breyta þró­un­inni til betri vegar en hann segir jafn­framt að ekki sé hægt að hengja allar lausnir á ein­stak­ling­inn heldur verði fyr­ir­tæki um allan heim að taka til í sínum ranni, auk rík­i­s­tjórna, sveita­stjórna og alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja. Hann segir alla vera í sama liði í þessu stóra verk­efni.

Í lok grein­ar­innar bendir hann á að umhverf­is­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna hefst í Kenía í dag og þar verði kast­ljós­inu meðal ann­ars beint að neyslu og áhrifum hennar á Jörðina. Hann segir áskor­anir séu fjöl­margar en að lausn­irnar séu það líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár