Ísland tapaði fyrir Króatíu í Sagreb

Króatar komu sér enn betur fyrir á toppi I-rið­ils í und­ankeppni fyrir Heims­meist­ara­mótið í fót­bolta eftir sigur á Íslandi í Sagreb í kvöld.

Marcelo Brozovic og Kári Árnason berjast um boltann í leiknum. Brozovic skoraði bæði mörkin í leiknum.
Marcelo Brozovic og Kári Árnason berj­ast um bolt­ann í leiknum. Brozovic skor­aði bæði mörkin í leiknum. Mynd: EPA

Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu tap­aði fyrir Króatíu, 2–0, í lands­leik lið­anna í und­ankeppn­inni fyrir Heims­meist­ara­mótið sem fram fer í Rúss­landi 2018. Króatía er nú í efsta sæti I-rið­ils með 10 stig.

Fyrir leik­inn voru liðin bæði með sjö stig en Króatía í efsta sæti I-rið­ils vegna betri marka­tölu úr þeim þremur leikjum sem liðið hafði spilað. Ísland er áfram í öðru sæti rið­ils­ins með sjö stig. Úkraína er í öðru sæti með fimm stig en Úkraína og Finnland mæt­ast síðar í kvöld. Með sigri getur Úkraína kom­ist upp fyrir Ísland og í annað sæti rið­ils­ins.

Ísland lék án nokk­urra reglu­legra byrj­un­ar­liðs­manna. Fram­herj­arnir Kolbeinn Sig­þórs­son og Alfreð Finn­boga­son voru ekki með vegna meiðsla, eins og miðju­mað­ur­inn Emil Hall­freðs­son. Ari Freyr Skúlason, vinstri bak­vörður, spil­aði heldur ekki en hann glímir við sýk­ingu í fæti.

Fyrsta mark leiks­ins kom í fyrri hálf­leik þegar Marcelo Brozovic skor­aði lag­legt mark með föstu og góðu skoti fyrir utan víta­teig úr opnum leik. Ísland átti nokkur færi en náði ekki að gera mark úr þeim. Brozovic var aftur á ferð­inni í upp­bót­ar­tíma og skor­aði annað mark Króata í leiknum eftir mis­tök í íslensku vörn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár