Tryllt stuð á Iceland Airwaves 2016

Tón­list­ar­há­tíðin Iceland Airwaves fer fram í Reykja­vík um helg­ina.

Iceland Airwaves-tón­list­ar­há­tíðin stendur yfir í Reykja­vík um helg­ina. Fjöldi fólks frá öllum heims­hornum lögðu leið sína hingað til lands til þess að vera við­stödd hátíð­ina í ár. 9.000 miðar seld­ust á hátíð­ina í ár, þar af 5.000 miðar til erlendra gesta.

Margar erlendar og inn­lendar stór­stjörnur tróðu upp á hátíð­inni ár, sem fram fór á mörgum tón­leika­stöðum vítt og breitt um höf­uð­borg­ina. Meðal þeirra stjarna sem léku í ár má nefna Björk, PJ Harvey, Kate Tempest, FM Belfast, Warpaint og fleiri.

Birgir Þór Harð­ar­son, ljós­mynd­ari Kjarnans, fylgd­ist með her­leg­heit­unum í gegnum lins­una.

Ljóðskáldið og rapparinn Kött Grá Pjé opnaði hátíðina í Hörpu á miðvikudagskvöldið. Hann var – eins og hann hefur reyndar gert að sið – ber að ofan og búinn að krota á sig.
Ljóð­skáldið og rapp­ar­inn Kött Grá Pjé opn­aði hátíð­ina í Hörpu á mið­viku­dags­kvöldið. Hann var – eins og hann hefur reyndar gert að sið – ber að ofan og búinn að krota á sig.
Gkr hélt uppi góðu stuði í Silfurbergi í Hörpu á miðvikudagskvöldið. Textarnir hans eru einlægir og miðað við upplifun tónleikagesta þá virðist sú lýsing endurspegla hann sjálfan nokkuð vel.
Gkr hélt uppi góðu stuði í Silf­ur­bergi í Hörpu á mið­viku­dags­kvöldið. Text­arnir hans eru ein­lægir og miðað við upp­lifun tón­leika­gesta þá virð­ist sú lýs­ing end­ur­spegla hann sjálfan nokkuð vel.
Rappkvöldinu á miðvikudaginn lauk í faðmlögum Emmsjé Gauta og Arons Can eftir flutning þeirra á Silfurskottu.
Rapp­kvöld­inu á mið­viku­dag­inn lauk í faðm­lögum Emmsjé Gauta og Arons Can eftir flutn­ing þeirra á Silf­ur­skottu.
Óttarr Proppé, þingmaður og formaður Bjartar framtíðar, kom fram með hljómsveit sinni Dr. Spock á fimmtudagskvöld. Óttarr var í sínum litríka búningi og með uppþvottahanskan gula.
Óttarr Proppé, þing­maður og for­maður Bjartar fram­tíðar, kom fram með hljóm­sveit sinni Dr. Spock á fimmtu­dags­kvöld. Óttarr var í sínum lit­ríka bún­ingi og með upp­þvotta­hanskan gula.
Rokkararnir í Pink Street Boys flokknum stilltu græjurnar í botn á Húrra seint á fimmtudagskvöld.
Rokk­ar­arnir í Pink Street Boys flokknum stilltu græjurnar í botn á Húrra seint á fimmtu­dags­kvöld.
Fólk kunni að meta lætin frá Pink Street Boys og flestir stigu léttan dans við sviðið. Sumum fannst það hins vegar ekki nóg og tóku sviðsdýfur yfir áhorfendur. Mynd: Birgir Þór
Fólk kunni að meta lætin frá Pink Street Boys og flestir stigu léttan dans við sviðið. Sumum fannst það hins vegar ekki nóg og tóku sviðs­dýfur yfir áhorf­endur. Mynd: Birgir Þór
Það var öllu rólegri stemmning á tónleikum hljómsveitarinnar Vakar í Listasafni Reykjavíkur á föstudagskvöld.
Það var öllu rólegri stemmn­ing á tón­leikum hljóm­sveit­ar­innar Vakar í Lista­safni Reykja­víkur á föstu­dags­kvöld.
Hljómsveitin Vök hefur ekki enn gefið út breiðskífu. Þau Andri Már (sem sést hér undir ljóstýru) og Margrét Rán unnu Músíktilraunir árið 2013.
Hljóm­sveitin Vök hefur ekki enn gefið út breið­skífu. Þau Andri Már (sem sést hér undir ljóstýru) og Margrét Rán unnu Mús­íktil­raunir árið 2013.
Bandaríska hljómsveitin Warpaint tróð upp í Hörpu á föstudagskvöld.
Banda­ríska hljóm­sveitin Warpaint tróð upp í Hörpu á föstu­dags­kvöld.
Ólafur Arnalds í hljómsveitinni Kiasmos mundar græjurnar. Lazer-ljósin dilluðu sér í takt við tónana.
Ólafur Arnalds í hljóm­sveit­inni Kiasmos mundar græjurnar. Lazer-ljósin dill­uðu sér í takt við tón­ana.
Þungarokkshljómsveitin Sólstafir lék í Hörpu á föstudagskvöldið. Hér sést söngvari hljómsveitarinnar, Aðalbjörn Tryggvason, kreista fram tónana.
Þung­arokks­hljóm­sveitin Sól­stafir lék í Hörpu á föstu­dags­kvöldið. Hér sést söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar, Aðal­björn Tryggva­son, kreista fram tón­ana.
Fjöldi svokallaðra „off-venue“ tónleika var í boði fyrir þá sem ekki höfðu tryggt sér miða á Iceland Airwaves í ár. Íslenska pönksveitin Hórmónar léku á Slippbarnum snemma á laugardagskvöld.
Fjöldi svo­kall­aðra „off-venue“ tón­leika var í boði fyrir þá sem ekki höfðu tryggt sér miða á Iceland Airwaves í ár. Íslenska pönk­sveitin Hórmónar léku á Slipp­barnum snemma á laug­ar­dags­kvöld.
Bandaríska hljómsveitin The Internet lék í Valshöllinni á laugardagskvöld.
Banda­ríska hljóm­sveitin The Internet lék í Vals­höll­inni á laug­ar­dags­kvöld.
Fólk skemmti sér konunglega og lifði sig inn í stemmninguna á tónleikum The Internet.
Fólk skemmti sér kon­ung­lega og lifði sig inn í stemmn­ing­una á tón­leikum The Internet.
Breska ljóðskáldið og rapparinn Kate Tempest fræddi gesti Gamla bíós um heimsmálin á laugardagskvöldið. Óhætt er að mæla sérstaklega með Kate Tempest en hún flytur pólitísk ljóð við þétta tölvutakta.
Breska ljóð­skáldið og rapp­ar­inn Kate Tempest fræddi gesti Gamla bíós um heims­málin á laug­ar­dags­kvöldið. Óhætt er að mæla sér­stak­lega með Kate Tempest en hún flytur póli­tísk ljóð við þétta tölvutakta.
Iceland Airwaves 2016 í Hörpu lauk með tónleikum allsherjarpartíbandsins FM Belfast.
Iceland Airwaves 2016 í Hörpu lauk með tón­leikum alls­herj­arpar­tí­bands­ins FM Belfast.

Dagskrá Iceland Airwaves-hátíð­ar­innar í ár lýkur í kvöld með tón­leikum bresku tón­list­ar­kon­unnar PJ Harvey í Vals­höll­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár