Reykjanesbær ófær um að þjónusta fleiri hælisleitendur

Vel­ferð­ar­ráð Reykja­nes­bæjar hafn­aði beiðni um að sjá um þjón­ustu við fleiri hæl­is­leit­endur en bær­inn aðstoðar nú allt að 70 hæl­is­leit­endur. Útlend­inga­stofnun bætir við hús­næði í Reykja­nesbæ vegna fjölda hæl­is­um­sókna.

Reykja­nes­bær hefur hafnað beiðni Útlend­inga­stofn­unar um að veita fleiri hæl­is­leit­endum þjón­ustu og þar með að stækka núgild­andi samn­ing bæj­ar­ins við stofn­un­ina. Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, segir að bær­inn hafi ekki verið til­bú­inn að verða við beiðn­inni vegna þess að íbúum hafi fjölgað mikið auk þess sem svæðið sé „mettað af hæl­is­leit­endum“. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Kjartan segir Reykja­nesbæ þjón­usta allt að 70 til 80 hæl­is­leit­endur á hverjum tíma og leggi áherslu á fjöl­skyldu­fólk. En Kjartan segir að vegna þess hversu mikið íbúum bæj­ar­ins hafa fjölgað þá sé ekki í boði þjón­ustan sem hæl­is­leit­endur þarfn­ast. „Þannig að við vildum ekki taka áhætt­una og taka við allt of mörgum hæl­is­leit­endum. Ef það kæmi fullt af börnum þá eigum við svo fá pláss í leik- og grunn­skólum til þess að taka við þeim,“ segir Kjartan.

Hröð íbúafjölgun í Reykjanesbæ

Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað mikið á Íslandi síð­ustu ár en mis­mun­andi er hvar á land­inu þeir setj­ast að. Hlut­falls­lega setj­ast lang­flestir þeirra að í Reykja­nes­bæ en fjöldi erlendra rík­is­borg­ara þar hefur tæp­lega fjór­fald­ast á örfáum árum. Í Reykja­nesbæ voru erlendir rík­is­borg­arar 8,6 pró­sent íbúa í lok árs 2011 en í júlí 2018 voru erlendir rík­is­borg­arar 23 pró­sent. Vert er að taka fram að þorri þeirra erlendru rík­is­borg­ara sem flytja til lands­ins koma hingað til að starfa og eru ekki hæl­is­leit­endur

Reykja­nes­bær þjón­ustar hins­vegar einnig hæl­is­leit­endur en þeir geta verið allt 70 að hverjum tíma og útvegar þeim hús­næði auk ann­arrar þjón­ustu. Þeir hæl­is­leit­endur dvelja í bænum á meðan þeir bíða eftir afgreiðslu hæl­is­um­sóknar sinnar. Núgild­andi samn­ingur Útlend­inga­stofn­unar við Reykja­nesbæ kveður á um að stofn­unin greiði Reykja­nesbæ dag­gjald að upp­hæð 7.500 krónur á sól­ar­hring fyrir hvern hæl­is­leit­anda, auk fasta­gjalds sem nemur um 11,5 millj­ónum króna, sem á að standa straum af launa- og rekstr­ar­kostn­aði.

„Íbúa­fjölg­unin hefur verið svo mikil að við höfum ekki getað byggt upp þjón­ustu eins hratt og við myndum vilja. Svo eru rík­is­stofn­anir eins og sjúkra­hús og heilsu­gæsla líka langt á eftir í fjár­veit­ingum. Þetta fólk þarf mikla þjón­ustu og mikla aðstoð fyrstu mán­uð­ina og við teljum svæðið mettað af hæl­is­leit­endum. Þess vegna beinum við óskum og til­mælum til ann­arra sveit­ar­fé­laga á Íslandi að taka sinn hluta af þess­ari sam­fé­lags­legu ábyrgð,“ segir Kjartan. 

Útlendingastofnun stækkar við sig

Þór­hildur Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að stofn­unin þurfi að stækka við sig vegna fjölg­unar hæl­is­um­sókna. Stofn­unin hefur fengið hús­næði í Reykja­nesbæ til að standa straum af fjölda umsókna. „Við erum með samn­inga við þrjú sveit­ar­fé­lög en þeir samn­ingar hafa ekki náð yfir þann fjölda sem hefur komið und­an­farin ár. Þar af leið­andi höfum við verið að sjá um rekstur úrræða,“ segir Þór­hildur. „Okkur ber skylda til að sjá fólki fyrir hús­næði og þjón­ustu ef það getur það ekki sjálft.“

Reykja­nes­bær sam­þykkti ekki til­lög­una eins og áður sagði en Þór­hildur segir að þótt svo hafi verið þá breyti það ekki áformum stofn­un­ar­innar um nýt­ingu hús­næð­is­ins til þjón­ustu fyrir hæl­is­leit­endur. „Við eigum í mjög góðu sam­starfi við Reykja­nesbæ og erum með samn­ing við þau um þjón­ustu við umsækj­endur um vernd. Að okkar mati er betra að sveit­ar­fé­lögin sinni þessu hlut­verki heldur en Útlend­inga­stofnun, sér­stak­lega þjón­ustu við fjöl­skyldur. Það sem felst í þjón­ust­unni er margt af því sem sveit­ar­fé­lögin eru með á sinni könnu og þau eru með starfs­fólk sem er með mikla reynslu og þekk­ingu á sviði félags­þjón­ustu,“ segir Þór­hildur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár