Samdráttur á íbúðamarkaði í ár er töluvert minni en áður var talið. Á fyrstu tíu mánuðum ársins hefur kaupsamningum um stakar eignir fækkað samtals um 4 prósent á landinu öllu, þar af um 5 prósent á höfuðborgarsvæðinu og 3 prósent í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og á Akureyri en hins vegar fjölgað um 1 prósent á minni þéttbýlissvæðum.
Á hinn bóginn var októbermánuður stærsti einstaki mánuður frá upphafi í hreinum nýjum íbúðalánum heimilanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.
Ný íbúðalán 22,2 milljarðar í október
[links]Fasteignamarkaðurinn var heldur líflegri í haust heldur en í lok sumars. Hrein ný íbúðalán til heimila námu alls um 22,2 milljörðum króna í október síðastliðnum og mældust 36 prósent hærri en í september og 44 prósent hærri en í október í fyrra. Frá sama tímabili í fyrra hafa heildarfjárhæðir nýrra íbúðalána heimilanna, að frádregnum umfram- og uppgreiðslum eldri lána, aukist um 1,3 prósent að nafnvirði.
Í skýrslunni segir að þennan útlánavöxt í október megi að mestu leyti rekja til mikillar aukningar í hreinum nýjum óverðtryggðum útlánum lífeyrissjóðanna. Ástæður þeirrar aukningar sé þó ekki hægt að rekja beint til aukinnar aðsóknar til nýrra lána lífeyrissjóðanna í októbermánuði einum og sér heldur þess að eitthvað hefur verið um að lífeyrissjóðir hafi gert átak í því að hreinsa upp í þeim umsóknarstöflum sem myndast höfðu frá því í sumar/haust. [adspot]
Því sé hér fyrst og fremst um að ræða einskiptisaðgerðir ákveðinna stórra lífeyrissjóða en ekki stökkbreytingar í umsóknum nýrra lána.
Á þessu ári hefur samsetning lána tekið stakkaskiptum því óverðtryggð lánhafa vaxið um nær 30 prósent á milli ára en á móti vegur að hrein ný verðtryggð lán drógust saman um 37 prósent á verðlagi hvors árs. Þá virðist hlutdeild lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði hafa aukist lítillega.
Verðhækkanir meiri utan höfuðborgarsvæðisins
Verðhækkun í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og á Akureyri tók fram úr heildarverðhækkunum á höfuðborgarsvæðinu í vor miðað við janúar 2012 og hefur haldist á svipuðum slóðum á undanförnum mánuðum.
Samkvæmt nýjustu tölum Íbúðalánasjóðs mælist 12 mánaða hækkunartaktur vísitölunnar á höfuðborgarsvæðinu rétt tæplega 1,4 prósent en 4,5 prósent í nágrannasveitarfélögum og á Akureyri en nálægt 10 prósent á minni þéttbýlissvæðum og dreifbýli, en þær tölur eru mjög sveiflukenndar vegna fárra samninga.
Þá er í raun 1,6 prósent raunlækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sé ekki tekið tillit til áhrifa nýbyggðra íbúða á íbúðaverð en það er í takt við þróunina undanfarna 6 mánuði sem hefur verið á bilinu 0,8 til 1,8 prósent raunverðslækkun.
Þá kemur enn fremur fram í skýrslunni að aðeins ein af hverjum tuttugu seldum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu fóru á 30 milljón krónur eða minna í ár. Árið 2015 átti það við um tæpan þriðjung seldra íbúða og árið 2012 átti það við yfir helming íbúða þótt miðað sé við fast verðlag.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir