Bretar minnast endaloka fyrri heimsstyrjaldar

Hálf milljón manns og kónga­fólk koma saman í London. En um hvað sner­ist stríðið?

Skotar marsera
Skotar mar­sera Skoskir her­menn mar­sera um götur London í til­efni Vopna­hlés­dags­ins. Mynd: Valur Gunnarsson

Stríðsloka er minnst með tveggja mín­útna þögn. Þannig hefur það verið í 100 ár, frá því að stríð­inu til að binda endi á öll stríð lauk. Þegar ég var nemi í breskum barna­skóla um miðjan 9. ára­tug­inn var enn staðið upp þann ell­efta ell­efta klukkan ell­efu og þagað í tvær mín­útur og varla hefur það breyst síðan. „Armistice Day“, kalla þeir það, vopna­hlés­dag­inn. Í þá daga voru þeir enn uppi sem tekið höfðu þátt, öld­ungar sem var rúllað áfram í hjóla­stólum í árlegri göngu, álíka gamlir og öldin sjálf. Nú eru þeir allir horfnir.

En fyrri heims­styrj­öldin lifir enn, þó hún falli gjarnan í skugg­ann á litla bróður sem fljótt óx upp úr henni og nefnd var sú seinni. Heims­styrj­öld­inni fyrri lauk þann 11. nóv­em­ber og lauk þó ekki. Í fyrsta sinn í fjögur ár og tæpa fjóra mán­uði var allt hljótt á vest­ur­víg­stöðv­unum. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár