Meirihluti Íslendinga á móti vegatollum

58% Íslend­inga eru á móti vega­tollum, en 42% eru hlynntir slíkum tollum. Íbúar Suð­ur­lands og Reykja­ness eru helst á móti tollum.

Um 58 pró­sent Íslend­inga eru á móti vega­tollum, sem not­aðir yrðu til upp­bygg­ingar á vega­kerf­inu á Íslandi, á meðan 42 pró­sent eru fylgj­andi slíkum tollum. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Maskínu.

Mikill munur er á afstöðu fólks eftir því hvar það býr. Þannig er mest and­staða við vega­tolla á Suð­ur­landi og Reykja­nesi, þar sem 73 pró­sent eru á móti, en minnst and­staða hjá íbúum Reykja­vík­ur­borgar, þar sem sléttur helm­ingur er á móti vega­tollum. Í Reykja­vík er einnig mestur stuðn­ingur við vega­tolla, þegar val er um að fara aðra leið, en 34,4 pró­sent Reyk­vík­inga sögð­ust hlynntir slíkri lausn.

51,9 pró­sent íbúa á Aust­ur­landi eru á móti vega­tollum, en á Aust­ur­landi er einnig hæst hlut­fall þeirra sem vilja vega­tolla hvort sem hægt er að fara aðra leið til að forð­ast tolla eða ekki.

Af þeim sem eru hlynntir vega­tollum sögð­ust 29-30 pró­sent þeirra vera hlynntir vega­tollum til upp­bygg­ingar í vega­kerf­inu aðeins þar sem maður hefur val um aðra leið, en 12-13 pró­sent eru hlynntir vega­tollum óháð því hvort val er um aðra leið eða ekki.

Mark­tækur munur er á milli kynj­anna, en karlar eru frekar á móti vega­tollum en konur, tæp­lega 60 pró­sent karla eru á móti en tæp­lega 56 pró­sent kvenna. Þá er líka mark­tækur munur eftir menntun, en fólk með grunn­skóla­próf var mun lík­legra til að vera á móti upp­töku vega­tolla en fólk með aðra menntun. 72,6 pró­sent grunn­skóla­mennt­aðra sögð­ust vera á móti upp­töku vega­tolla, en 56,6 pró­sent þeirra sem hafa fram­halds­skóla­próf eða iðn­menntun, og 54,7 pró­sent þeirra sem hafa háskóla­gráðu.

Kjós­endur Bjartrar fram­tíðar eru hlynnt­astir upp­töku vega­tolla, en 50,8 pró­sent þeirra segj­ast hlynntir vega­tollum þar sem val er um aðra leið, og tæp 17 pró­sent óháð því. 32,3 pró­sent eru á móti upp­töku vega­tolla.

Mest and­staða við upp­töku vega­tolla er hjá kjós­endum Pírata, en 71 pró­sent þeirra sögð­ust vera á móti slíkum tollum. Meiri­hluti kjós­enda ann­arra flokka eru á móti vega­tollum, 52,2 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins og 55 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár