Vinna að hugmyndum um ráðstöfun stöðugleikasjóðs

For­sæt­is­ráð­herra í starfs­stjórn hefur óskað eftir til­lögum um ráð­stöfun stöð­ug­leika­sjóðs til sprota­fyr­ir­tækja og nýsköp­unar.

Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík er formaður hóps sem á að koma með tillögur að því hvernig ráðstafa má fjármagni úr stöðugleikasjóði.
Ari Kristinn Jónsson rektor Háskól­ans í Reykja­vík er for­maður hóps sem á að koma með til­lögur að því hvernig ráð­stafa má fjár­magni úr stöð­ug­leika­sjóði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra í starfs­stjórn, hefur óskað eftir því við atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið að fela sjö manna hópi sér­fræð­inga að koma með til­lögur að því hvernig ráð­stafa má fjár­magni úr stöð­ug­leika­sjóði til að efla nýsköpun í atvinnu­líf­inu.

Stöð­ug­leika­sjóð­ur­inn varð til eftir að Bjarni skip­aði sér­fræð­inga­hóp um stofnun sjóðs­ins 9. febr­úar síð­ast­lið­inn með það að mark­miði að halda utan um arð af orku­auð­lindum í eigu rík­is­sjóðs. Hópurinn sem for­sæt­is­ráð­herra skipar nú á að fjalla um hvernig fénu skal ráð­stafað.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í dag. „Í tengslum við stofnun sjóðs­ins hafa verið skoð­aðir mögu­leikar á því að nýta hluta af fram­tíð­ar­ráð­stöf­un­arfé sjóðs­ins til að efla nýsköpun og styðja við vöxt og þroska sprota­fyr­ir­tækja,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Með því væri sáð fræjum til efl­ingar nýrra vel­laun­aðra starfa í fram­tíð­inni með sama hætti og fræjum var sáð til efna­hags­upp­bygg­ingar þegar orku­auð­lindir voru beisl­aðar á síð­ari hluta 20. aldar.“

Hópurinn er skip­aður sjö ein­stak­lingum sem öll hafa tengsl við heim sprota­fyr­ir­tækja og nýsköp­unar. Hópinn skipa:

  • Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskól­ans í Reykja­vík, for­maður
  • Helga Valfells, með­eig­andi Crowberry Capital
  • Hjálmar Gíslason, fram­kvæmda­stjóri gagna hjá Qlik í Boston
  • Ragn­heiður Magn­ús­dóttir, for­maður Tækni­nefndar Vísinda- og tækni­ráðs
  • Ragn­hildur Helga­dóttir, for­maður Vís­inda­nefndar Vísinda- og tækni­ráðs
  • Salóme Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Icelandic Startups
  • Sveinn Þor­gríms­son, sér­fræð­ingur í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti

„Síðustu miss­eri hefur þessi hópur unnið að verk­efni á vegum atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis í sam­starfi við MIT háskóla í Banda­ríkj­unum um atvinnu­sköpun og efl­ingu hag­vaxtar með nýsköpun,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Það skal tekið fram að Hjálmar Gíslason er stjórn­ar­for­maður Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár