Ásmundur Friðriksson orðinn dýrastur í akstri á ný

Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2019 hafa þing­menn fengið um 25 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna akst­urs. Ásmundur Frið­riks­son hefur end­ur­heimt topp­sætið yfir þá þing­menn sem kosta mest vegna akst­urs. Níu þing­menn fá 63 pró­sent allra end­ur­greiðslna.

Kostn­aður Alþingis vegna akst­urs þing­manna á eigin bif­reiðum rúm­lega tvö­fald­að­ist á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2019. Fyrstu sjö mán­uði árs­ins nam hann tæp­lega 2,4 millj­ónum króna en á næstu þremur mán­uðum sem fylgdu, frá byrjun ágúst­mán­aðar og út októ­ber, jókst hann upp í rúm­lega fimm millj­ónir króna. Ef kostn­að­ur­inn hefur verið sá sami síð­ustu tvo mán­uði árs­ins þá mun heild­ar­kostn­aður vegna akst­urs eigin bíla verða tæp­lega 6,1 millj­ónir króna.

Notkun þeirra á bíla­leigu­bílum tók einnig veru­lega við sér á haust­mán­uðum, eftir að þing­störf hófust að nýju. Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins leigðu þing­menn sér bíla­leigu­bíla fyrir 11,1 milljón króna en í lok októ­ber var sú tala komin í 17,1 milljón króna. Til við­bótar fengu þeir 2,7 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna elds­neytis­kostn­aðar, greiðslna vegna notk­unar á jarð­göngum og töku leigu­bíla.

Alls hefur kostn­aður þing­manna vegna akst­urs á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2019 því verið 24,8 millj­ónir króna. Fram­reiknað má búast við því að heild­ar­kostn­að­ur­inn á árinu 2019 verði um 29,8 milljón króna, ef notk­unin i nóv­em­ber og des­em­ber verður sú sama og á með­al­mán­uði fyrr á árinu.

Allt árið 2018 námu greiðslur vegna notk­unar á eigin bif­reiðum 8,4 millj­ónum króna og því stefnir allt í að þær lækki um 27 pró­sent milli ára að óbreyttu. Þá not­uðu þing­menn líka bíla­leigu­bíla fyrir alls 19,3 millj­ónir króna og fengu end­ur­greiðslur vegna elds­neytis, jarð­ganga og leigu­bíla upp á tæp­lega 3,2 millj­ónir króna. Sam­an­lagt var því kostn­að­ur­inn í fyrra 30,7 millj­ónir króna, eða mjög svip­aður og hann stefnir í að verða í ár.

Þetta má sjá í tölum um greiðslur til þing­manna sem birtar eru á vef Alþingis. 

Ásmundur aftur upp í fyrsta sætið

Sá þing­maður sem kostar skatt­greið­endur mest vegna keyrslu er Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann er hættur að not­ast við eigin bif­reið í keyrslu, líkt og hann gerði árum saman, en hefur þess í stað keyrt bíla­leigu­bíla fyrir rúm­lega 2,8 millj­ónir króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Auk þess hefur Ásmundur fengið 628 þús­und krónur greiddar frá Alþingi vegna elds­neytis­kostn­aðar. Heild­ar­kostn­aður vegna akst­urs Ásmundar frá byrjun árs og út októ­ber­mánuð var því tæp­lega 3,5 millj­ónir króna. Það er um 40 pró­sent aukn­ing á kostn­aði við akst­urs hans allt árið í fyrra, þegar hann nam sam­tals 2,5 millj­ónum króna. Akst­urs­kostn­aður Ásmundar er rúm­lega 14 pró­sent af öllum akst­urs­kostn­aði þing­manna það sem af er ári.

Frá 2013 og út árið 2017 námu end­ur­greiðslur til Ásmundar alls 23,5 millj­ónum króna vegna notk­unar hans á eigin bif­reið, en hann sætti mik­illi gagn­rýni þegar töl­urnar voru opin­ber­aðar í upp­hafi árs 2018 og hætti í kjöl­farið að nota eigin bif­reið jafn mikið og áður.

Því hafa end­ur­greiðslur til Ásmundar vegna akst­urs verið 29,5 millj­ónir króna frá því að hann var kjör­inn á þing vorið 2013 og fram til loka októ­ber­mán­aðar 2019.

Enginn þing­maður hefur fengið nærri jafn mikið greitt vegna akst­urs síns. Ásmundur býr á Suð­ur­nesj­unum.

Níu taka 63 prósent af endurgreiðslum

Sá þing­maður sem kostar næst mest vegna akst­ur­send­ur­greiðslna er sam­flokks­maður Ásmundar, Vil­hjálmur Árnason, sem býr einnig á Suð­ur­nesjum. Hann hefur alls fengið 2,3 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna notk­unar á eigin bif­reið, leigu á bíla­leigu­bílum og elds­neytis­kostn­aðar á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Akstur Ásmundar kost­aði samt sem áður 52 pró­sent meira en akstur Vil­hjálms á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins.

Í þriðja sæti er Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins og íbúi í Vogum, með heild­arakst­urs­kostnað upp á 1,6 millj­ónir króna. Á eftir þeim þremur koma þrír þing­menn úr þremur mis­mun­andi flokkum, en sem eru allir úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi, með akst­urs­kostnað upp á um 1,5 milljón króna á mán­uði á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Þeir eru Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, og Sigurður Páll Jónsson, þing­maður Mið­flokks­ins.

Þrír aðrir þing­menn hafa náð að keyra þannig að end­ur­greiðslur nemi yfir einni milljón króna. Þeir eru Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi (1,4 millj­ónir króna), Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi (1,2 millj­ónir króna), og Líneik Anna Sæv­ars­dóttur úr Framsókn og Norð­aust­ur­kjör­dæmi (1,0 millj­ónir króna).

Ofan­greindir níu þing­menn, sem eru alls um 14 pró­sent þing­heims, fá því tæp­lega 63 pró­sent af öllum end­ur­greiðslum Alþingis til þing­manna vegna akst­urs til sín.

Níu þingmenn sem keyra mest:

  • Ásmundur Frið­riks­son 3,5 millj­ónir króna
  • Vil­hjálmur Árnason 2,3 millj­ónir króna
  • Birgir Þór­ar­ins­son 1,6 millj­ónir króna
  • Guðjón S. Brjáns­son 1,5 millj­ónir króna
  • Sigurður Páll Jónsson 1,5 millj­ónir króna
  • Haraldur Bene­dikts­son 1,5 millj­ónir króna
  • Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir 1,4 millj­ónir króna
  • Lilja Rafney Magn­ús­dóttir 1,2 millj­ónir króna
  • Líneik Anna Sæv­ars­dóttir 1,0 millj­ónir króna

Almenningi neitað um upplýsingar árum saman

Fjöl­miðlar reyndu árum saman að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn fái end­ur­greiðslu vegna akst­urs, en án árang­urs. Kjarn­inn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­menn hefðu fengið end­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn var að ræða. Þær upp­lýs­ingar þóttu þá sem nú of per­sónu­leg­ar.

Í byrjun febr­úar 2018 svar­aði for­seti Alþingis fyr­ir­­spurn Björns Leví Gunn­­ar­s­­sonar, þing­­manns Pírat­­ar, um akst­­ur­s­­kostn­að.

Í svari for­­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­­ur­greiðsl­­urnar þáðu á síð­­­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra. Í töl­unum mátti þó sjá að fjórir þing­menn sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar fengu sam­tals 14 millj­ónir króna, eða tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Greiðslurnar harðlega gagnrýndar

Upp­lýs­ing­arnar vöktu upp mikla reiði og ásak­anir um mögu­lega sjálftöku þing­manna. Í kjöl­farið varð það krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­urs yrðu gerðar opin­berar og að þær yrðu per­sónu­grein­an­leg­ar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þing­menn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opin­ber­ar, sund­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um væri að ræða hús­næð­is­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla. Allt ætti að koma upp á borð­ið.

For­sætis­nefnd ákvað að bregð­ast við og allar upp­lýs­ingar um kostnað sem fylgir störfum þing­manna er nú birtur mán­að­ar­lega. Auk þess var ákvæði í reglum um þing­fara­kostnað, sem fjallar um bíla­leigu­bíla, gert skýr­ara til að tryggja að slíkir séu frekar teknir en að þing­menn séu að nota eigin bif­reið­ar. Breyt­ing­arnar náðu einkum til þing­manna sem falla undir svo­­kall­aðan heim­an­akst­­ur, þ.e. akstur til og frá heim­ili dag­­lega um þing­­tím­ann. Það eru þing­­menn sem búa í nágrenni Reykja­víkur (á Suð­­ur­­nesjum, Vest­­ur­landi, Árnes­­sýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bif­­reið­um, sem kemur til end­­ur­greiðslu, varð eftir breyt­ing­arnar bund­inn hámarki við 15.000 km. Eftir þann kíló­metra­fjölda á skrif­stofa Alþingis láta umræddum þing­manni í té bíla­leigu­bíl.

Gagnsæið skilar minni kostnaði

Þegar heild­ar­kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla, elds­neytis, jarð­ganga og leigu­bíla er tal­inn með var kostn­að­ur­inn vegna akst­urs þing­manna á árinu 2017 alls 42,7 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn mun því drag­ast saman, í krónum talið og án til­lits til verð­bólgu, um tæp­lega 30 pró­sent ef sama notkun hélst að með­al­tali í nóv­em­ber og des­em­ber og fyrstu tíu mán­uði árs­ins, frá því sem var á síð­asta árinu áður en að akst­urs­greiðsl­urnar voru loks gerðar opin­berar. Það er, líkt og áður sagði, afar svip­aður heild­ar­kostn­aður og var í fyrra.

Vert að taka fram að árið 2017 var ansi sér­stakt. Þá voru ein­ungis 66 þing­fund­ar­dagar og 14 dagar teknir frá undir nefnd­ar­fundi. Ástæð­urnar voru meðal ann­ars stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eftir kosn­ing­arnar 2016, sem dróg­ust inn á árið 2017, stjórn­ar­slit í sept­em­ber 2017 og svo kosn­ingar í októ­ber 2017, sem leiddu í kjöl­farið til nýrra stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna sem lauk ekki fyrr en 30. nóv­em­ber það ár. Til við­bótar fór þing­menn í jóla­frí, páska­frí og langt sum­ar­frí. Þeir unnu því ekki mikið á árinu 2017.

Því er ljóst að í kjöl­far mik­illar umfjöll­unar fjöl­miðla um akst­urs­kostnað Alþing­is­manna, sem var opin­ber­aður í fyrsta sinn í byrjun árs í fyrra, þá hefur end­ur­greiðslu­beiðnum þing­manna vegna notk­unar á eigin bílum fækkað veru­lega. Raunar hefur allur kostn­aður vegna akst­urs þing­manna dreg­ist umtals­vert saman, jafnt á árinu 2018 og það sem af er árinu 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár