Þingkosningar í Noregi – hvað gerist þegar olían klárast?

Umræðan um hvort eigi að opna fyrir olíu­leit á haf­svæðum í kringum Lofotoen- og Vesterå­len-eyja­kla­sana fyrir utan strönd Norður-Noregs hefur orðið að ágrein­ings­máli í kosn­inga­bar­átt­unni. Umræðan hefur leitt til spurn­inga um hag­kerfi og orku­fram­tíð Noregs.

Annað hvort Jonas Gahr Støre og Erna Solberg eru talin langlíklegust til að verða forsætisráðherrar eftir kosningarnar.
Annað hvort Jonas Gahr Støre og Erna Solberg eru talin lang­lík­leg­ust til að verða for­sæt­is­ráð­herrar eftir kosn­ing­arnar.

Olíuleit í grennd við Lofoten hefur verið í deigl­unni frá því á átt­unda ára­tugi síð­ustu aldar og hefur nú skotið upp koll­inum í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna 11. sept­em­ber með meiri þunga en áður. Nokkrir þættir útskýra ágrein­ing­inn. Norðmenn eru nokkurn veg­inn klofnir í tvennt þegar kemur að hvort eigi að tak­marka olíu­iðnað lands­ins. Lágt olíu­verð á síð­ustu árum hefur valdið því að tug­þús­undir hafa misst störfin sín í olíu­iðn­að­inum og tengdum greinum, þá sér­stak­lega í Vestur-Noregi, en jafn­vel þar skipt­ast íbúar í um það bil í tvo helm­inga í mál­inu.

Kjós­endur binda miklar vænt­ingar við að stjórn­völd standi við þær kröfur sem Par­ís­ar­sátt­mál­inn setur land­inu og kann­anir sýna að umhverf­is­mál eru næst mik­il­væg­asta mál­efnið í þessum kosn­ingum á eftir mennta­málum. Lækkandi vægi olíu í orku­notkun Evrópu, aðal­út­flutn­ings­mark­aðar Noregs, ásamt lágu olíu­verði hefur einnig leitt til umræðu um það hversu arð­bær hugs­an­leg olíu­starf­semi í Lofoten myndi verða. Þá mun til­koma olíu­iðn­aðar á haf­svæðum í nánd við Lofotoen krefj­ast gíf­ur­legrar inn­viða­fjár­fest­ingar á landi til að koma til móts við þarfir iðn­að­ar­ins.

Auk þess hefur nátt­úru­feg­urð Lofoten og Vesterå­len, tals­verður ferða­manna­iðn­aður og gríð­ar­legt mik­il­vægi haf­svæð­anna í kring fyrir sjáv­ar­út­veg ávallt verið veiga­mikil rök gegn olíu­vinnslu. Ef ætti að friða eitt haf­svæði fyrir olíu­leit þá ætti það að vera Lofoten, skrifar Ola Storeng, einn rit­stjóri dag­blaðs­ins Aften­posten. Haf­svæðin í kringum Lofoten eru eitt stærsta hrygn­ing­ar­svæði þorsks­ins og stundum umtöluð sem mat­ar­kista lands­ins. Þrátt fyrir að rann­sóknir sem gerðar voru árið 2010 um hugs­an­legar nei­kvæðar afleið­ingar olíu­iðn­aðar á sjára­út­veg leiddu í ljós að það væri mjög ólík­legt að losun frá olíu­iðn­aði myndi ógna þorsk­stofn svæð­is­ins hafa þau rök reynst and­stæð­ingum olíu­vinnslu á svæð­inu vel í kosn­inga­bar­átt­unni.

Orðræða and­stæð­inga olíu­leitar ein­kenn­ist af því að stimpla olíu­iðnað bæði sem ógn við und­ir­stöður hinna hefð­bundna atvinnu­vega á svæð­inu og líka ógn við stöðu eyj­anna sem nátt­úruperla. Menning og nátt­úra gegn skamm­sýnum hagn­aði.

Á hinn bóg­inn snýst orð­ræða stuðn­ings­manna olíu­leitar um verð­mæta­sköpun í þeim til­gangi að reyna að fram­lengja „olíu­öld­ina“ eins lengi og hægt er til að til að draga úr þeim nei­kvæðu afleið­ingum sem fylgja því að olían klárist. Breyting hag­kerf­is­ins eftir olí­una verður sárs­auka­full og fram­leng­ing olíu­vinnslu er besta leiðin til að draga úr sárs­auk­anum.

Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Høyre, hefur gefið sterkt til kynna að flokk­ur­inn sé hlynntur olíu­leit í Lofoten og Fremskritts­partiet hefur gert hið sama. Arbeider­partiet sam­þykkti í vor að stefna flokks­ins yrði að finna ákveðna milli­leið þar sem sum haf­svæði, þar sem lík­urnar á því að finna olíu eru taldar mestar, verði opnuð fyrir olíu­leit en önnur verði friðuð. Allir hinir flokk­arnir eru and­vígir olíu­leit í Lofoten og vilja friða haf­svæðin.

Styttist í kosningar

Þing­kosn­ingar í Noregi fara fram í næstu viku og mun hin sitj­andi „blá-bláa“ rík­is­stjórn miðju­hægri­flokks­ins Høyre og öfga­hægri­flokks­ins Fremskritts­partiet sækj­ast eftir end­ur­kjöri. „Rauð-græni“ val­kost­ur­inn mun sam­an­standa af jafn­að­ar­manna­flokknum Arbeider­partiet sem mun lík­lega fá með sér sós­í­alista­flokk­inn Sos­i­alistisk Ven­stre­parti og lands­byggð­ar­flokk­inn Senter­partiet í rík­is­stjórn ef til kemur. Þá munu hinn kristni miðju­hægri­flokkur Kristelig Fol­ke­parti og frjáslyndi flokk­ur­inn Venstre, sem báðir studdu rík­is­stjórn­ina á síð­asta kjör­tíma­bili, mögu­lega geta orðið hluti af, eða að minnsta kosti stutt, sam­steypu­stjórn báðu megin við miðj­una. Arbeider­partiet hefur úti­lokað að vinna með öfga­vinstri­flokknum Rødt og einnig græna flokknum Milj­ø­partiet De Grønne í hugs­an­legri rík­is­stjórn­ar­myndun.

Samkvæmt nýlegri skoð­ana­könnun NORSTAT fyrir norska rík­is­út­varpið, NRK, mælist Høyre stærsti flokkur lands­ins eftir að Arbeider­partiet hefur mælst sem langstærsti flokkur lands­ins í langan tíma í stjórn­ar­tíð Høyre og Fremskritts­partiet. Mjótt er á munum hins vegar og því er erfitt að spá fyrir um úrslit kosn­ing­anna. Val­mögu­leikar stærstu flokk­anna tveggja þegar kemur að því að mynda sam­steypu­stjórn geta breyst mjög hratt ef fylgi fær­ist til örfá pró­sent á milli flokka.

Ljóst er að blæ­brigða­munur er á áherslum kjós­enda í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna í Noregi miðað við þær síð­ustu. Umhverfis- og lofts­lags­mál hafa fengið aukið vægi og einna helst í sam­hengi við mögu­lega olíu­leit í Lofoten þar sem þau tengj­ast menn­ingar-, nátt­úru­verndar-, og sjáv­ar­út­vegs­málum. Þá hafa utan­að­kom­andi aðstæður á borð við lágt olíu­verð ásamt alþjóð­legum skuld­bind­ingum Noregs í Par­ís­ar­sátt­mál­anum leitt til umræðu um grund­vall­ar­hags­muni lands­ins til fram­tíðar. Hvað ger­ist þegar olían klár­ast er spurn­ing sem hefur berg­málað í norskri sam­fé­lags­um­ræðu í ára­tugi; kosn­inga­bar­áttan að þessu sinni hefur gert hana meira áríð­anda en nokkru sinni fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár