Ágúst og Lýður fá á annan tug milljarða í sinn hlut

Skrán­ingu Bakka­varar í London verður haldið til streitu eftir allt saman, en til­kynn­ing var send út í síð­ustu viku um að ákveðið hefði verið að falla frá henni.

Eigendur Bakka­varar, Ágúst og Lýður Guð­munds­synir ásamt vog­un­ar­sjóðnum Baupost, munu fá greiddar 158 millj­ónir punda þegar félagið verður skráð á markað í London á fimmtu­dag­inn, jafn­virði 21 millj­arðs króna.

Þetta kemur fram í umfjöllun Financial Times. Mark­aðsvirði félags­ins er við skrán­ingu ríf­lega einn millj­arður punda, eða sem nemur 143 millj­örðum króna.

Greint var frá því í gær að hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins hefðu ákveðið skrá félagið á markað, og halda þannig áformum um slíkt til streitu. Í síð­ustu viku var í til­kynn­ingu greint frá því ekk­ert yrði af skrán­ing­unni, en hlut­hafar ákváðu síðar að halda sig við skrán­ing­unni og verða hluta­bréf fyr­ir­tæk­is­ins tekin til við­skipta 16. nóv­em­ber.

Fjár­festum býðst um fjórð­ungs­hlutur í fyr­ir­tæk­inu en Ágúst og Lýður eiga 59 pró­sent hlut í félag­inu en Baupost Group 41 pró­sent. Sé mið tekið af þeim hlut­föllum fara um 12,7 millj­arðar í hlut Ágúst og Lýðs.

Skrán­ingin markar tíma­mót í sögu Bakka­varar, en á þessu ári eru 31 ár frá því að Ágúst og Lýður stofn­uðu félagið. Und­an­farin ár hafa verið mikil rús­sí­ban­areið fyrir fyr­ir­tækið og hlut­hafa þess, eins og rakið hefur verið í frétta­skýr­ingum á vef Kjarnans.

Óhætt er að segja að Ágúst og Lýður, ásamt Baupost, hafi náð að gera sér mun meiri verð­mæti úr hlutnum í Bakkavör en Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­sjóðir gerðu eftir hrunið.

Í jan­úar 2016 var send til­kynn­ing til fjöl­miðla um að BG12 ehf., félag í eigu Arion banka, Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, Gildi líf­eyr­is­sjóðs, fleiri minni líf­eyr­is­sjóða og fag­fjár­festa hefði selt 46 pró­sent hlut sinn í Bakkavör til félags sem er í eigu bræðr­anna Ágústar og Lýðs og banda­rískra fjár­fest­inga­sjóða í stýr­ingu hjá Baupost Group L.L.C.

Kaup­verðið nam 147 millj­ónum punda, um 20 millj­örðum króna.

Sam­ein­aði líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og dótt­ur­fé­lag Klakka seldu jafn­framt sinn fimm pró­sent hlut í Bakkavör Group og má ætla að kaup­verðið hafi verið um þrír millj­arðar króna. Kaup­endur skuld­bundu sig til að leggja fram kauptil­boð í alla aðra útistand­andi hluti í félag­inu, rétt um ell­efu pró­sent, á sömu kjörum, og gerðu þeir það að lokum.

Nú við skrán­ingu félags­ins er verð­mið­inn meira en þrefalt hærri en sá sem Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­sjóðir mið­uðu við þegar hlut­ur­inn var seldur. Miðað við sölu­verðið í jan­úar í fyrrra þá var verð­mið­inn á Bakkavör um 319 millj­ónir punda, en við skrán­ingu á fimmtu­dag­inn verður hann ríf­lega einn millj­arður punda, eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár