Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Rennes

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Rennes


Klukkan er 22.07. Ég er blautur. Þetta var heitasta giggið á túrnum hingað til, við vorum rétt að segja að klára, hlóðum draslinu í kerru í snar­hasti og nú heyri ég að Arkona er að hefja leika. Það er alveg með ólík­indum hversu mikið ég get svitnað á 45 mín­útum og það vinnur ekki með neinum í svona úthaldi þar sem sturtur eru lúx­us­að­staða. En þetta var gaman. Mjög gaman. Eins og reyndar öll giggin hingað til.

Við vorum rólegir í gær. Ég fór í koju og spil­aði svo­lítið af nýjum tölvu­leik sem ég hlóð niður í sím­ann minn yfir góða netið í gær. Hann heitir Bard’s Tale og eftir hálf­tíma spilun var bæði komin drykkju­vísa og brjóst. Held að þetta gæti orðið ágætis leið til að drepa tíma og heila­frumur. Fínt að hafa fleiri en eina leið til þess. Ég kláraði Litlu dauð­ana, nýju bók­ina hans Stefáns Mána í dag, tók slurk eftir Bárð­ar­bálk svona rétt áður en ég sofn­aði og rest­ina áðan. Hún hélt mér. Hún ríg­hélt mér alveg. Lesning sem ég get mjög auð­veld­lega mælt með. Teikni­mynda­sögu­megin er ég svo sirka hálfn­aður með Sweet Tooth eftir Jeff Lemire. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst, en mig grunar að þetta sé alger snilld. Ég er senni­lega menn­ing­ar­viti með til­finn­inga­röskun, ég veit aldrei almenni­lega hvað mér finnst í raun.

[caption id="attachment_11597" align="alignleft" width="230"] Það er mikil dýpt í þess­ari mynd. Óvissa jafn­vel. Mynda­smiður er Baldur Ragn­ars­son gít­ar­leik­ari.[/caption]

Þetta var föstu­dagur númer tvö á túrnum og því rúm ein vika liðin. Þetta er jafn­vel ennþá átaka­m­inna en mig hafði grunað, ekki að ég hafi búist við blóð­ugum hnúum og fávita­gangi, en við erum bara orðnir svo djöf­ull sjó­aðir. Dagarnir rúlla sinn vana­gang og allir getum við talað saman á eðli­legum nótum. Sú við­bót að túra með Flexa sinn, okkar eigin hljóð­mann, er risa­stór og tekur hit­ann af okkur þegar við þurfum að díla við mis­jafnar aðstæður og mis­jafnt fólk. Hann er atvinnu­maður og að auki mik­ill vinur okkar. Eins og flís við rass, svo­leiðis er það nú bara. Við átt­menn­ingar, Skálmöld, Flex og Robert erum senni­lega eitt magn­að­asta kombó sem ég hef unnið með í svona vinnu. Það er ekk­ert til sem heitir vesen og ef það verður vesen er það tæklað löngu áður en vírus­inn nær að breiða úr sér. Það sem skiptir öllu máli eru svo tón­leikar dags­ins og þeim höfum við slátrað öllum. Enda þótt við finnum sterk­ari byr í seglin en áður þurfum við að muna að við erum minnsta bandið af þeim þremur sem hér eru að túra og okkar verk­efni hvert kvöld er að láta þau stóru hafa fyrir hlut­unum og helst láta þau líta illa út. Við ætlum að vera bestir. Við höfum stystan tím­ann af öllum, við spilum 45 mín­útur á kvöldi, Arkona 55 og Elu­veitie 90, en við notum hverja sek­úndu til þess að stimpla okkur inn hjá fólki. Og það gengur vel. Varn­ings­salan gengur betur en við höfðum reiknað með og við­brögðin eru frá­bær all­staðar. Þetta járn þarf að hamra út í hið óend­an­lega.

Nú finnur maður að nýja­brumið er að hverfa. Dagarnir verða ósjálfrátt svip­aðir enda þótt allir reyni að finna sér eitt­hvað til að brjóta upp grá­mann. Við fylgj­umst vit­an­lega með því sem ger­ist heima hjá okkur nán­ustu og þær fréttir, hvort sem þær eru góðar eða slæmar, verða alltaf pínu súrar, sér­stak­lega þegar þær eru stórar. Ég fæ ekk­ert nema góðar fréttir af barn­inu sem ég ætla að eign­ast á næsta ári en það er á stundum erfitt. Ég er að missa af, ég er að missa af svo ógeðs­lega miklu. En í mér er eng­inn efi því hér er ég að lifa annan draum. Ég er svo lukku­legur að allir sem standa mér næst skilja þessa þrá mína og með sam­vinnu gengur allt óskap­lega vel. En þarna hinum megin við hafið er hjart­sláttur sem ég er ekki enn búinn að finna. Hjart­sláttur sem ég á. Það er súrt. Fréttir af veik­indum ást­vina, og jafn­vel tals­vert erf­ið­ari málum, eru svo auð­vitað enn flókn­ari. Maður verður svo óskap­lega van­mátt­ugur og vill vera til staðar. En mín trú er sú að við gerum best hér. Hér fylgjum við því eftir sem við trúum á, látum drauma ræt­ast með ástríðu, elju og vinnu­semi og komum betri menn heim.

Og þannig er það nú bara.

[caption id="attachment_11598" align="align­right" width="215"] Þráinn Árni Bald­vins­son úr Torfu­nesi í Kinn, gít­ar­leik­ar­inn geð­þekki, bregður hér á leik.[/caption]

Tón­leika­stað­ur­inn hér í Rennes er óskap­lega ágætur. Minni en stað­ur­inn í gær, enda var sá staður nú bara eitt­hvað frík. Hér var starfs­fólkið gott og mat­ur­inn sér­lega geðs­legur. Sviðið auð­vitað ekki stórt og við þurftum að fara í miklar æfingar til að koma okkur fyrir. Þegar upp var staðið var Jón Geir sviðsvinstri, en það held ég að hafi hrein­lega aldrei gerst frá upp­hafi. Gunnar við sviðs­hægri og báðir voru þeir í svona inn­skotum á pall­inum hans Merlin. Þetta orsak­aði það að Jón Geir og Gunnar sáust ekk­ert allt giggið, því trommu­settið hans Merlin var á milli þeirra. Æi, þetta er eitt­hvað skrýtið. Við erum samt hættir að láta þetta pirra okkur og vinnum með þær aðstæður sem við höfum. Sekkja­pípa, Hurdy Gurdy og risa­stór trommu­pallur gerir hljóm­sveit ekki að betri hljóm­sveit en Skálmöld. Og við sýnum þeim það í hvert skipti, hvert ein­asta kvöld.

Talandi um sekkja­pípur. Sekkja­pípan hans Vladimir gafst upp á honum í gær, eða raunar þráð­lausa kerfið fyrir hana. Þetta er svona kerfi sem notað er í stað­inn fyrir snúru til að tengja hljóð­færi við magn­ara eða hljóð­kerfi. Þegar maður spilar á bassa eða gítar er ekk­ert mál að skipta þessu kerfi út fyrir venju­lega snúru í hall­æri en það kemur manni gríð­ar­skammt að ætla að troða snúru­enda í sekkja­pípu. Í gær lét hann sig hafa það að beina píp­unni í söng­hljóð­nema en það gekk afleit­lega. Þar sem ég á kerfi sem er ekki alveg ósvipað kerf­inu hans lán­aði ég Arkona wirelessið mitt í kvöld. Vladimir svar­aði því með rúss­neskri kurt­eisi. Heima myndum við kalla það svip­leysi, en ég þekki hann orðið það vel að ég veit að hann var ánægður með þetta. Til að róta hlutum ekki of mikið til og frá not­aði ég svo sjálfur snúru í kvöld. Það skipti svo sem ekki öllu þar sem sviðið var lítið, en ég flækti mig þó alveg ógeðs­lega oft og varð pínu kjána­legur. Vonandi redda Rúss­arnir raf­magn­inu á morgun. Þeir guldu reyndar greið­ann án þess að vita af því því gorm­ur­inn slitn­aði af sner­il­tromm­unni hans Jóns á miðjum tón­leikum. Sner­ill­inn hans Andre, Arkona-trymbils, var sem betur fer í seil­ing­ar­fjar­lægð og þannig bjarg­að­ist það. Þetta er nú sem betur fer stemn­ingin á öllu hér og það er óskap­lega gott.

Klukkan er 22.40 og Jón Geir var að brölta hér upp í rút­una. Robert er sof­andi en hinir eru inni að mingla við pöp­ul­inn. Robert boð­aði brott­för klukkan 2.00 og þá höldum við til Parísar. Við höfum aldrei spilað þar. Þangað er ekki nema 240 kíló­metra akstur, minnir mig, svo það verður létt. Ég væri alveg til í smá rauð­vín. Eða vískí jafn­vel.

Meist­ara­legt dags­ins: Litlu dauð­arnir.

Sköll dags­ins: Tækni­vand­ræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár