Spurningaþraut Illuga 6. júní 2025 – Hvað heitir kisan? og 16 aðrar spurningar

Spreyttu þig á spurn­inga­þraut­inni.

Fyrri myndaspurning:
Fyrri mynda­spurn­ing: Hvað nefn­ist þessi kisa?
Seinni mynda­spurn­ing:En hvað nefn­ist þessi káti köttur?

  1. Vinsæl katt­ar­teg­und er kennd við fornt heims­veldi er reis um 500 árum fyrir Krist. Hvaða heims­veldi var það? 
  2. Önnur mjög vin­sæl hrein­ræktuð katt­ar­teg­und er kennd við til­tekið ríki í Banda­ríkj­unum þar eð sögur hermdu að kett­irnir væru komnir af norskum skóg­ar­köttum sem vík­ingar hefðu flutt til Ameríku löngu á undan Kól­umbusi. Þetta mun vera ein­tóm þjóð­saga. Tegundin heitir líka „Coon“ af því önnur þjóð­saga hermir að hún sé komin af þvotta­birni, „racoon“. En hvaða ríki BNA eru kett­irnir kenndir við?
  3. Hver lék Barbie í mynd frá 2023?
  4. Í hvaða landi er borgin Marra­kesh?
  5. Hvað nefn­ist ferlið er plöntur breyta sól­ar­ljósi í orku?
  6. Hvaða fyr­ir­bæri mynd­ast þegar kjarna­sam­runi hættir í stórri sól­stjörnu og hún hrynur inn í sjálfa sig?
  7. Hvaða íslenski rit­höf­undur hefur skrifað bækur um Freyju og Huldar sem leysa erfið saka­mál?
  8. Í dag heldur fræg­asti tennis­leik­ari Sví­þjóðar upp á 69 ára afmæli sitt. Hver er sá eða sú?
  9. Á þessum degi árið 1961 and­að­ist hins vegar í Sviss hálf­ní­ræður karl sem hét Carl Gustav Jung. Hvað fékkst hann við í líf­inu?
  10. En á þessum degi árið 1991 dó banda­rískur djass­tón­list­ar­maður að nafni Stan Getz. Hann gaf út marga góða tón­list um dag­ana en allra mestum vin­sældum náði lag um „Stúlkuna frá ...“ – ja, hvaðan var stúlkan?
  11. En hvar er sá staður, þaðan sem stúlkan kom? Svarið þarf að vera nákvæmt.
  12. Hversu mörg sjálf­stæð ríki liggja að öllu Eystra­salti?
  13. Hver er fjöl­menn­asta borgin við Eystra­salt?
  14. Hvaða bær á Íslandi teng­ist fyr­ir­tæk­inu Kerecis?
  15. Á dög­unum varð uppi­stand á tón­leikum í Reykja­vík þegar fjöldi fólks virð­ist hafa verið í stór­hættu að troð­ast undir. Hvar voru tón­leik­arnir haldnir?

Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er hún Kitty, eða Hello Kitty. Á þeirri seinni er eng­inn annar en Felix.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Persía.  —  2.  Maine.  —  3.  Margot Robbie.  —  4.  Marokkó.  —  5.  Ljóstil­lífun.  —  6.  Svarthol.  —  7.  Yrsa Sig­urð­ar­dóttir.  —  8.  Björn Borg.  —  9.  Sálfræði, sál­grein­ingar.  —  10.  Ipanema.  —  11. Hluti af Rio de Janeiro í Brasilíu.  —  12.  Níu (Danmörk, Þýska­land, Pólland, Litáen, Lettland, Eistland,  Rússland, Finnland, Svíþjóð).  —  13.  St.Pét­urs­borg.  —  14.  Ísa­fjörður.  —  15.  Laug­ar­dals­höll.
Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár