Tíu þúsund risastórar vindmyllur

Á næstu árum og ára­tugum verða reistar 10 þús­und vind­myllur, til raf­orku­fram­leiðslu, í Norð­ur­sjónum. Sam­komu­lag um þessa risa­fram­kvæmd, sem fjórar þjóðir standa að, var und­ir­ritað í Danmörku sl. mið­viku­dag.

Mette Frederiksen, Ursula van der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB, Olaf Scholz kanslari Þýskalands, Mark Rutte forsætisráðherra Hollands og Alexander De Croo forsætisráðherra Belgíu hittust í Esbjerg.
Mette Frederik­sen, Ursula van der Leyen for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, Olaf Scholz kansl­ari Þýska­lands, Mark Rutte for­sæt­is­ráð­herra Hollands og Alex­ander De Croo for­sæt­is­ráð­herra Belgíu hitt­ust í Esbjerg. Mynd: EPA

Margir Íslend­ingar þekkja Sunn­an­vind, lagið sem Örvar Krist­jáns­son söng, við texta Jóns Sig­urðs­sonar (í bank­anum) en lagið samdi Pat Ballard. For­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og full­trúar Evr­ópu­sam­bands­ins, Þýska­lands, Hollands og Belgíu þekkja lík­lega ekki þetta lag en vita hins­vegar vel um gagn­semi vinds­ins, úr hvaða átt sem hann blæs.

Mette Frederik­sen, Ursula van der Leyen for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, Olaf Scholz kansl­ari Þýska­lands, Mark Rutte for­sæt­is­ráð­herra Hollands og Alex­ander De Croo for­sæt­is­ráð­herra Belgíu hitt­ust, ásamt emb­ætt­is­mönnum, í Esbjerg á suð­vest­ur­strönd Jótlands sl. mið­viku­dag, 18. maí. Tilefni fund­ar­ins var und­ir­ritun sam­komu­lags, sem verið hafði í und­ir­bún­ingi um nokk­urt skeið. Sam­komu­lagið snýst um vind­myllur til raf­orku­fram­leiðslu.

Langtímaplan

Sam­komu­lagið sem und­ir­ritað var í Esbjerg gerir ráð fyrir að löndin fjögur, Danmörk, Þýska­land, Holland og Belgía setji upp á næstu ára­tugum tíu þús­und vind­myllur úti fyrir ströndum land­anna, í Norð­ur­sjó. Þessi áætlun er liður í mark­miði Evr­ópu­sam­bands­ins um að hlut­leysi í kolefn­is­jöfnun verði náð árið 2050. Eigi það að takast þarf að halda vel á spöð­unum.

Und­ir­bún­ingur sam­komu­lags­ins hefur staðið lengi og teng­ist ekki, nema þá óbeint, átök­unum í Úkraínu.

150 gígavött

Þegar myll­urnar tíu þús­und verða komnar í gagnið eiga þær að geta fram­leitt sam­tals 150 gíga­vött, sem nægir til að sjá 230 millj­ónum heim­ila fyrir raf­magni. Til sam­an­burðar má nefna að þær myllur sem í dag má sjá víða úti fyrir ströndum Dan­merkur fram­leiða sam­tals 2,3 gíga­vött.

Skaga 250 metra upp í loftið

Myll­urnar tíu þús­und verða engin smá­smíði, rúm­lega 250 metra háar, frá yfir­borði sjávar, meira en þre­föld hæð Hall­gríms­kirkju­turns­ins í Reykja­vík. Til­raunir með myllur af þess­ari stærð hafa um nokk­urt skeið staðið yfir í Norð­ur­sjónum á vegum tveggja fram­leið­enda, Vestas og Siemens. Í Danmörku eru í dag tvær myllur sem eru hærri, þær standa báðar á landi og sú hærri skagar heila 330 metra upp í loftið.

Samkvæmt sam­komu­lag­inu sem und­ir­ritað var í Esbjerg sl. mið­viku­dag mun tæpur fjórð­ungur myll­anna tíu þús­und standa á dönsku haf­svæði, úti fyrir vest­ur­strönd Jótlands.

Samtengt dreifikerfi

Það er ekki nóg að geta fram­leitt raf­magn, það þarf líka að vera hægt að koma því til neyt­end­anna. Árum saman hafa stjórn­mála­menn og sér­fræð­ingar rætt um nauð­syn þess að tengja saman raf­orku­kerfi Evr­ópu­land­anna. Þjóð­verjar hafa lengi glímt við „flösku­háls“ í sínu flutn­ings­kerfi, milli norð­ur­hluta lands­ins og suð­ur­hlut­ans. Þjóð­verjar hafa þurft að reiða sig á kol, olíu og gas til raf­magns­fram­leiðslu. Nú stendur til að bæta úr þessu með eins konar sam­teng­ingu, þá þurfa Danir til dæmis ekki að stöðva myll­urnar til að koma í veg fyrir að kerfið hrynji (eins og danskir fjöl­miðlar orða það) vegna offram­leiðslu, sem ekki er hægt að losna við. Þegar myll­urnar kom­ast í gagnið, verða í sumum til­vikum, útbúnar svo­nefndar orku­eyjar, eins konar dreifi­virki, þar sem orkunni frá mörgum myllum verður safnað saman, ef þannig má að orði kom­ast, áður en hún verður send áfram. Orku­eyj­arnar verða sam­tengdar og með því móti hægt að dreifa orkunni milli landa (á vissan hátt hlið­stætt lands­net­inu hér á Íslandi) burt­séð frá hvar orkan verður til. Vegna þess að orku­eyj­arnar eru mun kostn­að­ar­sam­ari en að senda ork­una beina leið til lands frá hverju „myllu­svæði“ eins og gert hefur verið til þessa verður „gamla“ aðferðin notuð í mörgum til­vikum. Þess má geta að Danir höfðu í fyrra ákveðið að byggja eina orkuey, hug­mynda­fræðin sú sama og nú er ákveðin í 10 þús­und mylla verk­efn­inu.

Mjög flókið

Að byggja og reisa 10 þús­und risa­stórar vind­myllur, koma þeim fyrir á hafs­botni, leggja kapla og leiðslur til orku­eyj­anna, koma orkunni til lands og svo áfram til not­enda er mjög flókið verk­efni, og dýrt. Það mun hins­vegar skapa mörg störf, eng­inn hefur nefnt tölur í því sam­bandi en ljóst er að þau muni skipta þús­undum. Kostn­aður og fjár­mögnun hefur ekki mikið verið rætt fram að þessu en danskir líf­eyr­is­sjóðir hafa lýst yfir miklum áhuga á að fjár­festa í þessu verk­efni.

Tilgangurinn er tvíþættur

Þjóðir Evr­ópu­sam­bands­ins hafa lengi haft ákveðnar áhyggjur af hve háðar þær hafa verið Rússum um orku­kaup. Innrás Rússa í Úkraínu hefur ekki orðið til að draga úr þeim áhyggjum. ESB þjóð­irnar reyna nú hver af annarri að finna leiðir til að losna úr klóm rúss­neska bjarn­ar­ins að þessu leyti, stóra vind­myllu­verk­efnið er ein þeirra leiða. Myllu­verk­efnið er enn­fremur skref í grænu orku­skipt­unum.

Á frétta­manna­fundi sem hald­inn var við und­ir­skrift sam­komu­lags­ins í Esbjerg spurði einn við­staddra hvort hægt væri, í ljósi veð­ur­fars­breyt­inga, að tryggja nægan vind á Norð­ur­sjónum næstu ára­tugi. Danski orku­mála­ráð­herr­ann taldi ótta um logn á Norð­ur­sjó ástæðu­lausan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár