Þrátefli á óvenjulegu Alþingi

Mið­flokk­ur­inn gengur hvorki í takt við stjórn né meiri­hluta stjórn­ar­and­stöðu. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir telja að það sé á ábyrgð hinna stjórn­ar­and­stöðu­flokka að ná sam­komu­lagi við Mið­flokk­inn um þing­lok en þeir telja sig enga ábyrgð bera á Mið­flokknum.

Flókin staða er uppi á Alþingi sem stendur. Fundir þar sem reynt er að semja um þing­lok hafa ekki skilað neinum árangri í ljósi þess að rík­is­stjórnin er að semja við tvær ólíkar stjórn­ar­and­stöður, sem eru með ólíkar kröfur um hvað þær vilja til að hægt sé að slíta þingi og fara í sum­ar­frí.

Annars vegar eru fjórir flokkar: Sam­fylk­ing, Viðreisn, Píratar og Flokkur fólks­ins sem eru nokkuð sam­stíga eins og er í áherslum sínum hvað varðar þing­lok. Hins vegar er Mið­flokk­ur­inn, sem nú er stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn, sem hefur allt aðrar hug­myndir um hvað þurfi til að ljúka þing­störfum.

Líkt og vana­lega hafa þing­flokks­for­menn allra átta flokk­anna á Alþingi verið að vinna að því að flokka þau fjöl­mörgu mál sem bíða afgreiðslu niður í flokka eftir því hversu áríð­andi er að afgreiða þau. Oftast er not­ast við liti umferð­ar­ljósanna við þá vinnu. Græn mál eru þau sem breið sam­staða er um, gul þau sem eru umsemj­an­leg með breyt­ingum og rauð þau sem stál er í stál og lít­ill sem eng­inn mögu­leiki á að kom­ist á dag­skrá fyrir þing­lok.

Nokkur mál sem ósætti er um

Við­mæl­endur Kjarnans hafa helst nefnt fjögur mál sem tek­ist sé á um. Það sem er lík­leg­ast til að springa upp eru lög um sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits. Mikil áhersla er lögð á það rík­is­stjórn­ar­megin að afgreiða þau lög fyrir þing­lok, en veru­legar efa­semdir eru um málið hjá stórum hluta stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Ýmsir hafa gagn­rýnt málið opin­ber­lega und­an­farin miss­eri. Þannig sagði Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, nýverið í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut að hún gæti ekki séð að sam­ein­ing við Seðla­banka Íslands myndi auka sjálf­stæði eft­ir­lits­ins frá póli­tík. Unnur sagði að sjálf­stæði fjár­mála­eft­ir­lits þyrfti að vera bæði frá stjórn­málum og þeim eft­ir­lits­skyldu aðilum sem Fjár­mála­eft­ir­litið á að fylgj­ast með. Með sam­ein­ingu stofn­ana verði til þrjár stoðir innan hins nýja seðla­banka: stoð pen­inga­stefnu, fjár­mála­stöð­ug­leika og fjár­mála­eft­ir­lits.

Þá skrif­aði Gylfi Zoega, pró­­fessor í hag­fræði, ítar­­legri grein í Vís­bend­ingu nýverið þar sem fjall­aði meðal ann­­ars um fyr­ir­hug­aða sam­ein­ingu Seðla­­banka Íslands og Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins, með gagn­rýnum hætt­i.

Í grein Gylfa sagði að marg­vís­legar hættur geti steðjan að fjár­­­mála­eft­ir­liti og sjálf­­stæði þess á litlum mark­aði eins og þeim íslenska. T.d. geti stjórn­­­mála­­menn reynt að hafa áhrif á, bæði í gegnum per­­són­u­­leg tengsl við fjár­­­festa og með póli­­tískum skip­unum í stjórn­­­ir.

Unnur sagð­ist í áður­nefndum sjón­varps­þætti hafa lesið grein Gylfa og taldi hana glögga og góða grein­ingu á þeim áskor­unum sem fylgja sam­ein­ing­unni.

Þjóðarsjóður líklega út af borðinu

Þá liggur fyrir að frum­varp um svo­kall­aðan Þjóð­ar­sjóð mun mæta tölu­verðri and­stöðu. Í frum­varpi var upp­haf­lega lögð áhersla á að þverpóli­tísk sátt mndi ríkja um sjóð­inn og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði á sínum tíma áherslu á að málið yrði afgreitt í sátt. Sú sátt er ein­fald­lega ekki til staðar.

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem mælti með sam­þykkt frum­varps­ins um miðjan maí með örlitlum breyt­ingum, sam­an­stóð ein­ungis af þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna. Stjórn­ar­and­staðan hefur sett fram marg­hátt­aðar athuga­semdir við málið. Á meðal þess sem Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, finnur að mál­inu í sínu minni­hluta­á­liti er að ein­ungis fjár­magn sem fellur til vegna orku­auð­lindar eigi að rata í sjóð­inn, en ekki vegna nýt­ingu ann­arra auð­linda. Þá kemur fram skýr and­staða gagn­vart þeirri hug­mynd fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að láta einka­að­ilum á fjár­mála­mark­aði eftir það verk­efni að ávaxta Þjóð­ar­sjóð­inn. Oddný telur að sjóð­ur­inn eigi, verði hann settur á lagg­irnar, að heyra undir Seðla­banka Islands, líkt og háttar til að mynda með norska olíu­sjóð­inn. Í áliti hennar segir að hún telji það „afar slæma hug­mynd að útvista bæði rekstri og áhættu­stýr­ingu á stórum sjóði í rík­i­s­eigu til einka­að­ila. Meðal þeirrar fyr­ir­sjá­an­legu hættu sem það skapar eru hags­muna­á­rekstrar, freistni­vandi og mark­aðs­bjögun.“

Þor­steinn Víglunds­son, full­trúi Við­reisnar í nefnd­inni, skil­aði sér áliti þar sem hann sagð­ist ekki vilja fara út í miklar efn­is­legar athuga­semdir við ein­stakar greinar frum­varps­ins eða almennt fyr­ir­komu­lag á rekstri sjóðs­ins í ljósi þess að hann lýsi almennri and­stöðu við stofnun slíks sjóðs og þar með við sam­þykkt frum­varps­ins. „Rétt er þó að benda á tvö lyk­il­at­riði. Annars vegar almenn skil­yrði fyrir úttekt úr sjóðnum og hins vegar ákvæði til bráða­birgða um að fram­lög skuli vera lægri tíma­bundið til að fjár­magna útgjöld rík­is­sjóðs.“

Bjarni Benediktsson lagði fram frumvarp um Þjóðarsjóð sem er mjög umdeilt á þingi. Mynd: Bára Huld Beck.
Bjarni Bene­dikts­son lagði fram frum­varp um Þjóð­ar­sjóð sem er mjög umdeilt á þingi. Mynd: Bára Huld Beck.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son situr í efna­hags- og við­skipta­nefnd fyrir Mið­flokk­inn. Í hans minni­hluta­á­liti eru settar fram alls sjö tölu­settar ástæður fyrir því að hann sé á móti fram­gangi frum­varps­ins. Sig­mundur Davíð telur meðal ann­ars óljóst hvers vegna skyn­sam­legt sé að byrja að safna í Þjóð­ar­sjóð á meðan rík­is­sjóður er skuld­settur og ríkið hefur á herðum ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar. Hann telur sterk rök fyrir því að fjár­magnið myndi nýt­ast betur í önnur verk­efni, til að mynda upp­bygg­ingu inn­viða eða til að lækka skatta eða aðrar álögur. Sig­mundur Davíð segir, líkt og Oddný, að álita­málum um rekstur sjóðs­ins sé ósvarað. Þá liggi ekki fyrir grein­ing á ætl­uðum kostn­aði við rekstur sjóðs­ins né reglur um hver hann megi að hámarki vera.

Við­mæl­endur Kjarnans á meðal þing­manna telja að nýlegar svipt­ingar í efna­hags­málum, þar sem nú er búist við sam­drætti í efna­hags­líf­inu vegna loðnu­brests og gjald­þrots WOW air í stað áfram­hald­andi hag­vaxtar, muni stöðva hug­myndir um upp­setn­ingu Þjóð­ar­sjóðs­ins, að minnsta kosti um stund­ar­sakir. Við blasi að rík­is­sjóði vanti fjár­magn til að láta fjár­mála­á­ætl­anir sínar ganga upp og stjórn­ar­liðar viti að ekki yrði vin­sælt ef að það fjár­magn yrði fundið með miklum nið­ur­skurði. Þess vegna verði fjár­magnið sem ætti að renna inn í Þjóð­ar­sjóð, arð­greiðslur frá Lands­virkjun, frekar nýtt í önnur verk­efni í nán­ustu fram­tíð.

Fiskeldi og leyfisbréf

Hin tvö stóru deilu­málin snú­ast um frum­vörp sem bíða þriðju umræðu og snúa að fisk­eld­is­málum. Annað er vegna áhættu­mats erfða­blönd­unar, úthlut­unar eld­is­svæða og stjórn­valds­sekta. Hitt vegna töku gjalds vegna fisk­eldis í sjó og fisk­eld­is­sjóðs.

Mjög mis­mun­andi hljóð er í við­mæl­endum Kjarnans vegna þess­ara mála. Stjórn­ar­liðar eru bjart­sýnir um að málin klárist en stjórn­ar­and­stæð­ingar eru sumir hverjir með miklar fyr­ir­vara.

Fjórða málið sem ósætti er um er frum­varp sem stefnir að því að gefið verði út eitt leyf­is­bréf til kennslu í stað þriggja, einu fyrir hvert skóla­stig. Ávinn­ingur þess á að fela sér auk­inn sveigj­an­leika og fjöl­breytni. Sú grund­vall­ar­breyt­ing verður þá gerð á inn­taki kenn­ara­náms að tekin verða upp hæfn­is­við­mið. Afar skiptar skoð­anir eru á meðal fag­fé­laga kenn­ara um málið og sömu sögu er að segja um stöð­una meðal þing­manna.

Náist sátt um hvaða stjórn­ar­mál hljóti braut­ar­gengi og hvaða málum stjórn­ar­and­stöð­unnar verði hleypt á dag­skrá er hægt að semja um hvenær og hvernig þing­störfum ljúki.

Breyttar víglínur

En íslensk stjórn­mál eru ekki jafn borð­leggj­andi og þau voru ára­tugum saman. Víg­lín­urnar á átta flokka Alþingi þar sem rík­is­stjórn frá vinstri, yfir miðju og til hægri situr að völdum, eru ann­ars konar en áður þekkt­ist. Helstu átökin sem hafa end­ur­spegl­ast í ýmsum stórum málum, t.d. þung­un­ar­rofs­mál­inu og umræðum um þriðja orku­pakk­ann, eru milli frjáls­lyndis og íhalds­semi, ekki vinstri og hægri kvarð­ans.

Málþóf Mið­flokks­ins vegna þriðja orku­pakk­ans hefur svo teiknað upp algjör­lega nýja stöðu. Allir hinir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir styðja að það mál verði afgreitt, meira að segja Flokkur fólks­ins sem mun þó ekki sam­þykkja málið. Það sé full­rætt. Mið­flokks­menn eru því ósam­mála en virð­ast ekki með skýra leið um hvernig þeir ætla að enda þá veg­ferð. Þá hlýtur ný könnun Gallup, sem birt var í byrjun viku, að vera flokknum mikil von­brigði. Þrátt fyrir að Mið­flokk­ur­inn hafi haft nán­ast allt dag­skrár­vald á Alþingi und­an­farið þá hækkar fylgi flokks­ins lítið og breyt­ingar á fylgi flestra flokka milli mán­aða voru innan skekkju­marka.

Í síð­ustu viku var sam­þykkt að fresta áfram­hald­andi umræðum um þriðja orku­pakk­ann til að hleypa öðrum málum á dag­skrá og leit Mið­flokk­ur­inn á það sem mik­inn sigur. Sú frestun varð ekki til þess að það liðk­að­ist fyrir þing­lokum og á fundi for­manna stjórn­mála­flokk­anna á sunnu­dag var það mat við­mæl­enda Kjarnans að Mið­flokk­ur­inn væri ekki til­bú­inn í að semja um þing­lok á neinum þeim for­sendum sem stjórn­ar­flokk­arnir eða hinir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir vildu. Því væri uppi patt­staða.

Tekist á um ábyrgð á Miðflokknum

Vegna þess að patt­staðan er óvenju­leg liggur ekki fyrir hvernig eigi að leysa hana. Stjórn­ar­flokk­arnir telja að stjórn­ar­and­staðan verði að koma sér saman um hvernig eigi að semja um þing­lok. Í stöðu­upp­færslu Silju Daggar Gunn­ars­dóttur, þing­konu Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem birt var í dag sagði meðal ann­ars: „Staðan í þing­inu er nú sú að Mið­flokk­ur­inn er stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn. Því neyð­ast hinir fjórir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir að koma sér saman um ákveðin mál, við Mið­flokk­inn. Þau mál leggur sam­einuð stjórn­ar­and­staða síðan áherslu á við þing­lokin gagn­vart rík­is­stjórn­inni. Það er ekki fræði­lega mögu­legt fyrir rík­is­stjórn­ina að semja um þing­lok við stjórn­ar­and­stöðu a og semja svo með örðum hætti við stjórn­ar­and­stöðu b. Menn verða bara að koma sér saman um hvernig þing­lokin verða. Punktur!“

Meiri­hluti stjórn­ar­and­stöð­unnar, þ.e. allir flokkar nema Mið­flokk­ur­inn, hafa aðra skoðun á mál­inu og líta svo á að Mið­flokk­ur­inn geti ekki bara verið vanda­mál and­stöð­unnar. Þegar þrír ólíkir flokkar ákveði að mynda for­dæma­lausa rík­is­stjórn þvert á öll hefð­bundin við­mið þá verði hún að búast við því að stjórn­ar­and­staðan sem hún skilji eftir verði ekki jafn eins­leit og sam­mála og hefur verið þegar skýr stjórn er mynduð til annað hvort hægri eða vinstri.

Þessi staða end­ur­spegl­ast ágæt­lega í stöðu­upp­færslu Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, sem birt var í gær. Þar sagði hún: „Það sem truflar mig við end­ur­tekið ofbeldi Mið­flokks­þing­fólks ( áður gegn konum, hinsegin fólki og fötl­uðum, nú gegn lýð­ræð­inu) er hvernig rík­is­stjórnin reynir að klína ábyrgð­inni á hegðun þeirra á stjórn­ar­and­stöð­una eins og við höfum valið að starfa saman eða höfum yfir­leitt dag­skrár­valdið. Stjórn­ar­flokkar hins vegar greiddu atkvæði með til­lögum mið­flokks og gegn okkar til­lögum í for­manns­skiptum í umhverfis og sam­göngu­nefnd og leggja núna ekk­ert til lausnar á mið­flokks­yf­ir­töku á Alþingi.“

Bak við tjöldin hafa þó átt sér stað óform­legar við­ræður milli stjórnar og meiri­hluta stjórn­ar­and­stöðu um hvernig eigi að leysa bæði mál­þóf Mið­flokks­ins og hvernig eigi að stuðla að þing­lokum.

Það er því ekki úti­lokað að sú staða gæti komið upp að samið verði um þing­lok milli fjög­urra flokka úr stjórn­ar­and­stöðu – allra nema Mið­flokks­ins – og rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár