Björn Þorfinnsson ráðinn ritstjóri DV

Blaða­mað­ur­inn Björn Þor­finn­son hefur tekið við starfi rit­stjóra DV. Tobba Marinós lét nýverið af störfum sem rit­stjóri mið­ils­ins, sem er hættur að koma út á pappír.

DV hefur ráðið nýjan ritstjóra til starfa.
DV hefur ráðið nýjan rit­stjóra til starfa. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Blaða­mað­ur­inn og skák­mað­ur­inn Björn Þor­finns­son hefur verið ráð­inn nýr rit­stjóri DV, en frá þessu er greint í frétt mið­ils­ins í dag. Hann tekur við starf­inu af Tobbu Mar­in­ós­dóttur, sem til­kynnti í mars­mán­uði að hún ætl­aði að hverfa til ann­arra starfa.

Björn var síð­ast blaða­maður á Frétta­blað­inu, en lauk störfum þar fyrr á þessu ári. Áður hafði hann verið blaða­maður á DV frá árinu 2015 og gegnt stöðu frétta­stjóra hjá miðl­inum. Hann hefur sömu­leiðis verið for­seti Skák­sam­bands Íslands.

„Ég ólst upp sem blaða­maður á DV og þykir afar vænt um þennan miðil. Ég er því afar spenntur að fá tæki­færi til að móta stefnu og ásýnd DV til fram­tíðar og vinna með því öfl­uga fólki sem starfar á miðl­inum í dag,“ er haft eftir Birni í frétt DV um ráðn­ing­una.

„Það er mik­ill akkur fyrir DV að fá Björn Þor­finns­son til starfa. Það er einnig ánægju­legt að hann skuli aftur vera geng­inn í raðir starfs­manna Torgs. Með ráðn­ingu hans mun DV halda áfram að sækja fram, hvoru tveggja sem frétta- og afþrey­ing­ar­mið­ill“, er haft eftir Birni Víglunds­syni for­stjóra Torgs, í frétt mið­ils­ins.

[adspot]

Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem þá var útgáfu­fé­lag DV, var sam­einað Torgi, eig­anda Frétta­blaðs­ins og Hring­brautar í mars árið 2020. Mið­ill­inn er hættur að koma út á prenti, hið minnsta tíma­bundið.

Vef­mið­ill­inn dv.is er sá þriðji mest lesni hér á landi og eru það ein­ungis Vísir og mbl.is sem standa honum framar er kemur að fjölda dag­legra not­enda, sam­kvæmt vef­mæl­ingum Gallup.

„Aðsóknin á dv.is er gríð­ar­leg og því er um að ræða ótrú­lega sterkan vett­vang til þess að koma á fram­færi fréttum og sögum fólks sem eiga erindi við sam­fé­lagið og hrista jafn­vel upp í því. Mitt helsta mark­mið að freista þess að styrkja frétta­hluta mið­ils­ins enn frekar og bjóða les­endum upp á góða blöndu af fréttum og afþrey­ing­ar­efni,“ er haft eftir nýja rit­stjór­anum í frétt DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár