Eðlilegt að ríkið geti selt sveitarfélögum án auglýsingar

Ríkið hefur litið svo á að það sé eðli­legt að það svari ákalli sveit­ar­fé­laga um kaup á lóðum rík­is­ins án aug­lýs­ingar, ef fyrir liggja gildar ástæður fyrir kaup­unum og þau eigi sér stað á við­skipta­legum for­sendum. Margar lóðir í borg­inni í skoðun.

Uppbygging á íbúðahúsnæði á lóðum ríkisins er á viðræðustigi milli borgar og ríkis.
Upp­bygg­ing á íbúða­hús­næði á lóðum rík­is­ins er á við­ræðu­stigi milli borgar og ríkis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ríkið hefur litið svo á að eðli­legt sé að ríkið svari ákalli um við­ræður um kaup á lóðum rík­is­ins án aug­lýs­ingar, ef umræddar lóðir eru innan marka skipu­lags­valds sveit­ar­fé­lags­ins, fyrir liggi rök­studdar ástæður fyrir kaupum sveit­ar­fé­lags og að við­skiptin eigi sér stað á við­skipta­legum for­sendum. Viðræður af þessu tagi hafa átt sér stað milli sveit­ar­fé­laga og rík­is­ins í nokkrum til­fellum á und­an­förnum árum.

Þetta kemur fram í svari Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Eygló Harð­ar­dóttur, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um ráð­staf­anir rík­is­lóða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Hin almenna stefna rík­is­ins við ráð­stöfun á landi eða öðrum eignum rík­is­ins er sú að aug­lýsa allar slíkar eignir með opin­berum hætti og taka hag­stæð­asta kauptil­boði enda sé það metið við­un­andi. Afstaða ráðu­neyt­is­ins hefur verið sú að verð­lagn­ing slíkra lóða verði að byggj­ast á því að reynt sé að stað­reyna mark­aðs­verð eða sann­virði slíkra eigna með hlut­lægum hætti. Ef um er að ræða beinar við­ræður, án und­an­far­andi aug­lýs­ingar þar sem hæsta til­boði er tekið, verður það sölu­verð sem lagt er til grund­vallar slíkri sölu að byggj­ast á hlut­lægu mati jafn­vel þótt kaup­endur séu sveit­ar­fé­lögin í land­inu,“ segir í svari fjár­mála­ráð­herra. Þrátt fyrir að sveit­ar­fé­lög nýti lóðir rík­is­ins til jákvæðrar eða félags­legrar upp­bygg­ingar verður samt að gæta þess að sala slíkra eigna til sveit­ar­fé­laga raski ekki jafn­ræði með sölu á und­ir­verði.

Ekki uppbygging í Keldnaholti á næstunni

Rætt hefur verið um sölu rík­is­ins á lóðum til sveit­ar­fé­laga und­an­farið, meðal ann­ars í tengslum við sölu rík­is­ins á Víf­ils­staða­land­inu til Garð­ar­bæjar. Einnig hafa bæði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Þor­steinn Víglunds­son félags­mála­ráð­herra rætt um mögu­leik­ann á því að borgin fái lóðir rík­is­ins til skipu­lagn­ingar í tengslum við hús­næð­is­vand­ann. Meðal þeirra svæða sem Þor­steinn hefur nefnt eru Keldur og Keldna­holt.

Í svari Bene­dikts kemur fram að afstaða rík­is­ins hafi ávallt verið sú að það sé reiðu­búið að ganga til samn­inga við borg­ina um sölu á land­svæð­inu, enda telji ríkið að það henti mjög vel til upp­bygg­ingar bæði íbúða­byggðar og atvinnu­svæða.

„Ríkið hefur ítrekað lagt til að gerður yrði svo­kall­aður ábata­skipta­samn­ingur um land­svæði rík­is­ins á svæð­inu þar sem ábata af sölu á bygg­ing­ar­rétti yrði skipt milli ríkis og sveit­ar­fé­lags. Í kjöl­far þess að Reykja­vík­ur­borg ákvað að draga veru­lega úr upp­bygg­ingu á þessum svæðum með nýju aðal­skipu­lagi, auk þess að seinka upp­bygg­ingu þeirra, eru ekki for­sendur fyrir upp­bygg­ingu lands­ins í nán­ustu fram­tíð.“

Einnig hefur verið rætt við borg­ina um Land­helg­is­gæslu­reit­inn við Ánanaust og lóð við Þorra­götu í Vesturbæ Reykja­víkur. Í báðum til­vikum hafa sam­eig­in­legir mats­menn ríkis og borgar náð sam­hljóða nið­ur­stöðu um verð­mat lóða og ríkið var reiðu­búið að ganga til samn­inga á grund­velli þess, segir í svar­inu. Hins vegar hafi borgin ekki talið sig geta gengið til samn­inga á grund­velli þess verð­mats.

Samstarf um skipulag og uppbyggingu í bígerð

Einnig hefur borgin spurst fyrir um lóð Veð­ur­stofu Íslands, en ríkið er til­búið að skoða að láta þá lóð eftir eftir borgin finnur veð­ur­mæl­ingum annan hent­ugan stað og taki þátt í þeim kostn­aði.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri óskaði eftir við­ræðum um sam­starf rík­is­ins og borg­ar­innar um upp­bygg­ingu íbúðar- og leigu­hús­næðis á lóðum rík­is­ins í borg­inni. „Meðal þeirra lóða sem þar eru nefndar er Land­helg­is­gæslu­lóðin, Sjó­manna­skólareitur, SS-reitur, Borg­ar­spít­alareitur, Veð­ur­stofu­hæð og Suð­ur­gata–Hring­braut. Það erindi er nú í eðli­legum far­vegi innan ráðu­neyt­is­ins en gera verður ráð fyrir því að í slíkum við­ræðum verði af hálfu rík­is­ins horft til þeirra sjón­ar­miða sem rakin eru hér að framan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár