Herra Baktus Hann heillar ferða­menn og elskar mynda­vél­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sex þúsund fylgja Baktusi á Instagram

Kötturinn Baktus, sem hefur haldið til í Austur­stræti í nokkur ár, er orðinn vinsæll meðal ferða­manna í Reykjavík. Þeir keppast við að taka af honum myndir og birta þær á Instagram. Hörðustu aðdáendurnir verða áhyggju­fullir ef þeir fá ekki fréttir af honum í það minnsta einu sinni í viku.

Það er orðinn fastur punktur á ferða­lögum margra erlendra ferða­manna sem koma til Reykja­víkur að leita uppi köttinn Baktus. Hann hefur í nokkur ár haldið til í Austur­stræti, þar sem hann röltir yfirleitt milli Gyllta kattarins og Icewear, á milli þess sem hann fer á rúnt til að sníkja sér eitthvað að borða. Erna Margrét Odds­dóttir, dóttir Hafdísar Þorleifs­dóttur, eiganda Gyllta kattarins, sér um Instragram-síðu Baktusar. „Ég gerði þennan aðgang því það voru svo margir útlendingar sem komu í Gyllta köttinn til að hitta Baktus og spurðu hvort þeir gætu ekki fylgst með honum eftir að þeir færu frá Íslandi. Ég ákvað bara í djóki að gera aðgang,“ útskýrir hún. 

Panikka ef Baktus finnst ekki

Fyrir um það bil ári fór umferðin að aukast talsvert á síðunni. Í dag fylgjast 6.200 manns með honum og nú er svo komið að Erna Margrét þarf að hafa sig alla við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár