Einræðisherrann, Krókódíllinn og Gucci-Grace: valdabrask eða valdarán í Simbabve?

Simbabveski her­inn hefur tekið yfir valdataumana í land­inu og situr Robert Mugabe, for­seti lands­ins, í stofu­fang­elsi.

Simbabveski her­inn hefur tekið yfir valdataumana í land­inu og situr Robert Mugabe, for­seti lands­ins, í stofu­fang­elsi. Aðgerðir hers­ins ger­ast rúma viku eftir að til­von­andi eft­ir­maður Mugabe, Emerson Mnangagwa, var vikið úr emb­ætti vara­for­seta til að greiða leið­ina fyrir til­komu for­seta­frú­ar­innar Grace Mugabe sem erf­ingja emb­ætt­is­ins.

Heil þrjá­tíu og sjö ár eru síðan Robert Mugabe varð póli­tískur leið­togi lands­ins eftir að Lancaster House-sátt­mál­inn batt enda á hvíta minni­hluta­stjórn Ian Smith í land­inu, sem þá var kallað Ródesía, eftir blóð­ugt fjög­urra ára sjálf­stæð­is­stríð. Mugabe var leið­togi ZANU-skæru­liða­sam­tak­anna sem eftir stríð breytt­ust í stjórn­mála­flokk sem hefur verið alls­ráð­andi í land­inu í stjórn­ar­tíð Mugabe.

Á þriðju­dag­inn hófst atburða­rás sem virð­ist ætla að binda enda á stjórn­ar­tíð Mugabe; simbabveski her­inn tók yfir skrif­stofur rík­is­valds­ins, þing­húsið, rík­is­út­varpið og flug­völl­inn í Harare, höf­uð­borg lands­ins, og sjón­varp­aði yfir­lýs­ingu þar sem til­kynnt var að aðgerðir hers­ins væru ekki ætl­aðar sem valda­rán en þeim væri beint að „glæpa­mönnum í kringum [Mugabe].“

Valdatafl Krókódílsins

Að því er virð­ist snú­ast atburðir vik­unnar í Simbabve um bar­átt­una um hver það er sem mun taka við for­seta­emb­ætt­inu þegar hinn níu­tíu og þriggja ára gamli Robert Mugabe hverfur úr emb­ætti. Á þrjá­tíu og sjö ára stjórn­ar­tíð sinni hefur Mugabe aldrei til­kynnt um það hvern hann sjái fyrir sér að taki við emb­ætt­inu sem hefur leyst úr læð­ingi lang­vinna valda­bar­áttu á bak­við tjöldin.

Á síð­ustu árum hefur þessi valda­bar­átta að mestu verið á milli tveggja aðila; Emerson Mnangagwa, fyrr­ver­andi vara­for­seta og einn leið­toga ZANU-skæru­lið­anna í sjálf­stæð­is­stríð­inu þar sem hann ávann sér við­ur­nefnið „Krókó­díll­inn“, ann­ars vegar og Grace Mugabe, eig­in­kona for­set­ans sem hefur lengi haft stuðn­ing ung­liða­hreyf­ingar stjórn­ar­flokks­ins.

Grace Mugabe, sem hefur hlotið við­ur­nefnin Gucci Grace og Disgrace af and­stæð­ingum sínum vegna tíðra og kostn­að­ar­samra versl­un­ar­leið­angra, virt­ist vera í bíl­stjóra­sæt­inu til að taka við af eig­in­manni sínum eftir að Mnangagwa var vikið úr emb­ætti vara­for­seta fyrir um tveimur vikum síðan. Mugabe-hjónin lýstu þá yfir óánægju við Mnangagwa og stuðn­ings­menn hans, sem kall­aðir eru „Team Lacoste“, en óhlið­holl­usta, van­virð­ing og svik­sam­leg hegðun voru gefnar upp sem ástæður ákvörð­un­ar­innar að víkja honum úr emb­ætti.

Með atburðum síð­ustu viku hefur þó komið í ljós að Mnangagwa hefur haft betur; tengsl hans við her­inn eru sterk og lýstu þau sér á mándu­ag­inn síð­ast­lið­inn þegar, viku eftir að Mnangagwa var vikið úr emb­ætti vara­for­seta, hers­höfð­ing­inn Constantino Chiwenga sendi frá sér til­kynn­ingu þar sem hann var­aði stjórn­ar­flokk­inn við að reyna að fjar­lægja flokks­menn með „sjálf­stæð­is­bar­áttu­bak­grunn“ og að her­inn myndi ekki hika við að grípa til aðgerða til að vernda bylt­ing­una. Daginn eftir fór her­inn úr bröggum sínum og út á götur Harare.

Sama gamla tóbakið?

Simbabveski her­inn hefur gríð­ar­leg völd í land­inu og hefur lit­ist illa á að eft­ir­maður Mugabe yrði ekki úr þeirra röðum. Þá hefur Simbabve ekki efni á því að verða enn frekar jað­ar­sett í alþjóða­sam­skiptum vegna þeirrar djúpu og lang­vinnu efna­hag­skreppu sem landið hefur verið í, sér­stak­lega í kjöl­far þess að Mugabe gerði land og eignir flestra hvítra land­eig­enda upp­tæk eftir þús­ald­ar­mótin, og kemur það í veg fyrir beina her­stjórn sem val­mögu­leika. Mnangagwe virð­ist upp­fylla kröfur hers­ins um leið­toga borg­ara­legrar rík­is­stjórnar; sterk tengsl hans við her­inn og for­tíð hans í sjálf­stæð­is­bar­áttu lands­ins gefur honum trú­verð­ug­leika, og hann hefur gefið í skyn vilja til að ráð­ast í umbætur til að sætt­ast við Vest­ur­lönd, meðal ann­ars með því að veita hvítum land­eig­endum bætur fyrir land þeirra og eignir.

Þrátt fyrir vonir íbúa lands­ins um umbætur og frið­sam­lega yfir­færslu valds er lítil ástæða til að vænta þess að stjórn­ar­hættir Mnangagwa verði mjög frá­brugðnir stjórn­ar­háttum Mugabe. Mnangagwa var örygg­is­mála­ráð­herra í Simbabve á níunda ára­tugnum þegar stjórn­völd réð­ust í Gukura­hundi-fjöldamorðin á Ndebele-ætt­bálknum sem var ekki álit­inn treystandi vegna ágrein­ings Mugabe og Joshua Nkomo, leið­toga ZAPU-flokks­ins sem var í sam­keppni við ZANU. Þá var Mnangagwa lyk­il­maður í aðgerðum simbabveska hers­ins í Austur-Kongó á tíunda ára­tugnum og fyrsta ára­tug þess­arar aldar þar sem simbabveskir her­menn rændu gríð­ar­legum nátt­úru­auð­lindum í land­inu í skjóli átak­anna.

Þá hafa orðrómar um að Mnangagwe fór í útlegð til Kína eftir að honum var vikið úr emb­ætti vara­for­seta vakið mikla athygli, sér­stak­lega í ljósi þess að Chiwenga einnig heim­sótti Kína örfáum dögum áður en valdaránið átti sér stað. Þar ræddi Chiwenga við Chang Wanquan, varn­ar­mála­ráð­herra Kína, en Simbabve, sem hefur lengi verið jað­ar­sett af Vest­ur­löndum, hefur lengi haft náin tengsl við Kína og hlaut Mnangagwe sjálfur þjálfun í Pekíng í lok sjö­unda ára­tug­ar­ins. Hvort að Pekíng hafi gefið Mnangagwe blessun sína yfir aðgerðir simbabveska hers­ins í vik­unni er óljóst en Kína hefur umtals­verða efna­hags­lega hags­muni í land­inu og hefur sætt gagn­rýni fyrir að styðja við bakið á harð­stjórn Mugabe.

Hvort að íbúar Simbabve líti á atburða­rás und­an­farnar viku sem fagn­að­ar­er­indi mun eflaust fara eftir því hvers konar rík­is­stjórn tekur við ef Mugabe neyð­ist til að segja af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár