Ríkissaksóknari áfrýjar Aurum-málinu

Frestur til að sækja um áfrýj­un­ar­leyfi í Aurum-mál­inu rann út í gær og verða sýknu­dómar yfir Lárusi Welding, Magnúsi Agnari Magn­ús­syni og Jóni Ásgeiri Jóhanessyni teknir fyrir í Hæstirétti Íslands.

Reynt að taka Aurum-málið í Hæstarétt
Reynt að taka Aurum-málið í Hæsta­rétt Jón Ásgeir Jóhann­es­son var sýkn­aður í Aurum-mál­inu í Lands­rétti. Málið gæti nú farið fyrir Hæsta­rétt Íslands. Mynd: Pressphotos

Embætti rík­is­sak­sókn­ara hefur sótt um áfrýj­un­ar­leyfi til Hæsta­réttar Íslands í Aurum-mál­inu svo­kall­aða. Þetta stað­festir Helgi Magnús Gunn­ars­sonar aðstoð­ar­rík­is­sak­sókn­ari aðspurður. Áfrýj­un­ar­frestur í mál­inu rann út í gær. Lárus Welding, Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Magnús Arnar Arn­gríms­son voru sýkn­aðir í Lands­rétti af ákæru um umboðs­svik í mál­inu þann 24. októ­ber síð­ast­lið­inn. 

Helgi Magnús segir að sýknu­dómum yfir þre­menn­ing­unum verði öllum áfrýjað til Hæsta­réttar fáist til þess leyfi frá rétt­inum. Með til­komu Lands­réttar Íslands, milli­dóm­stigs milli hér­aðs­dóm­stóla og Hæsta­réttar Íslands, þarf að sækja um áfrýj­un­ar­leyfi til að mega að fara með mál fyrir Hæsta­rétt. 

Aurum-málið snýst um sex millj­arða lán­veit­ingu frá Glitni til einka­hluta­fé­lags­ins FS38 ttil að kaupa hluta­bréf Fons í bresku skart­gripa­versl­un­inni Aurum um sum­arið 2008. Lárus og Magnús eru ákærðir fyrir umboðs­svik en Jón Ásgeir, sem var einn stærsti hlut­hafi Glitnis, fyrir hlut­deild í brot­inu en til vara fyrir hylm­ingu eða pen­inga­þvætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár