Óvænt tilkoma Fillon hristir upp í frönsku forsetakosningunum

François Fillon vann stór­sigur í próf­kjöri hins íhalds­sama Repúblíkana­flokks á sunnu­dag­inn síð­ast­lið­inn. Sem helsti val­kostur við öfga­hægrifram­bjóð­and­ann Marine Le Pen, veltur mikið á Fillon fyrir fram­tíð ESB ekki síður en fram­tíð Frakk­lands.

François Fillon.
François Fillon. Mynd: EPA

Eftir að hafa mælst í fjórða sæti í skoð­ana­könn­unum mán­uði fyrir fyrstu umferð próf­kjörs­ins kom það veru­lega á óvart að François Fillon hafi ekki ein­ungis kom­ist í aðra umferð­ina, heldur unnið með eins afger­andi hætti og raun bar vitni. Í fyrstu umferð próf­kjörs­ins hlaut Fillon 44% atkvæða en Alain Juppé, borg­ar­stjóri í Bordeaux og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra í for­seta­tíð Jacques Chirac, kom annar með 29%. Með því var ljóst að Nicolas Sarkozy, fyrr­ver­andi for­seti Frakk­lands 2007-2012, sem hafði snúið aftur í stjórn­mál 2014 sem for­maður Repúblíkana­flokks­ins (flokk­ur­inn bar nafnið Union pour un mouvement popu­laire (UMP) á þeim tíma), hafði verið slegið úr for­seta­bar­átt­unni af fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sínum, Fillon; maður sem ráð­gjafar Sarkozy umtöl­uðu fyrir skömmu sem "Mr. Nobody". Í annarri umferð próf­kjörs­ins, þar sem tveir efstu fram­bjóð­end­urnir úr fyrstu umferð tók­ust á, hlaut Fillon 66,5% atkvæða og varð þar með for­seta­efni flokks­ins í kosn­ingum sem haldnar verða í apríl á næsta ári.

Kaþólski Thatcheristinn

Fillon stendur fyrir blöndu af íhalds­sömum og frjáls­lyndum stefnum og lýsti sjálfum sér opin­ber­lega sem „Thatcherista“ í próf­kjörs­bar­átt­unni sem er væg­ast sagt óvenju­legt í Frakk­landi þar sem van­traust á frjálsa verslun og stuðn­ingur við sterkt rík­is­vald á sér sterkar rætur. Hann vill hrista upp í hag­kerfi lands­ins með því að taka slag­inn við verka­lýðs­fé­lög, fækka rík­is­starfs­mönnum, afnema þrjá­tíu og fimm klukku­stunda vinnu­viku hjá hinu opin­bera, hækka eft­ir­launa­ald­ur­inn og fækka reglu­gerðum veru­lega.

Hins vegar ein­kenn­ist stefna hans einnig af félags­legri íhalds­semi með kaþ­ólsku ívafi - Fillon kaus gegn lög­leið­ingu hjóna­banda sam­kyn­hneigðra árið 2013 og lagði mikla áherslu á „hefð­bundin fjöl­skyldu­gildi“ í kosn­inga­bar­áttu sinni. Þá hefur hann tjáð að það séu "of margir" inn­flytj­endur í land­inu til að hægt sé að taka á móti þeim á sóma­sam­legan hátt og talar fyrir harð­línu­stefnu gegn „íslömskum hryðju­verkum“ í bók sinni „Vaincre le tota­lit­ar­isme islamique“ (e. Conquering Islamic Tota­lit­ari­an­ism) sam­hliða því að for­dæma námskrár í frönskum skólum sem hann telur kenna nem­endum að „skamm­ast sín“ yfir nýlendu­sögu lands­ins. Fillon er vinur Vladimir Putin, for­seta Rúss­lands, og hefur lýst yfir vilja til að vinna með Rúss­landi í bar­átt­unni gegn Íslamska rík­inu í Sýrlandi. Þessar stefnur brutu í bága við miðjusinn­uðum stefnum Juppé í próf­kjör­inu en ljóst er að fram­bjóð­end­urnir tveir fisk­uðu ekki á sömu miðum eftir stuðn­ingi; Juppé til vinstri, Fillon til hægri.

Óvænt hindrun Le Pen

Marine Le Pen, leið­togi öfga­hægri­flokks­ins Front National (FN), hefur þegar haf­ist handa við að smíða saman orð­ræðu sem gagn­rýnir Fillon. Að vanda fyrir öfga­hægri­flokk er Fillon stimpl­aður sem „elít­isti“ sem stendur fyrir efna­hags­legri nýfrjáls­hyggju­stefnu sem gagn­ast ein­ungis fámennri valda­klíku. Hins vegar gerir harð­línu­stefna Fillon í inn­flytj­enda­málum Le Pen erfitt fyrir þegar kemur að því að aðgreina flokk sinn frá Repúblíkana­flokknum í mála­flokki sem hefur sögu­lega verið meg­in­upp­spretta fylgis FN. Fillon gerir fólki sem hefði ann­ars verið lík­legt til að kjósa FN kleift að kjósa „virðu­legri“ flokk sem sam­ræm­ist skoð­unum þeirra að á svip­aðan hátt, og er hann í stöðu til að höfða sér­stak­lega til íhalds­samra kaþ­ólskra kjós­enda. Marion Maréchal-Le Pen, þing­maður FN og barna­barn stofn­anda FN, Jean-Marie Le Pen, tjáði í síð­ustu viku að Fillon væri hættu­legur fyrir flokk­inn þar sem hann byggi til aðferða­fræði­legt vanda­mál sem FN yrði að yfir­stíga.

Þó að Fillon eigi því lík­lega tök á að sækja mikið fylgi á hægri­vængnum er hann fyr­ir­lit­inn á vinstri­vængnum. FN mun eflaust reyna að nýta sér þessa andúð með popúl­isma sínum en flokk­ur­inn sækir nú þegar tölu­vert fylgi hjá fyrr­ver­andi vinstrisinn­uðum kjós­endum í iðn­að­ar­svæðum í Norður- og Austur-Frakk­landi sem hafa verið í efna­hags­legri lægð í langan tíma. Þá á eftir að koma í ljós hvernig spil­ast úr fram­bjóð­enda­bar­áttu hins sitj­andi vinstri­flokks Parti socialiste (PS). François Hollande er óvin­sæl­asti for­seti Frakk­lands í um fimm­tíu ár og á eftir að til­kynna um það hvort hann muni gefa kost á sér aftur í próf­kjöri flokks­ins í jan­úar en helsti keppi­nautur hans er tal­inn vera for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Manuel Valls, sem hingað til hefur sagst ein­ungis vilja bjóða sig fram ef Hollande gerir það ekki. Til að eiga ein­hverja mögu­leika verður flokk­ur­inn að sam­ein­ast um fram­bjóð­anda en nú þegar hefur Emmanuel Macron sagt af sér stöðu efna­hags­ráð­herra í rík­is­stjórn Valls til þess að bjóða sig fram í sínu eigin, óháðu miðju­fram­boði.

Frexit?

Le Pen hefur heitið því frá árinu 2013 að ef hún vinni for­seta­kosn­ing­arnar þá muni hún muni halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það hvort Frakk­land eigi að draga sig úr Evr­ópu­sam­band­inu. Brexit hefur gefið henni auk­inn með­byr og er hugs­an­legt að for­seta­kosn­ing­arnar í Frakk­landi á næsta ári gætu skipt sköpum um framtið Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB). Fillon, Macron, og PS styðja áfram­hald­andi aðild en Brexit hefur neytt fram­bjóð­endur og flokka til að end­ur­hugsa áherslur sínar gagn­vart því hvernig eigi að umbæta ESB inn­an­frá og hvernig eigi að haga skiln­að­inum við Bretland.

Samkvæmt tveimur skoð­ana­könn­unm sem fram­kvæmdar voru um helg­ina eru allar líkur á því að valið verði að lokum á milli Fillon og Le Pen í annarri umferð for­seta­kosn­ing­anna þar sem Fillon mun sigra örugg­lega. Í ljósi atburða árs­ins, þar á meðal til­komu Fillon sem for­seta­efni, er þó ekk­ert gefið í þessum efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár