Ræða þörf á örvunarskammti af Janssen-bóluefni

Sér­fræð­inga­nefnd Matvæla- og lyfja­stofn­unar Banda­ríkj­anna ætlar að koma saman til að ræða þörf á örv­un­ar­skammti af bólu­efni Janssen. Fram­leið­and­inn hefur þegar sótt um slíkt leyfi. Stofn­unin hefur sam­þykkt að við­kvæmir geti fengið örv­un­ar­skammt af Pfizer.

Fyr­ir­tækið Johnson & Johnson ætlar í vik­unni að sækja um leyfi hjá Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna (FDA) til að gefa örv­un­ar­skammt af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins sem kennt er við dótt­ur­fyr­ir­tækið Janssen. Þeir sem fengið hafa bólu­efnið hér á landi hefur frá því í byrjun ágúst staðið til boða að fá örv­un­ar­skammt með öðru bólu­efni. Bæði Moderna og Pfizer hafa fyrir nokkru sótt um sam­bæri­legt leyfi til FDA og stjórn­völd og stofn­anir vest­an­hafs hafa þegar hvatt ákveðna hópa sem fengið hafa þau bólu­efni til að fara í örv­un­ar­bólu­setn­ingu. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum hafa ítrekað sagt að vörn allra þriggja bólu­efn­anna sé góð en einnig bent á að lík­leg­ast kæmi að þörf á end­ur­bólu­setn­ingu að ein­hverjum tíma liðnum.

[adspot]

Yfir 15 millj­ónir Banda­ríkja­manna hafa fengið bólu­setn­ingu með Janssen. Nýjustu rann­sóknir sótt­varna­stofn­unar Banda­ríkj­anna (CDC) benda til að að efnið, sem gefið er í einni sprautu, veiti aðeins 71 pró­sent vörn gegn sjúkra­húsinn­lögn vegna COVID-19 á meðan Pfizer-efnið veitir 88 pró­sent vörn gegn slíku og efni Moderna 93 pró­sent.

Johnson & Johnson hefur einnig nýverið birt nið­ur­stöður rann­sóknar sem sýnir meiri vörn. Hún náði til tveggja millj­óna manna og sam­kvæmt henni veitir einn skammtur af Janssen-bólu­efn­inu 81 pró­sent vörn gegn inn­lögn á sjúkra­hús. Þá sýni rann­sóknir einnig að með því að gefa annan skammt af bólu­efn­inu tveimur mán­uðum eftir þann fyrsta auk­ist vörnin gegn því að fá ein­hver ein­kenni af COVID-19 í 94 pró­sent.

Hafa samþykkt örvun viðkvæmra

Um miðjan októ­ber mun óháð nefnd sér­fræð­inga á vegum FDA koma til fundar til að ræða hvort að gefa eigi örv­un­ar­skammt af Janssen-efn­inu. Sá fundur var ákveð­inn áður en að fram­leið­and­inn sótti um leyfi fyrir slíku.

Bæði FDA og CDC hafa sam­þykkt að bjóða við­kvæmum hópum, þar á meðal öldruðum, örv­un­ar­skammt af Pfizer. Sam­bæri­leg til­kynn­ing varð­andi örvun bólu­efnis Moderna er talin vænt­an­leg á næst­unni.

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti hefur rek­ist á veggi í bólu­setn­ing­ar­her­ferð sinni. Um miðjan júlí átti sam­kvæmt áætlun að vera búið að bólu­setja um 75 pró­sent full­orð­inna en hlut­fallið er enn innan við 60 pró­sent. Far­ald­ur­inn hefur síð­ustu vikur verið í upp­sveiflu í þeim ríkjum lands­ins þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fallið er lægst. Merki eru nú um að hann sé á nið­ur­leið og hefur sjúkra­húsinn­lögnum t.d. almennt fækkað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár