Hitler, Hekla og hindúismi: Nýaldarnasistinn Savitri Devi

Tungutak fas­ista er farið að sjást aftur. Savitri Devi er ein ein­kenni­leg­asta per­sónan sem komið hefur fram í upp­sprettu öfga­hópa. Flosi Þor­geirs­son, sagn­fræð­ingur, hefur kynnt sér sögu hennar.

Er grein­ar­höf­undur var ungur þá voru orðin „fas­isti“ og „nas­isti“ iðu­lega eitt­hvað sem maður tengdi við for­tíð­ina. Af og til bár­ust fréttir um öfga­hópa hér og þar en á átt­unda og níunda ára­tug bar mun meira á vinstri sinn­uðum hópum sem vildu taf­ar­lausar breyt­ingar og svifust einskis til að fá sínu fram. Tími öfga-hægri­hópa virt­ist lið­inn. Nú er breyt­ing á og upp­gangur svo­kall­aðra „popúl­ískra“ stjórn­mála­flokka í Evrópu ber þess glöggt vitni. Málfar þess­ara hópa minnir á ýmsan máta á tungu­tak fas­ista.

Lögð er áhersla á verndun þjóð­ernis og varað við ýmsum jað­ar­hópum, t.d. sígaunum og inn­flytj­endum sem séu í raun sníkju­dýr í sam­fé­lag­inu. Samfara þessu hafa ýmsar per­sónur sem virt­ust í raun gleymdar, verið dregnar fram í dags­ljósið að nýju. Í Ung­verja­landi t.d. hafa menn sem börð­ust gegn komm­ún­istum og voru lengi álitnir ill­menni og föð­ur­lands­svik­arar, verið hafnir á nýjan stall sem hetjur. Ein ein­kenni­leg­asta per­sóna, sem á sínum tíma var í mik­ils metum hjá nokkrum öfga-hægri hópum er Savitri Devi og hefur nafn hennar tekið að birt­ast hér og þar í þess­ari umræðu, ekki síst í Grikk­landi.

Max­im­i­ani Portas, sem seinna breytti nafni sínu í Savitri Devi, fædd­ist árið 1905 í Frakk­landi. Móðir hennar var ensk en fað­ir­inn grísk-ítalskur. Það varð fljótt ljóst að stúlkan var bráð­greind, hún átti á end­anum eftir að næla sér í tvær masters-gráður, klára dokt­ors­rit­gerð í heims­speki og ná tökum á fjölda tungu­mála, þar á meðal íslensku. Hún var mjög þrjósk, vilja­sterk og fór strax sínar eigin leiðir. Umhyggja fyrir dýrum varð fljótt öllu yfir­sterk­ari og hún gerð­ist græn­metisæta aðeins barn að aldri. Hún fann í raun fyrir mun meiri tengslum við dýr en menn. Í þessu minnir hún nokkuð á mann­inn sem hún átti eftir að dýrka meira en nokkurn annan: Adolf Hitler. Sem ung­lingur kom hún til Grikk­lands og heill­að­ist fljótt af þjóð­ern­issinnum þar. Evrópa var þá í upp­lausn eftir hörm­ungar fyrri heims­styrj­aldar.

Savitri kenndi Vest­ur­löndum um þann hryll­ing og taldi Grikk­land og Þýska­land frekar fórn­ar­lömb en ger­endur í þeim hild­ar­leik. Hún fyllt­ist einnig óbeit á gyð­ingum sem hún var sann­færð um að væru tengdir við ill öfl og ynnu að því að sundra þjóðum sem þráðu sam­ein­ingu. Hún aðhyllt­ist því nas­isma um leið og sú stefna fór að láta á sér kræla í Evrópu. Áhugi hennar var þó frekar heim­speki­legur en póli­tískur og Portas ákvað að heim­sækja Indland, enda var það grunn­hug­mynd í nas­ism­anum að „Aríar“ væru æðri öðrum kyn­þáttum og að þeir kæmu upp­runa­lega frá Indlandi, eða því svæði. Á Indlandi komst hún fljótt í kynni við þar­lenda þjóð­ern­is­sinna, hún heill­að­ist af bar­áttu þeirra og tók hindúa­trú. Hún breytti nafni sínu í Savitri Devi sem mætti þýða sem „sól­gyðja“. Hún varð enn sann­færð­ari um að heims­valda­stefna Bret­lands og ann­arra Evr­ópu­ríkja, væri af hinu illa og varð einnig mjög frá­hverf krist­in­dómi. Í hennar huga var kristni and-arísk trú.

Er ver­öldin steypt­ist í það ófrið­ar­bál sem við köllum nú seinni heims­styrj­öld, tók Devi auð­vitað ein­arða afstöðu með öxul­veld­unum. Ásamt eig­in­manni sínum Asit Mukherji, sem var engu minni nas­isti en hún, heim­sóttu þau oft her­sveitir banda­manna í Indlandi. Þau þótt­ust ætla að „skemmta“ her­mönnum en voru í raun að reyna að safna upp­lýs­ingum sem þau komu seinna til jap­anska hers­ins. Adolf Hitler gegndi mik­il­vægu hlut­verki í heims­speki Savitri Devi. Hún taldi fyrst að hann væri end­ur­holdgun guðs­ins Vishnu en við fall for­ingj­ans breytti hún þeirri skoðun og taldi að hann hefði þó verið mik­ill spá­maður og for­boði þess að Vishnu mun brátt end­ur­holdg­ast og binda enda á „Kali Yuga“, eða hina myrku öld nútím­ans sem ein­kenn­ist af illsku, spill­ingu og flá­ræði. Þetta myrkur mun á end­anum gleypa sig sjálft og gullöld mun rísa á ný með end­ur­komu Vishnu.

Tap öxul­veld­anna í stríð­inu var skilj­an­lega mikið áfall fyrir Savitri Devi og hún ákvað að heim­sækja fjar­lægan og eyði­legan stað sem hún hafði ekki komið til áður. Þar vildi hún hug­leiða og kom­ast í sam­band við móður jörð til að ná áttum á ný. Hún valdi að fara til Íslands og kom hingað árið 1947. Hún varð sér úti um tjald og ferð­að­ist um landið. Eina nótt hrökk hún upp við ægi­legan hávaða og rauk út úr tjald­inu til að að sjá hvað væri á seyði. Við henni blasti sjón sem hafði gíf­ur­leg áhrif á hana: Fallega fjallið Hekla, sem hún hafði tjaldað nálægt, var byrjað að gjósa. Þó niða­dimmt væri þá var umhverfið baðað rauð­gulri birtu og jörðin skalf undir fótum hennar. Savitri Devi sett­ist niður og hlust­aði á reiði­lestur fjalls­ins. Eftir nokkra stund tók hún eftir því að fjallið virt­ist gefa frá sér hljóð eins og „AUM“ en það er í hindúa­trú talið vera það hljóð sem heyrð­ist er ver­öldin var sköpuð. Savitri Devi varð þarna fyrir gíf­ur­legri upp­lifun. Jörðin sjálf hafði talað til hennar.

Eftir þessa hug­hreyst­ingu frá Heklu var Savitri Devi full eld­móðs og fór rak­leiðis til Þýska­lands. Þar hófst hún handa við að blása fólki byr í brjóst og dreifði m.a. bæk­lingum þar sem upp­risa Aríanna var boðuð og endað með kunn­ug­legri kveðju: „Heil Hitler!“. Vart þarf að koma á óvart að þessar aðgerðir fóru mis­vel í fólk og ekki síst her­náms­yf­ir­völd banda­manna í Þýska­landi. Bretar hand­tóku hana umsvifa­laust og í prís­und­inni kynnt­ist hún fólki sem deildi skoð­unum hennar. Þar á meðal var fyrrum flug­hetjan Hans-Ulrich Rudel en eng­inn her­maður Þjóð­verja í stríð­inu fékk jafn margar orður og hann. Rudel kynnti Devi fyrir ýmsum fyrrum nas­istum sem bjuggu í útlegð víða vegar um heim­inn. Hún ferð­að­ist víða og átti gist­ingu vísa hjá þessu fólki. Meðal ann­ars gisti hún um tíma í Madrid hjá Otto Skorzeny, fyrrum SS-for­ingja sem frægastur er fyrir að hafa bjargað Mus­sol­ini úr fang­elsi. Eitt áhuga­verð­asta vin­áttu­sam­band hennar var við Francoise Dior, frænku tísku­mó­gúls­ins Cristian Dior en ýmsir telja að sam­band þeirra hafi verið meira en bara vin­átta.

Savitri Devi lést í októ­ber 1982. Hún var jörðuð við hlið amer­íska fas­ista­leið­tog­ans George Lincoln Rockwell. Um tíma leit út fyrir að hún yrði öllum gleymd en nafn hennar hefur birst ítrekað und­an­farin ár á spjall­borðum og miðlum þeirra sem, eins og Savitri Devi, trúa því að nas­ism­inn muni rísa á ný, sterk­ari en nokkru sinni fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár